Fréttablaðið - 04.02.2023, Síða 20
Bryndís Ragna Brynjólfsdótt-
ir fylgdi föður sínum, Brynj-
ólfi H. Björnssyni, í nokkrar
vikur í nóvember með
myndavélina að vopni. Hún
festi á filmu þegar ævistarfi
hans, versluninni Brynju, var
pakkað saman ofan í kassa.
Brynjólfur H. Björnsson
hefur staðið vaktina í
byggingavöruversluninni
Brynju á Laugavegi síðan
á sjötta áratugnum en í
vikunni afhenti hann nýjum eig-
endum húsnæðisins lyklavöldin.
„Það er ekki búið að ákveða hvað
verður, þau hjónin sem keyptu ætla
bara að taka húsið í gegn og sjá svo
hvað verður,“ segir hann.
Aðspurður hvernig tilfinningin
við að afhenda lyklana hafi verið,
svarar Brynjólfur: „Hún er mjög
skrítin, eftir 60 ár þarna. Þetta er
búið að vera ævistarfið enda byrj-
aði ég að vinna í Brynju 26 ára. Ég
hef alltaf kunnað vel við mig í mið-
bænum en það hefur orðið mikil
breyting á honum miðað við það
sem var fyrir 30–40 árum. Lífið var
þarna. Það finnst mér hafa breyst
mikið.“
Eitt sem hefur breyst er fjöldi
ferðamanna í miðbænum en
þeir létu Brynju ekki fram hjá sér
fara. „Það var alltaf nóg að gera og
útlendingarnir komu mikið líka
og voru hrifnir. Bretar, Amerík-
anar og Kanadamenn höfðu það á
orði hversu gott það væri að koma
inn í svona búð eins og var í þeirra
heimalandi í gamla daga, nú væri
allt komið í stórverslanir og moll.
Þetta fannst þeim alvöru búð.“
Áratuga safn af skjölum
Verslunin var upphaf lega aug-
lýst til sölu en þegar ekki tókst að
finna kaupanda að rekstrinum var
honum hætt.
Matthildur, elsta dóttir Brynj-
ólfs, og eiginmaður hennar tóku
við vefverslun Brynju. „Þau ætla að
fikra sig áfram í þessu. Netverslunin
hefur alltaf mallað með og Matta
hefur starfað hjá mér í bókhaldi og
þekkir þetta að megninu til,“ segir
Brynjólfur sem ætlar að vera
þeim til halds og trausts
til að byrja með.
Pakkaði
ævistarfi
pabba
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Brynjólfur segir það hafa verið
ánægjulegt að hafa Bryndísi dóttur
sína með sér í nokkrar vikur í nóv-
ember. „Það var einnig mikil hjálp
enda fór hún í gegnum skúffur og
annað sem þurfti að taka til í. Það
var eitthvað minna hent í gegnum
árin en hefði kannski þurft,“ segir
hann í léttum tón. „En þeir voru
alla vega ánægðir hjá Borgar-
skjalasafninu þegar þeir
komust í kassana
uppi á lofti,“ en bókhaldið og fleira
fór til varðveislu þar.
Eins og fyrr segir afhenti Brynj-
ólfur lyklana í vikunni og lokar þar
með löngum og farsælum kaf la.
Fram undan eru önnur hugðarefni.
„Konan mín, Ragna Lára Ragnars-
dóttir, er ánægð með að hafa mig
heima á laugardögum framvegis,“
segir Brynjólfur sem undanfarna
áratugi hefur unnið sex daga vinnu-
viku.
Gott að fá að vera til staðar
Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir, ein
þriggja dætra Brynjólfs, hefur verið
búsett í Rotterdam frá árinu 2000
þangað sem hún fór til að dansa hjá
Scapino Ballet Rotterdam.
„Í dag dansa ég af og til en er líka
mikið að kenna bæði hjá dans-
f lokknum hérna í Hollandi og í
listaháskólanum,“ segir Bryndís
sem útskrifaðist úr ljósmyndanámi
frá De Koninklijke Academie van
Beeldende Kunsten í Haag árið 2022.
Í nóvember síðastliðnum kom
Bryndís heim til Íslands til að hjálpa
föður sínum að hreinsa út úr hús-
næði Brynju og hafði myndavélina
með.
„Engu hefur verið hent frá því
búðin opnaði og var margt mjög
vel varðveitt, eins og til dæmis allt
bókhald og viðskiptasamskiptin öll
varðveitt í röð og reglu. Háaloftið
var fullt af pappírum og skjölum og
kjallarinn fullur af alls konar dóti.
Þar gleymdi ég mér alveg í ryki og
drullu. En það var alveg magnað að
fá að fara í gegnum þetta allt. Það er
svo mikil saga og sál sem geymdist
þarna.“
Bryndís segist þakklát fyrir að
hafa getað varið þessum tíma með
föður sínum og tekið þátt í hans
rútínu dag hvern.
„Við vöknuðum þá klukkan sex til
að fara í Laugardalslaugina. Keyra
saman í myrkrinu hlustandi á RÚV,
fara í útiklefa, synda nokkrar ferðir,
fara í heita pottinn og kalda og svo
upp úr. Fyrir klukkan átta vorum
við svo komin upp í búð. Þá var
unnið til tólf, þá smá matur, oftast
afgangar frá deginum áður, og svo
haldið áfram þangað seinnipart
dags. Mér fannst mjög gott að fá að
vera til staðar, þar sem ég er búin að
búa í Hollandi í 27 ár, eða frá því ég
var 17 ára gömul og hef aldrei fengið
að vera svona mikið með pabba.“
Tár þegar innréttingin fór niður
Bryndís segir það þó hafa tekið á að
horfa á Brynju hverfa smám saman.
„Þegar öll búðarinnréttingin var
tekin niður voru jafnvel vinnu-
mennirnir næstum í tárum eins og
við. Pabbi reyndi allt í sínu valdi til
að koma öllu til einstaklinga eða
fyrirtækja svo hlutirnir myndu lifa
áfram. Sagan haldi áfram annars
staðar.“
Bryndís var með símann og
myndavélina uppi við allan tímann.
„Pabbi heldur sér mjög sterkum
en við vitum öll að tárin eru að
innan. Það reif oft í að sjá pabba
ganga í gegnum þetta, en það var
líka mjög flott og ég er virkilega stolt
af honum.“
Bryndís segir föður sinn helst
koma til með að sakna viðskipta-
vinanna, fólksins.
„Hann elskaði að vera niðri í búð,
tala við fólk og heyra sögur, um lífið
og tilveruna. Hann þekkir alla og
veit margt um margt úr alls konar
geirum. Hann hlustaði á fólkið.
Ég held það segi líka mikið að allt
starfsfólkið sem vann í Brynju vann
þar í mörg ár. Þeim leið þar vel.“ n
Bryndis með Brynjólfi föður sínum
á áramótabrennu fyrir nokkru.
Bryndís
myndaði dag-
lega rútínu
föður síns,
sund, hádegis-
mat og vinnu í
versluninni.
Bryndís Ragna fylgdi föður sínum Brynjólfi nokkrar síðustu vikur verslunar hans Brynju og myndaði ferlið. Hér er Brynjólfur ásamt
nokkrum starfsmönnum, þeim Birni G. Snæbjörnssyni, Haldor Haldorsen og Hafsteini Guðmundssyni. MYNDIR/BRYNDÍS RAGNA
Háaloftið var
fullt af papp-
írum og skjölum
sem starfsmenn
Borgarskjala-
safns fögnuðu.
18 HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR