Fréttablaðið - 07.02.2023, Side 35

Fréttablaðið - 07.02.2023, Side 35
Sýningin snýst um nýlendustefnu og kynþáttaofbeldi og hugmyndir um sjálfs- mynd og flókið sam- band okkar við upp- runa og arfleifð. Daría Sól Andrews TónlisT Sinfóníuhljómsveit Íslands Verk eftir Vänskä, Weill og Mendelssohn Einleikari: Erin Keefe Stjórnandi: Osmo Vänskä Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 2. febrúar Jónas Sen Sönglögin eftir Kurt Weill eru mörg hver fjarskalega falleg, eins og You- kali, sem er í eins konar tangóstíl og fjallar um útópíu fullkominnar hamingju. Lagið er grípandi, í hefðbundnum stíl dúr- og moll- tóntegunda. Weill er þekktastur fyrir leikhústónlist sína, og þar gengur yfirleitt ekki að tónlistin sé of framúrstefnuleg eða f lókin. Við allt annan tón kvað á tón- leik u m Sinfóníu hljómsveit a r Íslands á fimmtudagskvöldið, en þá var f luttur konsert fyrir fiðlu og blásara eftir Weill. Tónmálið var talsvert meira framandi en maður á að venjast, laglínurnar nokkuð ómstríðar og hljómarnir annar- legir. Stemningin var alvarleg og verkið var spennandi áheyrnar. Auðvelt var að detta inn skáld- skapinn sem lá þar til grundvallar, og kallaði hann fram alls konar myndir upp í hugann. Framvindan í tónlistinni var lokkandi, sífellt var eitthvað áhugavert að gerast, og lit- brigðin margræð og seiðandi. Safaríkur fiðluleikur Flutningurinn var líka f lottur. Erin Keefe var einleikarinn og fiðlan hljómaði prýðilega í hönd- um hennar. Tónarnir voru fallega mótaðir og safaríkir og samspilið við hljómsveitina var nákvæmt. Konsertinn gerir miklar kröfur til einleikara og hljómsveitar, og sú síðarnefnda stóðst þær ágætlega. Alls konar fínlegar tónahendingar og hljómar voru snyrtilega útfærðir og stígandin í samspili einleikara og hljómsveitar var þétt og hnit- miðuð. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Osmo Vänskä, sem er okkur Íslendingum að góðu kunnur. Hann stjórnaði einnig verki eftir sig sjálfan, forleik sem var fyrsta atriði efnisskrárinnar. Forleikurinn var skreyttur fjölbreyttum slagverks- leik og var saminn, svo vitnað sé í tónleikaskrána, „sem nokkurs konar fylgirödd við fiðlukonsert Kurts Weill …“ án þess að það væri nánar útskýrt eða væri auðheyrt á tónleikunum. Forleikurinn var í öllu falli húmorískur og mjög ólíkur áðurnefndu tónsmíðinni. Stemningin var líf leg og tilvitnunin í fimmtu sinfóníu Beethovens var skondin. Glæsilegir hápunktar Síðasta verkið á efnisskránni var sin- fónía nr. 3 eftir Mendelssohn. Hún er kölluð „Hin skoska“ og er innblásin af ferðalagið tónskáldsins þar á bæ. Þetta er afskaplega rómantísk tón- list, andrúmsloftið er höfugt, stefin ómþýð og hápunktarnir glæsilegir. Hún ristir þó ekki sérlega djúpt, ekk- ert frekar en svo margt annað eftir tónskáldið. En hljómsveitin spilaði hana vel, mismunandi hljóðfæra- hópar voru pottþéttir á sínu og heildarhljómurinn einbeittur og munúðarfullur þegar við átti. Túlk- unin var sannfærandi, hið ljóðræna var vel framsett og glæsilegu kafl- arnir voru tilkomumiklir. Útkoman var í fremstu röð. n niðursTaða: Vandaðir og spennandi tónleikar. Leikhústónskáld sýndi á sér aðra hlið Finnski hljóm- sveitarstjórinn Osmo Vänskä stjórnaði Sin- fóníuhljómsveit Íslands síðasta fimmtudag. Mynd/AðSEnd Í sýningunni Að rekja brot í Gerðarsafni má meðal annars sjá verk innblásin af lögreglu- ofbeldi gegn svörtum Banda- ríkjamönnum og innsetningu byggða á móður listamanns- ins sem lifði af atómsprengj- una í Hiroshima. tsh@frettabladid.is Samsýningin Að rekja brot var opnuð í Gerðarsafni í síðustu viku en í henni má sjá verk listamanna víða að úr heiminum. Verk þeirra eiga það sameiginlegt að rannsaka flókna sögu nýlendu- og kynþátta- of beldis, gagnrýna og endurskrifa frásagnir um kúgun og eignarnám og endurheimta hugtök eins og yfir- vald og fórnarlamb. Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Abdullah Qureshi, Frida Orupabo, Hugo Llanes, Inu- uteq Storch, Kathy Clark og Sasha Huber. Uppruni og arfleifð „Sýningin snýst um nýlendustefnu og kynþáttaof beldi og hugmyndir um sjálfsmynd og flókið samband okkar við uppruna og arfleifð. Síðan líka um efniskennd, það er mjög mikilvægt í sýningunni, hvernig efniskennd tengist ferli listamann- anna, því það er mjög fjölbreytt,“ segir Daría Sól Andrews sýningar- stjóri. Finnst þér umfjöllunarefnin eiga erindi á Íslandi árið 2023? „Já, mér finnst sýningin mjög mikilvæg á þessum tímapunkti á Íslandi í dag þegar kemur að fjöl- breytileika á Íslandi og fólki sem kemur frá mismunandi löndum og kynþáttafordómum. Mér finnst vanta að fjalla meira um þetta, sér- staklega í listheiminum, og auka sýnileika listamanna af erlendum uppruna. Það er byrjað að fjalla um þessi málefni en það vantar ennþá upp á, þannig að sem sýningarstjóri finnst mér mjög mikilvægt að gera það sem ég get til að taka skref í þessa átt, bæta sýnileikann og auka tækifærin fyrir okkur sem erum brún eða frá mismunandi löndum.“ Notast við heftibyssu Sasha Huber er einn þeirra lista- manna sem taka þátt í Að rekja brot. Sasha er listamaður af sviss- nesk-haítískum uppruna, er búsett í Helsinki og vinnur með ólíka miðla í list sinni. Ein af hennar þekktustu aðferðum er að nota loftheftibyssu sem hún notar til að búa til málverk og skúlptúra úr heftum. „Ég byrjaði að vinna með þetta árið 2004. Á þeim tíma gerði ég tilraunir um hvernig hægt væri að vinna með þetta tæki, ég fékk hug- myndina í meistaranámi mínu og áttaði mig síðan á því að þetta væri eiginlega eins og vopn. Hljóðið sem heftibyssan gefur frá sér og svo þarf maður að vernda bæði eyru sín og augu þegar maður notar hana. Mér fannst vera mikill táknrænn kraftur í þessu verkfæri.“ Sasha segist hafa nýtt táknrænan kraft heftibyssunnar til að takast á við þemu á borð við kynþátta- hyggju og valdaójafnvægi. „Til að byrja með snerist þetta að miklu leyti um að skjóta til baka með því að draga upp mynd af fólki sem olli miklum skaða með nýlendustefnunni. Þetta á sér rætur að rekja í arf leifð móður minnar, sem er frá Haítí. Síðar breyttist þessi aðferðafræði yfir í það að sauma saman sár nýlenduhyggjunnar. Með heftunum er ég á vissan hátt ég að sauma saman þessi sár, hlúa að þeim og reyna að græða þau,“ segir hún. Heiðrar minningu svartra Í einu af verkum Söshu á sýningunni Að rekja brot er hún búin að hefta mynd af hjarta á hvítt skothelt vesti. „Þetta er úr seríu sem heitir This is America og fjallar lögreglu ofbeldi gagnvart svörtum Bandaríkja- mönnum. Þetta verk heiðrar minn- ingu Ahmaud „Maud“ Arbery sem var hundeltur og skotinn til bana af þremur rasistum á meðan hann var úti að skokka í hvítum stutterma- bol. Eftir að þetta gerðist fór mikið af fólki út að skokka í hvítum bolum til að minnast hans.“ Á sýningunni er einnig til sýnis andlitsmynd eftir Söshu af banda- rísku listakonunni Edmonia Lewis. Verkið er partur af seríunni The Firsts sem samanstendur af verk- um af svörtum frumkvöðlum sem máluð eru með heftibyssu á svartar hljóðeinangrandi plötur. „Sú sem við sjáum hér er Edmonia Lewis, hún var listamaður og myndhöggvari sem f luttist frá New York til Rómar árið 1866 því hún heillaðist af listinni þar. Hún var afrísk-amerísk af haítískum og innfæddum uppruna og varð einn fyrsti svarti listamaðurinn í Róm.“ Sasha k veðst aðallega gera myndir af svörtum einstaklingum sem hösluðu sér völl í hvítum sam- félögum Evrópu á 19. og 20. öld en hún hefur þó einnig gert myndir af núlifandi fólki á borð við Jani Toi- vola, fyrsta svarta manninum sem kosinn var á finnska þingið árið 2011. Lifði af atómsprengjuna Kóresk-ameríski listamaðurinn Kathy Clark hefur verið búsett á Íslandi um áraraðir. Á sýningunni Að rekja brot sýnir Kathy stóra inn- setningu sem er byggð á lífsreynslu móður hennar sem lifði af atóm- sprengjuna í Hiroshima 1945. „Móðir mín er kóresk en fluttist til Japan sem ung stúlka. Hún ólst þar upp og lærði japönsku og man ekki mikið af kóreskunni. Fjöl- skylda hennar fluttist þangað vegna fjárhagslegra aðstæðna, það var um það leyti sem Kórea var hersetin af Japönum og fjölskylduna vantaði vinnu þannig að þau fluttu til Japan eins og margir Kóreubúar gerðu á þeim tíma,“ segir Kathy. Í innsetningunni segir Kathy söguna af hinum örlagaríka degi 6. ágúst 1945 þegar Bandaríkjamenn vörpuðu tveimur kjarnorkusprengj- um á borgirnar Hiroshima og Naga- saki í Japan til að binda enda á síðari heimsstyrjöldina. „Til að vinna sér inn pening fóru amma mín og mamma út í sveit, gengu á milli bóndabæja og keyptu hluti frá bændunum til að selja á markaðnum. Mamma mín var held ég 15–16 ára um þetta leyti, hún tók lestina til Hiroshima sama dag og atómsprengjunni var varpað,“ segir hún. n nánar á frettabladid.is Tekist á við nýlendustefnu og kynþáttafordóma Svissnesk-haítíski listamaðurinn Sasha Huber, sýningarstjórinn Daría Sól Andrews og kóresk-bandaríski listamaður- inn Kathy Clark taka allar þátt í sýningunni Að rekja brot í Gerðarsafni. FréttAblAðið/Anton brink Innsetning Kathy Clark er byggð á reynslu móður hennar sem lifði af atómsprengjuna í Hiroshima í Japan árið 1945. FréttAblAðið/Anton brink FréTTabLaðið menning 197. Febrúar 2023 ÞRiÐJUDAgUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.