Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 33
Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogur, sauna.is
Fjárfesting í vellíðan
Vegna aukinna umsvifa leitum við að
öflugum starfsmanni til að vinna með okkur.
Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf
í nýrri verslun að Smiðjuvegi 1.
Helstu verkefni:
Almenn afgreiðsla, sölumennska,
tilboðsgerð, ráðgjöf o.fl.
Viðkomandi þarf að geta tímabundið
séð um daglegan rekstur.
Hæfniskröfur:
Almenn tölvukunnátta.
Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Frumkvæði og jákvæðni.
Snyrtimennska og góð framkoma.
Reynsla af sölumennsku er kostur
en ekki skilyrði.
Góð laun í boði fyrir rétta manneskju.
Hentar bæði yngri og eldri umsækjendum.
Sauna er alhliða sölu- og þjónustufyrirtæki fyrir þurrgufu-,
blautgufu- og infraklefa, spa-rými, heita og kalda potta og fleira.
Einnig selur fyrirtækið margs konar auka- og fylgihluti.
Upplýsingar veitir Páll S. Kristjánsson 860 4460 og pall@sauna.is
Umsóknarfrestur er til 14. febrúar nk. og skal senda umsóknir á
pall@sauna.is Nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.sauna.is
Sölumaður
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Þátttaka í teymisvinnu um hönnun og mótun Grænna iðngarða á Suðurlandi
• Öflun og mótun nýrra viðskiptatækifæra fyrir Græna iðngarða með hringrásarhugsun
að leiðarljósi
• Greining á nauðsynlegum innviðum og kostnaði
• Samskipti og samvinna við nýja og núverandi rekstraraðila sem og sveitarstjórnir
og byggðaþróunarfulltrúa viðkomandi svæða
• Önnur verkefni sem tengjast innleiðingu hringrásarhagkerfis á Suðurlandi
Hæfniskröfur:
• Nám sem nýtist í starfi
• Farsæl og haldgóð starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Brennandi áhugi á nýsköpun, orku og umhverfismálum
• Frumkvæði og drifkraftur í einstaklings- og teymisvinnu
• Lipurð og hæfni í samskiptum
• Færni í að koma frá sér efni í ræðu og riti
• Reynsla af verkefnastjórnun
• Tækniþekking sem nýtist í starfi er kostur
• Góð enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar nk.
Starfsstöð er á Suðurlandi. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Umsókn, sem sendist á
orkidea@orkidea.is, skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi um hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.
www.orkidea.is
Við leitum að öflugum einstaklingi, sem er til í gott hugarflug og með auga fyrir
nýjum hugmyndum og lausnum, í starf verkefnastjóra í uppbyggingu Grænna
iðngarða á Suðurlandi, í anda hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins
og nýsköpunar.
Grænn iðngarður er samstarfsnet fyrirtækja á ákveðnu atvinnusvæði þar sem skipst er á
orku og hráefnum þar sem úrgangur og straumar eins fyrirtækis getur nýst sem auðlind
annars. Innviðir græns iðngarð eru skipulagðir með samvinnu í huga er varðar þjónustu og
viðskipti fyrirtækjanna innan garðsins. Uppbygging græns iðngarðs styður við sjálfbærni með
innleiðingu félagslegra, efnahagslegra og umhverfisvænna sjónarmiða í skipulagi, stýringu
og framkvæmd.
Ertu framsýnn hugmyndasmiður?
Orkídea leitar að verkefnastjóra
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
ATVINNUBLAÐIÐ 9LAUGARDAGUR 4. febrúar 2023