Fréttablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 11
Svo getur settur ríkis-
endurskoðandi endur-
sent erindið til Alþing-
is í 63 eintökum, sem
sérstaklega eru merkt
hverjum þingmanni.
Hvergi í
lögum er
heimild til
þingforseta
að leggja
mat á hvort
erindi er
þess eðlis
að enginn
nema hann
sjálfur
megi lesa
það.
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Fyrir réttri viku birtist furðufrétt
á Vísi. Settur ríkisendurskoðandi
kvartar þar undan því að Alþingi
hafi ekki birt greinargerð, sem hann
í krafti embættisbréfs sendi þinginu
fyrir margt löngu.
Ræður á Alþingi um þessa óbirtu
greinargerð eru svo skáldsögu lík-
astar.
Íslandsklukkan
Í Íslandsklukkunni greinir frá
gömlum manni, sem kom á Þingvöll
innan úr hrauni fáum dögum eftir
þinglausnir. Hann sagði við bífal-
íngsmann konungs: „Skaparinn er
nú samt sá sem ræður.“ Þegar kon-
ungsmaður sagðist hafa bréf upp á
vald sitt sagði sá gamli: „Og það er
nú margt bréfið.“
Bréf konungsfulltrúans fékk
honum vald til að taka gamla kopar-
klukku á Lögréttuhúsinu á Þing-
völlum og flytja í fjárhirslu konungs.
Embættisbréf setts ríkisendur-
skoðanda felur honum að athuga
sölu ríkiseigna í Lindarhvoli og
flutning þeirra verðmæta yfir í fjár-
hirslu fjármálaráðherra og bréfa svo
til Alþingis það sem honum finnst
vera satt og rétt um þá hluti.
Skipulag
Árið 2023 er eðlilegt að spurt sé:
Hvernig má það vera að erindi sent
Alþingi Íslendinga sé ekki talið eiga
erindi til þess? Og hver getur dæmt
í þeirri sök?
Samk væmt þingskapalögum
hefur forseti Alþingis það hlutverk
að taka við og opna bréf sem þing-
inu berast. Hann skal einnig greina
frá þeim á þingfundi.
Ákvæði þetta er sett í þingsköp til
að koma í veg fyrir vandræðagang.
Allir sjá hversu skoplegt það væri ef
allir þingmenn vildu opna bréfin.
Hitt væri svo grátbroslegt ef enginn
þeirra teldi sér bera skyldu til þess.
Ákvæðið hefur ekki annan tilgang
en að hafa reglu og skipulag á þessu
handverki.
Valdmörk
Erindi sem send eru Alþingi eru
send öllum alþingismönnum. Þau
eru þannig birt þjóðinni. Hvergi í
lögum er heimild til þingforseta
að leggja mat á hvort erindi er þess
eðlis að enginn nema hann sjálfur
megi lesa það.
Öll erindi sem Alþingi berast eru
opinber skjöl, nema sendandi hafi
með heimild í lögum mælt fyrir um
annað.
Setji þingforseti erindi í leyndar-
skjalasafn án heimildar sendanda
fer hann út fyrir valdheimildir
sínar.
Berist Alþingi eitt bréf frá ríkis-
endurskoðanda og annað frá sett-
um ríkisendurskoðanda um sama
mál er ekkert við því að gera þótt
það bæti litlum upplýsingum við
eða virki ruglingslegt.
Ábyrgðin
Í lögum um ríkisendurskoðanda eru
ákvæði, sem leggja á hans herðar að
meta hvort tilteknar upplýsingar
skulu bundnar trúnaði vegna ann-
arra lögvarinna hagsmuna. Þá
ábyrgð ber hann og enginn annar.
Settur ríkisendurskoðandi hefur
sömu sjálfstæðu stöðu.
Í þessu máli vill svo til að ríkis-
endurskoðandi, sem tók við emb-
ætti af þeim sem vék sæti við athug-
Það er margt bréfið
un á Lindarhvoli, lauk málinu með
skýrslu. Hann virðist jafnframt hafa
látið þá skoðun í ljós að ekki eigi að
birta greinargerð setts ríkisendur-
skoðanda.
R ík isendu rskoðandi sendir
Alþingi sína skýrslu. Hann hefur
hins vegar enga lagaheimild til að
leggja dóm á greinargerð setts sjálf-
stæðs ríkisendurskoðanda og því
síður að ákveða að þar sé eitthvað,
sem leynt eigi að fara. Það getur
settur ríkisendurskoðandi einn.
Réttvísin
Geymi greinargerð setts ríkisendur-
skoðanda upplýsingar, sem leynt
eiga að fara lögum samkvæmt, var
það brot fullframið um leið og hann
setti bréfið í póst.
Forseti Alþingis getur ekki afstýrt
því eftir á frekar en pósturinn.
Samkvæmt stjórnskipunarlögum
um þrískiptingu valdsins er það
hlutverk réttvísinnar, lögreglu og
saksóknara, að meta hvernig með
skuli fara þegar verknaður er full-
framinn.
Ráð
Í frétt Vísis spyr settur ríkisendur-
skoðandi hvernig hann geti náð
rétti sínum. Tvennt sýnist vera til
ráða:
Sérhver þingmaður á sama rétt og
þingforseti til að lesa erindið. Það er
til þeirra allra.
Svo getur settur ríkisendurskoð-
andi endursent erindið til Alþingis
í 63 eintökum, sem sérstaklega eru
merkt hverjum þingmanni.
Settur ríkisendurskoðandi hefur
bréf upp á það sem honum ber að
gera að lögum og upplýsa Alþingi.
Í sögunni á Þingvöllum vék vísan
gamals manns í alvald skaparans
fyrir bréfi, þótt sjálf Íslandsklukkan
ætti í hlut. n
Tilkynna þarf um þátttöku á aðalfundinum eigi síðar en
sunnudaginn 5. mars 2023 með tölvupósti á netfangið
ir@ossur.com. Hluthafar geta nálgast dagskrá fundarins,
fundargögn og nánari upplýsingar um aðalfundinn á
heimasíðu Össurar: www.ossur.com/investors/AGM.
Til að geta tekið þátt í aðalfundinum og/eða nýtt
atkvæðisrétt sinn, þurfa hluthafar að vera skráðir
undir eigin nafni í hlutaskrá Össurar eða framvísa
fullnægjandi staðfestingu á eignarhlut sínum frá
þeirri fjármálastofnun sem er með hlutabréf þeirra í
vörslu á safnreikningi. Hluthafar eru hvattir til að afla
staðfestingar frá vörsluaðila sínum sem fyrst ef við á.
Skráðum hluthöfum er boðið að mæta á aðalfundinn
sem verður streymt frá höfuðstöðvum Össurar
að Grjóthálsi 5, 110 Reykjavík. Umræður og
atkvæðagreiðslur munu fara fram með rafrænum hætti.
Aðalfundur Össurar hf.
verður haldinn með rafrænum hætti
föstudaginn 10. mars 2023 kl. 09:00.Aðalfundur Össurar hf.
2023
Fréttablaðið sKoðun 1123. Febrúar 2023
FIMMTuDAGuR