Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 26
hagvangur.is
Matís er leiðandi á sviði matvælarannsókna og líftækni. Hjá Matís
starfar um 100 manna öflugur hópur starfsfólks sem brennur fyrir því
að finna nýjar leiðir til að hámarka nýtingu hráefnis, auka sjálfbærni
og efla lýðheilsu. Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra
afurða og atvinnulífs og tryggja matvælaöryggi, lýðheilsu og sjálfbæra
nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu. Matís
leggur áherslu á hagnýtar rannsóknir sem auka verðmæti íslenskrar
matvælaframleiðslu, stuðla að öryggi og heilnæmi afurða og sjálf
bærri nýtingu náttúruauðlinda.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar nk.
Upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is.
Deildarstjóri fjármála og rekstrar
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Matís leitar að fjölhæfum stjórnanda á sviði fjármála og
reksturs. Starfið felur í sér mikil samskipti, samningagerð og
greiningarvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fjárhagsuppgjör Matís og uppgjör einstakra verkefna
• Ábyrgð á verkefnabókhaldi
• Fjárhagsáætlanir í samvinnu við fjármálastjóra og
sviðsstjóra
• Fjárhagsleg greiningarvinna
• Þróun á nýtingu gagna og mótun stjórnendaupplýsinga
• Umsjón með rekstri fasteigna, mötuneyti, tækjabúnaðar,
tölvukerfi og hugbúnaði
• Yfirumsjón með innleiðingu og þróun á UT verkefnum
• Samningagerð og samskipti við fjölmarga aðila
• Þróun á ferlum og aðferðum
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði fjármála og rekstrar
• Rík samskipta og skipulagshæfni
• Góð greiningarhæfni
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Reynsla af reikningshaldi og uppgjörum
• Góð þekking á fjármálahugbúnaði
• Reynsla af rekstri upplýsingatæknikerfa er æskileg
hagvangur.is
2 ATVINNUBLAÐIÐ 4. febrúar 2023 LAUGARDAGUR