Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Framabraut-Netöryggi er ný og
öflug námsbraut hjá Promennt
sem er ætlað að mæta eftirspurn
eftir sérfræðingum í netöryggis-
málum en hún hefur aukist mjög
undanfarin ár. „Við heyrum allt of
oft af netárásum sem gerðar eru
á fyrirtæki og stofnanir úti um
allan heim og því er mikil þörf á að
fjölga sérfræðingum í greininni,“
segja aðalkennarar námsins, þeir
Sveinbjörn Þormar og Guðmundur
Pétur Pálsson.
Mikilvægi námsins sé því
nokkuð augljóst. „Í dag ætti net-
öryggi að vera grunnur fyrir alla
sem vinna með tölvur, vélbúnað
og hugbúnað því að áhættan er
mikil og mun bara aukast,“ segir
Sveinbjörn. „Einnig er staðan sú á
Íslandi að flest fyrirtæki eru með
fáa starfsmenn í tölvudeild og
því mikilvægt að þeir hafi þessa
þekkingu. Fáir hafa efni á að hafa
netöryggisdeild, þannig að við
viljum gera alla starfsmenn klára í
netöryggi.“
Guðmundur bætir við að öryggi
sé nauðsynlegur hlutur til að hafa
í huga í öllum störfum og einnig í
einkalífinu. „Það líður ekki dagur
án þess að við verðum fyrir árásum
eða tilraunum til árása, hvort sem
það er í pósti, spjalli, eða yfir netið.
Óprúttnir aðilar eru fljótir að nýta
sér veikleika og nýjar leiðir til
árása. Því er nauðsynlegt að vera
reiðubúin með varnir og kunnáttu
til að aðlaga þær til að bregðast við
nýjum ógnum.“
Þægilegt fyrirkomulag
Til að mæta þessari miklu
eftirspurn, og um leið að gera fólki
kleift að kynnast þessum spenn-
andi tæknigeira, býður Promennt
upp á geysilega öfluga tveggja
anna námsbraut í Netöryggi sem
eru sex lotur í heildina. Námið
gerir ekki kröfu um að nemendur
hafi víðtæka þekkingu á öryggis-
málum en reynsla og þekking á
virkni upplýsingakerfa hjálpar þó
í náminu.
Námskeiðið er kennt hjá Pro-
mennt í Skeifunni en hægt er að
taka þátt í fjarkennslu í beinni
útsendingu. Það þýðir að hægt er
að taka þátt í kennslustundinni
óháð staðsetningu, hvort sem
nemandi býr á höfuðborgar-
svæðinu, á landsbyggðinni eða í
útlöndum.
Einnig er hægt að stunda bæði
staðnám og fjarnám á sama nám-
skeiðinu. Því er hægt að mæta
stundum á staðinn og taka hluta
námskeiðs í fjarkennslu, allt eftir
því hvað hentar hverjum nem-
anda, sem er frábær kostur.
Reynslumiklir kennarar
Guðmundur og Sveinbjörn eru
báðir mjög reyndir á sínu sviði.
„Ég hef verið Microsoft-kennari
(MCT) í fimmtán ár og er með 30
ára reynslu í tölvubransanum.
Síðustu fimmtán árin starfaði ég
sem ráðgjafi hjá Opnum kerfum en
er núna Microsoft-hönnuður hjá
Isavia,“ segir Guðmundur.
Sveinbjörn hefur starfað sem
kerfisstjóri í rúm 25 ár og komið að
rekstri ýmissa tölvukerfa á þeim
tíma. „Ég hef einnig kennt ýmsa
tölvuáfanga hjá Promennt síðustu
tólf árin. Síðan er ég mjög áhuga-
samur um öryggismál og raunar
dálítill öryggisnörd.“
Sveinbjörn kennir þrjá áfanga í
náminu. „Ég kenni fögin Comptia
Security+, Comptia CySa+ og
NSE(1-2-3) sem spanna grunnatriði
netöryggis upp að dýpri þekkingu,
svo sem að setja upp búnað fyrir
eftirlit og varnir gegn netárásum
(atvikum), greining á hættum í
nettraffík og hvernig skal bregðast
við þeim.“
Einnig er kennt öruggt utan-
umhald forrita og búnaðar í
rekstrarumhverfi fyrirtækja.
„Þar má nefna varnir og viðbrögð
við mögulegum innbrotum og
greining á atburðum, innleiðingu
öruggari tölvureksturs fyrirtækja
með sterkri fylgni við öryggis-
staðla og stefnur og viðeigandi
regluverk.“
Guðmundur kennir MS-500
áfangann (Microsoft 365 Security
Administration) sem er kenndur á
seinni önninni. „Í þessum áfanga
er farið yfir þær fjölmörgu lausnir
sem Microsoft býður upp á til að
styðja okkur í baráttunni að bættu
öryggi. Promennt er Microsoft-
vottaður fræðsluaðili og um leið
eina vottaða Microsoft-fræðslu-
fyrirtækið á Íslandi.“
Mikil eftirspurn eftir
netöryggissérfræðingum
Þeir eru sammála um að námið
bjóði upp á mjög góða atvinnu-
möguleika. „Öll fyrirtæki hafa
síðustu árin gefið öryggismálunum
aukið vægi. Því er mikil eftir-
spurn eftir starfsmönnum sem
hafa öryggisþekkingu, sérstaklega
á breiðum grunni,“ segir Guð-
mundur.
Sveinbjörn tekur undir orð hans.
„Þörfin á starfsfólki með þessa
þekkingu hefur aukist mikið þar
sem fyrirtæki skilja mikilvægi þess
að verja sig og reksturinn. Til þess
þarftu fólk með svona menntun. Ég
sé fyrir mér að þessi þekking verði
bráðum talin grunnþekking sem
við viljum sjá hjá öllu starfsfólki.“
Stöðug barátta sem klárast aldrei
Netöryggi er stöðug barátta sem
verður aldrei fullkomnuð að sögn
Guðmundar. Það komi stöðugt upp
nýjar ógnir og þar af leiðandi nýjar
lausnir til að bregðast við þeim
og fyrirbyggja skaða. „Störfum
tengdum upplýsingaöryggi
mun fjölga á næstu árum ásamt
kröfunni um að allt starfsfólk sé
með virka öryggishugsun.“
Sveinbjörn segir skort vera á
starfsfólki í dag með grunnþekk-
ingu í netöryggi og það gæti tekið
mörg ár að ráða í öll þau störf sem
verða á lausu. „Verkefnin sem við
sinnum í dag verða líklega mikið
breytt innan fárra missera. Það
koma nýjar þjónustur í umhverfi
okkar, nýr búnaður, aðstoð frá
gervigreind og annað sem við
sjáum ekki einu sinni núna. En við
munum alltaf þurfa gott starfs-
fólk með þekkingu og innsýn til
að vinna að þessum mikilvægu
verkefnum.“ n
Nánar á promennt.is.
Netöryggi ætti að vera grunnur fyrir alla sem vinna með tölvur, vélbúnað og hugbúnað enda hafa fá fyrirtæki efni á að hafa sérstaka netöryggisdeild, segja þeir Sveinbjörn Þormar og Guðmundur
Pétur Pálsson, aðalkennarar náms í netöryggi sem Promennt býður upp á og er hægt að stunda bæði í staðnámi og fjarnámi.
Ánægja með samstarfið
Við skipulagningu námsbrautar-
innar fékk Promennt með í lið
Fortinet sem er leiðandi fyrir-
tæki á heimsmarkaði í fram-
leiðslu og þjónustuveitingu
á net- og öryggislausnum.
„Fortinet er í samstarfi við
skólastofnanir á öllum skóla-
stigum um allan heim,“ segir
Sævar Haukdal sölustjóri. „Pro-
mennt og Fortinet undirrituðu
samstarfssamning sem gefur
Promennt aðgang að námsefni,
aðgengi að lausnum og ráðgjöf
í uppbyggingu á sérfræðinámi í
netöryggi.“
Hann segir fjölda netárása,
fjölbreytni og aukna skipu-
lagningu þeirra kalla á dýpri og
meiri þekkingu en áður. „Því er
nauðsynlegt að fjölga sérfræð-
ingum á þessu sviði. Rekstrar-
öryggi fyrirtækja er stefnt í
hættu á degi hverjum og því
miður höfum við séð dæmi um
fyrirtæki hér á landi sem lenda
í rekstrartruflunum og tapa
gögnum sem hefur veruleg áhrif
á rekstur þeirra og orðspor.“
Sævar áætlar að þörf sé á
milljónum sérfræðinga á þessu
sviði á heimsvísu. „Samstarfs-
aðilar okkar og viðskiptavinir
spyrja okkur reglulega hvort
við þekkjum til aðila sem þeir
geta ráðið í vinnu til að sinna
slíkum verkefnum. Við erum
því mjög ánægð að geta hafið
samstarf við Promennt með
það að markmiði að fjölga sér-
fræðingum hér á landi og hjálpa
fyrirtækjum og stofnunum að
takast á við netöryggisógnina
með réttri þekkingu.“
Þörfin á starfsfólki
með þessa þekk-
ingu hefur aukist mikið
þar sem fyrirtæki skilja
mikilvægi þess að verja
sig og reksturinn.
Sveinbjörn Þormar
2 kynningarblað A L LT 4. febrúar 2023 LAUGARDAGUR