Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 20
Bryndís Ragna Brynjólfsdótt- ir fylgdi föður sínum, Brynj- ólfi H. Björnssyni, í nokkrar vikur í nóvember með myndavélina að vopni. Hún festi á filmu þegar ævistarfi hans, versluninni Brynju, var pakkað saman ofan í kassa. Brynjólfur H. Björnsson hefur staðið vaktina í byggingavöruversluninni Brynju á Laugavegi síðan á sjötta áratugnum en í vikunni afhenti hann nýjum eig- endum húsnæðisins lyklavöldin. „Það er ekki búið að ákveða hvað verður, þau hjónin sem keyptu ætla bara að taka húsið í gegn og sjá svo hvað verður,“ segir hann. Aðspurður hvernig tilfinningin við að afhenda lyklana hafi verið, svarar Brynjólfur: „Hún er mjög skrítin, eftir 60 ár þarna. Þetta er búið að vera ævistarfið enda byrj- aði ég að vinna í Brynju 26 ára. Ég hef alltaf kunnað vel við mig í mið- bænum en það hefur orðið mikil breyting á honum miðað við það sem var fyrir 30–40 árum. Lífið var þarna. Það finnst mér hafa breyst mikið.“ Eitt sem hefur breyst er fjöldi ferðamanna í miðbænum en þeir létu Brynju ekki fram hjá sér fara. „Það var alltaf nóg að gera og útlendingarnir komu mikið líka og voru hrifnir. Bretar, Amerík- anar og Kanadamenn höfðu það á orði hversu gott það væri að koma inn í svona búð eins og var í þeirra heimalandi í gamla daga, nú væri allt komið í stórverslanir og moll. Þetta fannst þeim alvöru búð.“ Áratuga safn af skjölum Verslunin var upphaf lega aug- lýst til sölu en þegar ekki tókst að finna kaupanda að rekstrinum var honum hætt. Matthildur, elsta dóttir Brynj- ólfs, og eiginmaður hennar tóku við vefverslun Brynju. „Þau ætla að fikra sig áfram í þessu. Netverslunin hefur alltaf mallað með og Matta hefur starfað hjá mér í bókhaldi og þekkir þetta að megninu til,“ segir Brynjólfur sem ætlar að vera þeim til halds og trausts til að byrja með. Pakkaði ævistarfi pabba Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Brynjólfur segir það hafa verið ánægjulegt að hafa Bryndísi dóttur sína með sér í nokkrar vikur í nóv- ember. „Það var einnig mikil hjálp enda fór hún í gegnum skúffur og annað sem þurfti að taka til í. Það var eitthvað minna hent í gegnum árin en hefði kannski þurft,“ segir hann í léttum tón. „En þeir voru alla vega ánægðir hjá Borgar- skjalasafninu þegar þeir komust í kassana uppi á lofti,“ en bókhaldið og fleira fór til varðveislu þar. Eins og fyrr segir afhenti Brynj- ólfur lyklana í vikunni og lokar þar með löngum og farsælum kaf la. Fram undan eru önnur hugðarefni. „Konan mín, Ragna Lára Ragnars- dóttir, er ánægð með að hafa mig heima á laugardögum framvegis,“ segir Brynjólfur sem undanfarna áratugi hefur unnið sex daga vinnu- viku. Gott að fá að vera til staðar Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir, ein þriggja dætra Brynjólfs, hefur verið búsett í Rotterdam frá árinu 2000 þangað sem hún fór til að dansa hjá Scapino Ballet Rotterdam. „Í dag dansa ég af og til en er líka mikið að kenna bæði hjá dans- f lokknum hérna í Hollandi og í listaháskólanum,“ segir Bryndís sem útskrifaðist úr ljósmyndanámi frá De Koninklijke Academie van Beeldende Kunsten í Haag árið 2022. Í nóvember síðastliðnum kom Bryndís heim til Íslands til að hjálpa föður sínum að hreinsa út úr hús- næði Brynju og hafði myndavélina með. „Engu hefur verið hent frá því búðin opnaði og var margt mjög vel varðveitt, eins og til dæmis allt bókhald og viðskiptasamskiptin öll varðveitt í röð og reglu. Háaloftið var fullt af pappírum og skjölum og kjallarinn fullur af alls konar dóti. Þar gleymdi ég mér alveg í ryki og drullu. En það var alveg magnað að fá að fara í gegnum þetta allt. Það er svo mikil saga og sál sem geymdist þarna.“ Bryndís segist þakklát fyrir að hafa getað varið þessum tíma með föður sínum og tekið þátt í hans rútínu dag hvern. „Við vöknuðum þá klukkan sex til að fara í Laugardalslaugina. Keyra saman í myrkrinu hlustandi á RÚV, fara í útiklefa, synda nokkrar ferðir, fara í heita pottinn og kalda og svo upp úr. Fyrir klukkan átta vorum við svo komin upp í búð. Þá var unnið til tólf, þá smá matur, oftast afgangar frá deginum áður, og svo haldið áfram þangað seinnipart dags. Mér fannst mjög gott að fá að vera til staðar, þar sem ég er búin að búa í Hollandi í 27 ár, eða frá því ég var 17 ára gömul og hef aldrei fengið að vera svona mikið með pabba.“ Tár þegar innréttingin fór niður Bryndís segir það þó hafa tekið á að horfa á Brynju hverfa smám saman. „Þegar öll búðarinnréttingin var tekin niður voru jafnvel vinnu- mennirnir næstum í tárum eins og við. Pabbi reyndi allt í sínu valdi til að koma öllu til einstaklinga eða fyrirtækja svo hlutirnir myndu lifa áfram. Sagan haldi áfram annars staðar.“ Bryndís var með símann og myndavélina uppi við allan tímann. „Pabbi heldur sér mjög sterkum en við vitum öll að tárin eru að innan. Það reif oft í að sjá pabba ganga í gegnum þetta, en það var líka mjög flott og ég er virkilega stolt af honum.“ Bryndís segir föður sinn helst koma til með að sakna viðskipta- vinanna, fólksins. „Hann elskaði að vera niðri í búð, tala við fólk og heyra sögur, um lífið og tilveruna. Hann þekkir alla og veit margt um margt úr alls konar geirum. Hann hlustaði á fólkið. Ég held það segi líka mikið að allt starfsfólkið sem vann í Brynju vann þar í mörg ár. Þeim leið þar vel.“ n Bryndis með Brynjólfi föður sínum á áramótabrennu fyrir nokkru. Bryndís myndaði dag- lega rútínu föður síns, sund, hádegis- mat og vinnu í versluninni. Bryndís Ragna fylgdi föður sínum Brynjólfi nokkrar síðustu vikur verslunar hans Brynju og myndaði ferlið. Hér er Brynjólfur ásamt nokkrum starfsmönnum, þeim Birni G. Snæbjörnssyni, Haldor Haldorsen og Hafsteini Guðmundssyni. MYNDIR/BRYNDÍS RAGNA Háaloftið var fullt af papp- írum og skjölum sem starfsmenn Borgarskjala- safns fögnuðu. 18 HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.