Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Framabraut-Netöryggi er ný og öflug námsbraut hjá Promennt sem er ætlað að mæta eftirspurn eftir sérfræðingum í netöryggis- málum en hún hefur aukist mjög undanfarin ár. „Við heyrum allt of oft af netárásum sem gerðar eru á fyrirtæki og stofnanir úti um allan heim og því er mikil þörf á að fjölga sérfræðingum í greininni,“ segja aðalkennarar námsins, þeir Sveinbjörn Þormar og Guðmundur Pétur Pálsson. Mikilvægi námsins sé því nokkuð augljóst. „Í dag ætti net- öryggi að vera grunnur fyrir alla sem vinna með tölvur, vélbúnað og hugbúnað því að áhættan er mikil og mun bara aukast,“ segir Sveinbjörn. „Einnig er staðan sú á Íslandi að flest fyrirtæki eru með fáa starfsmenn í tölvudeild og því mikilvægt að þeir hafi þessa þekkingu. Fáir hafa efni á að hafa netöryggisdeild, þannig að við viljum gera alla starfsmenn klára í netöryggi.“ Guðmundur bætir við að öryggi sé nauðsynlegur hlutur til að hafa í huga í öllum störfum og einnig í einkalífinu. „Það líður ekki dagur án þess að við verðum fyrir árásum eða tilraunum til árása, hvort sem það er í pósti, spjalli, eða yfir netið. Óprúttnir aðilar eru fljótir að nýta sér veikleika og nýjar leiðir til árása. Því er nauðsynlegt að vera reiðubúin með varnir og kunnáttu til að aðlaga þær til að bregðast við nýjum ógnum.“ Þægilegt fyrirkomulag Til að mæta þessari miklu eftirspurn, og um leið að gera fólki kleift að kynnast þessum spenn- andi tæknigeira, býður Promennt upp á geysilega öfluga tveggja anna námsbraut í Netöryggi sem eru sex lotur í heildina. Námið gerir ekki kröfu um að nemendur hafi víðtæka þekkingu á öryggis- málum en reynsla og þekking á virkni upplýsingakerfa hjálpar þó í náminu. Námskeiðið er kennt hjá Pro- mennt í Skeifunni en hægt er að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir að hægt er að taka þátt í kennslustundinni óháð staðsetningu, hvort sem nemandi býr á höfuðborgar- svæðinu, á landsbyggðinni eða í útlöndum. Einnig er hægt að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama nám- skeiðinu. Því er hægt að mæta stundum á staðinn og taka hluta námskeiðs í fjarkennslu, allt eftir því hvað hentar hverjum nem- anda, sem er frábær kostur. Reynslumiklir kennarar Guðmundur og Sveinbjörn eru báðir mjög reyndir á sínu sviði. „Ég hef verið Microsoft-kennari (MCT) í fimmtán ár og er með 30 ára reynslu í tölvubransanum. Síðustu fimmtán árin starfaði ég sem ráðgjafi hjá Opnum kerfum en er núna Microsoft-hönnuður hjá Isavia,“ segir Guðmundur. Sveinbjörn hefur starfað sem kerfisstjóri í rúm 25 ár og komið að rekstri ýmissa tölvukerfa á þeim tíma. „Ég hef einnig kennt ýmsa tölvuáfanga hjá Promennt síðustu tólf árin. Síðan er ég mjög áhuga- samur um öryggismál og raunar dálítill öryggisnörd.“ Sveinbjörn kennir þrjá áfanga í náminu. „Ég kenni fögin Comptia Security+, Comptia CySa+ og NSE(1-2-3) sem spanna grunnatriði netöryggis upp að dýpri þekkingu, svo sem að setja upp búnað fyrir eftirlit og varnir gegn netárásum (atvikum), greining á hættum í nettraffík og hvernig skal bregðast við þeim.“ Einnig er kennt öruggt utan- umhald forrita og búnaðar í rekstrarumhverfi fyrirtækja. „Þar má nefna varnir og viðbrögð við mögulegum innbrotum og greining á atburðum, innleiðingu öruggari tölvureksturs fyrirtækja með sterkri fylgni við öryggis- staðla og stefnur og viðeigandi regluverk.“ Guðmundur kennir MS-500 áfangann (Microsoft 365 Security Administration) sem er kenndur á seinni önninni. „Í þessum áfanga er farið yfir þær fjölmörgu lausnir sem Microsoft býður upp á til að styðja okkur í baráttunni að bættu öryggi. Promennt er Microsoft- vottaður fræðsluaðili og um leið eina vottaða Microsoft-fræðslu- fyrirtækið á Íslandi.“ Mikil eftirspurn eftir netöryggissérfræðingum Þeir eru sammála um að námið bjóði upp á mjög góða atvinnu- möguleika. „Öll fyrirtæki hafa síðustu árin gefið öryggismálunum aukið vægi. Því er mikil eftir- spurn eftir starfsmönnum sem hafa öryggisþekkingu, sérstaklega á breiðum grunni,“ segir Guð- mundur. Sveinbjörn tekur undir orð hans. „Þörfin á starfsfólki með þessa þekkingu hefur aukist mikið þar sem fyrirtæki skilja mikilvægi þess að verja sig og reksturinn. Til þess þarftu fólk með svona menntun. Ég sé fyrir mér að þessi þekking verði bráðum talin grunnþekking sem við viljum sjá hjá öllu starfsfólki.“ Stöðug barátta sem klárast aldrei Netöryggi er stöðug barátta sem verður aldrei fullkomnuð að sögn Guðmundar. Það komi stöðugt upp nýjar ógnir og þar af leiðandi nýjar lausnir til að bregðast við þeim og fyrirbyggja skaða. „Störfum tengdum upplýsingaöryggi mun fjölga á næstu árum ásamt kröfunni um að allt starfsfólk sé með virka öryggishugsun.“ Sveinbjörn segir skort vera á starfsfólki í dag með grunnþekk- ingu í netöryggi og það gæti tekið mörg ár að ráða í öll þau störf sem verða á lausu. „Verkefnin sem við sinnum í dag verða líklega mikið breytt innan fárra missera. Það koma nýjar þjónustur í umhverfi okkar, nýr búnaður, aðstoð frá gervigreind og annað sem við sjáum ekki einu sinni núna. En við munum alltaf þurfa gott starfs- fólk með þekkingu og innsýn til að vinna að þessum mikilvægu verkefnum.“ n Nánar á promennt.is. Netöryggi ætti að vera grunnur fyrir alla sem vinna með tölvur, vélbúnað og hugbúnað enda hafa fá fyrirtæki efni á að hafa sérstaka netöryggisdeild, segja þeir Sveinbjörn Þormar og Guðmundur Pétur Pálsson, aðalkennarar náms í netöryggi sem Promennt býður upp á og er hægt að stunda bæði í staðnámi og fjarnámi. Ánægja með samstarfið Við skipulagningu námsbrautar- innar fékk Promennt með í lið Fortinet sem er leiðandi fyrir- tæki á heimsmarkaði í fram- leiðslu og þjónustuveitingu á net- og öryggislausnum. „Fortinet er í samstarfi við skólastofnanir á öllum skóla- stigum um allan heim,“ segir Sævar Haukdal sölustjóri. „Pro- mennt og Fortinet undirrituðu samstarfssamning sem gefur Promennt aðgang að námsefni, aðgengi að lausnum og ráðgjöf í uppbyggingu á sérfræðinámi í netöryggi.“ Hann segir fjölda netárása, fjölbreytni og aukna skipu- lagningu þeirra kalla á dýpri og meiri þekkingu en áður. „Því er nauðsynlegt að fjölga sérfræð- ingum á þessu sviði. Rekstrar- öryggi fyrirtækja er stefnt í hættu á degi hverjum og því miður höfum við séð dæmi um fyrirtæki hér á landi sem lenda í rekstrartruflunum og tapa gögnum sem hefur veruleg áhrif á rekstur þeirra og orðspor.“ Sævar áætlar að þörf sé á milljónum sérfræðinga á þessu sviði á heimsvísu. „Samstarfs- aðilar okkar og viðskiptavinir spyrja okkur reglulega hvort við þekkjum til aðila sem þeir geta ráðið í vinnu til að sinna slíkum verkefnum. Við erum því mjög ánægð að geta hafið samstarf við Promennt með það að markmiði að fjölga sér- fræðingum hér á landi og hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að takast á við netöryggisógnina með réttri þekkingu.“ Þörfin á starfsfólki með þessa þekk- ingu hefur aukist mikið þar sem fyrirtæki skilja mikilvægi þess að verja sig og reksturinn. Sveinbjörn Þormar 2 kynningarblað A L LT 4. febrúar 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.