Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 10
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
halldór
Frá degi til dags
Við vitum
alveg að
það er ekki
gott að í
samfélag-
inu okkar
sé fólk sem
vinnur og
vinnur og
fær fyrir
það laun
sem duga
ekki fyrir
nauð-
synjum.
Þetta
úrræði
væri val
fyrir þá for-
eldra sem
hafa tæki-
færi til að
vera áfram
heima eftir
fæðingar-
orlof.
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Starfsfólk leikskólanna er í óbærilegum aðstæðum.
Dag hvern er það að reyna að redda málum en mann-
ekla er slík að skipuleggja þarf skerðingar þjónustu
frá degi til dags. Þrátt fyrir ákall foreldra og leikskóla-
starfsfólks heyrist lítið frá meirihluta borgarstjórnar.
Fjöldi foreldra fær reglulega bréf frá leikskólastjórum
þar sem þeir lýsa ástandinu. Hér er brot úr einu slíku:
„Kæru foreldrar, okkur þykir það miður en við
þurfum að bregðast við og loka deildum eins og við
gerðum í síðustu viku. Vonandi fer þessu að linna, við
erum að reyna að gera okkar allra besta til þess að
auglýsa eftir fólki og skipta fólki sem er hér við störf á
milli deilda.“
Og niðurlag bréfsins er svona:
„Ég þakka ykkur kæru foreldrar fyrir þolinmæðina.
Við vitum að þetta er mjög erfitt fyrir ykkur. Því
er ekki annað að gera í stöðunni en að leggja fram
áætlun í hið minnsta næstu viku en hugsanlega
verðum við að halda þessu eitthvað áfram. Við ætlum
að halda áfram þessu plani og loka deildunum á sömu
dögum og í síðustu viku en það kemur sér best fyrir
okkur og við getum þá betur sinnt þörfum barnanna.“
Hversu lengi á starfsfólk að halda sjó í þessu ástandi
og hvernig eiga foreldrar að geta sinnt vinnu og námi?
Þetta er afleitt og ekki sést að mikið, ef nokkuð, sé
gert í málunum. Meirihlutinn hefur gefist upp en
hann er samt sá eini sem getur gert eitthvað enda sá
sem heldur utan um pyngju borgarsjóðs.
Það er ekki hægt að sinna öllum málum þegar
fjármálin eru á heljarþröm en það er hægt að for-
gangsraða í þágu daglegra þarfa borgarbúa. Flokkur
fólksins hefur ítrekað kallað eftir uppstokkun í
borgarkerfinu og að þjónusta við fólk verði sett í for-
gang.
Þriðjudaginn 7. febrúar er umræða um manneklu-
vandann í borgarstjórn að beiðni borgarfulltrúa
Flokks fólksins í tengslum við tillögu Flokks fólksins
um heimgreiðslur til foreldra sem eitt af úrræðum
í boði. Um er að ræða greiðslur til foreldra yngstu
barnanna á meðan beðið er eftir leikskólaplássi. Þetta
úrræði væri val fyrir þá foreldra sem hafa tækifæri
til að vera áfram heima eftir fæðingarorlof. Heim-
greiðsluúrræðið myndi því mögulega létta á álagi
vegna manneklu og stytta biðlista leikskólanna. n
Okkur þykir það miður
Kolbrún
Baldursdóttir
oddviti Flokks
fólksins í borgar-
stjórn Reykjavíkur
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Árið 1869 kom úr bókin Kúgun
kvenna eftir breska heimspek-
inginn John Stuart Mill. Í bókinni
sagði Mill stöðu kvenna undir valdi
og hefðum karlmanna og að sú
staða væri hvorki náttúruleg né eðlislæg. Mill
líkti valdi karlmanna yfir konum við það vald
sem þrælahaldari hafði yfir þræl sínum.
Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynja-
fræði við Háskóla Íslands, segir að marxískur
og sósíalískur femínismi hafi fléttað saman
stéttakúgun og kvennakúgun. Að kvenna-
kúgun sé afleiðing stéttakúgunar. Færi það
svo að stéttakúgun yrði útrýmt myndu konur
öðlast meiri völd.
Undanfarnar vikur höfum við lesið og
hlustað á fréttir um verkföll, stéttarfélög, skúr-
ingakonur, Sólveigu Önnu og launakjör. Annað
hvort stendur fólk með Sólveigu Önnu eða er á
móti henni. Annað hvort stendur þú með skúr-
ingakonum eða ekki. Allt þarf að vera svart eða
hvítt og andstæðurnar algjörar.
Í slíku umhverfi er erfitt að taka upplýstar
ákvarðanir og mynda sér raunverulegar skoð-
anir. Það er ekkert svigrúm til að skoða hlutina
út frá öllum hliðum og finna lausn.
En við vitum alveg að það er ekki gott að
í samfélaginu okkar sé fólk sem vinnur og
vinnur og fær fyrir það laun sem duga ekki fyrir
nauðsynjum. Við vitum líka að það er gott að í
samfélagi okkar séu til manneskjur, eins og Sól-
veig Anna, sem eru til í að berjast fyrir annað
fólk og kjörum þess. Eða það er allavega gott
fyrir suma.
Það er ekki þægilegt að hugsa til þess að
hér búi fólk sem á ekki peninga fyrir mat. Það
er miklu þægilegra að sitja bara í sínum vel-
lystingum og hundsa vandamálið. Ef þú situr
á veitingastað að borða blómkálssteik og sötra
Pinot Noir er ekkert sérlega þægilegt að vera að
velta fyrir sér hvernig einhver manneskja redd-
aði mat fyrir börnin sín í kvöld. En við hljótum
þó að þurfa að gera það.
Síðustu vikur hefur fjöldi fólks, og þá sérstak-
lega karlar, ekki átt í neinum vandræðum með
að grípa fram fyrir hendurnar á konunni sem
lætur sig skúringakonurnar varða, selja sam-
félaginu þá hugmynd að hún hafi ekki stuðning
félagsmanna sinna og sé að búa til úlfalda úr
mýflugu.
Getur skýringin verið sú að ef við förum að
hugsa of mikið um þau sem neðst eru í sam-
félaginu og auka réttindi þeirra þá minnka rétt-
indi annarra? Minni stéttakúgun=meiri völd
til kvenna. Meiri völd til kvenna=minni völd til
karla. Nei, ég bara spyr … n
Stéttakúgun
í fyrirrúmi
benediktboas@frettabladid.is
Villta vestrið
Skýrsla um sjókvíaeldi sýnir
veikburða stjórnunarhætti þar
sem allt er eins ömurlegt og
hugsast getur. Ef svona myndi
birtast um eitthvert einkafyrir-
tæki myndu hausar fjúka. Það er
pottþétt. „Stjórnsýsla og eftirlit
með sjókvíaeldi hafa reynst
veikburða og brotakennd og
vart í stakk búin til að takast á
við aukin umsvif greinarinnar
á síðustu árum,“ segir meðal
annars í skýrslunni. En þar sem
þetta eru ríkisstarfsmenn þá
þarf enginn að hafa áhyggjur.
Það er nefnilega ekki hægt að
reka viðkomandi af því að sá eða
sú er ríkisstarfsmaður. Þeir mega
bara skemma og eyðileggja nátt-
úru. Það er talið vera í lagi.
Enginn glaður
Það sem er samt merkilegt er
að samkvæmt skýrslunni er
enginn sáttur eins og staðan er
núna. Hvorki hagsmunaaðilar,
viðkomandi ráðuneyti né þær
stofnanir sem koma að stjórn-
sýslu. Ekkert þeirra er glatt
enda segir í skýrslunni að þetta
sé stefnulaus uppbygging og
rekstur sjókvía á svæðum sem
vinna gegn því að auðlindin skili
hámarks ávinningi fyrir ríkis-
sjóð hefur fest sig í sessi. Þá er
ekkert formlegt samstarf ráðu-
neyta umhverfis og matvæla. Og
kaflinn um Hafró þar sem starfs-
menn átu upp lífmassa-kenn-
ingu hagsmunaaðila. Hann er
ekki einu sinni fyndinn heldur
bara ömurlegur. n
10 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 7. FeBRúAR 2023
ÞRIðJuDAGuR