Fréttablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. thordisg@frettabladid.is „Ætli mér sé ekki best lýst sem nokkuð margbrotnum karakter. Ég á það til að koma fólki á óvart því oft og tíðum hefur fólk myndað sér fyrir fram skoðanir á því hvaða mann ég hafi að geyma. Eflaust er ég misskilinn út af ásjónu minni, en þegar fólk kynnist mér kemur í ljós að ég er allt annar en það heldur. Þar að auki er ég með massíft „resting bitch face“ sem getur ruglað fólk. Ég reyni að koma vel fram við alla, en fólk ætti þó ekki að taka því sem veikleika því það er alls ekki hægt að vaða yfir mig. Ég veit hvað ég vil og er mjög ákveðinn; alls enginn bullukollur og segi hlutina eins og þeir eru.“ Þetta segir Viktor Andersen, 33 ára Seyðfirðingur og hjúkrunar- fræðingur. „Ég er einkabarn en á tvö hálf- systkin sem fæddust löngu á eftir mér. Ég var alinn upp af einstæðri móður minni og ömmu, en hef líka alltaf átt góð tengsl við föður minn. Mamma og amma voru vanar að hafa mig vel til- hafðan og ég man eftir mér fimm ára í Viktor var kos- inn best klæddi nemandinn í menntaskóla, þrjú ár í röð. Hann elskar að klæðast rúllu- kragabolum og gervipelsum og þykir einna vænst um Adidas vintage- fötin sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR skyrtu og vesti við fínni tilefni. Ég var líka oftar en ekki settur í svarta eða hvíta rúllukragapeysu sem hefur fylgt mér inn í fullorðins- árin, og var yfirleitt vatnsgreiddur þegar og ef ég leyfði því að vera í friði.“ Með stóran persónuleika Viktor er spurður hvort fötin skapi manninn. „Nei, ég hef aldrei verið sammála því orðatiltæki. Það er persónan sem skapar manninn. Vitaskuld er hægt að tjá sig með klæðaburði, en það segir ekkert til um það hvaða mann fólk hefur að geyma. Maður getur því verið flottasta týpa í heimi en samt algjör skíthæll. Þess vegna þarf að horfa dýpra en bara á yfirbragð fólks,“ svarar Viktor. Í menntaskóla var hann kosinn sá best klæddi þrjú ár í röð. „Ég er allt frá „posh spice“ til „sport spice“. Ég nýt þess að vera fínn til fara og klæða mig upp á við öll tilefni. Ég er mjög mikið í „preppy country club“-stíl en líka í sportlegum stíl. Ég elska einlitan fatnað og lifi fyrir flotta gervipelsa, en það sem einkennir mig eru rúllukragapeysur. Sé ég í vafa er rúllukragapeysa alltaf öruggt val. Ég kaupi sjaldan litríkan fatnað, frekar hvítan, svartan, gráan og brúnan. En ég elska að tjá mig með mismunandi hætti og finnst gaman að ögra staðalímyndum, er oft að „genderbenda“ hlutina og ekki þekktur fyrir að sigla á milli skers og báru.“ Viktor er með sex húðflúr. „Eitt þeirra er portrett af ömmu, sem mér þykir rosalega vænt um. Svo er ég meira gull en silfur í skarti, og elska perlur. Ég á eitt úr sem ég hef notað í sjö ár og verið nægjusamur með það. Ég nota hringi lítið sem ekkert. Það skrifast á hjúkkuna í mér, því þar safnast sýklarnir,“ segir Viktor. Í fataskápnum eru Moschino- inniskórnir í mestu dálæti. „Þeir eru dæmigerðir fyrir mitt lúkk og öskra Viktor Andersen,“ segir Viktor og hlær. Hann notar ilminn Super Cedar frá Byredo. „Ég er mjög kresinn á ilm- vötn, var lengi að ákveða þennan ilm og það þarf mikið til að mér finnist ilmur góður.“ Honum líður best í svartri rúllukragapeysu við svartar buxur og hvíta strigaskó. „Það er mitt lúkk í grunninn. Ég er þó oftast það fínn að fólk tekur eftir mér og ég sker mig úr fjöldanum, ekki bara út af fötunum heldur líka því hvernig ég mála mig og hef mig til. Svo er ég með stóran persónuleika sem fer ekki fram- hjá neinum,“ segir Viktor sem sannarlega fangar augað. Besta tískuráðið sem honum hefur hlotnast er: „Ef þú ert í vafa, hafðu hlutina einfalda og veldu svart. Yngri hefði ég þó viljað vera meðvitaðri um gæði og að kaupa ekki drasl sem eyðileggst strax. Ég klæddi mig oftast vel sem unglingur en stundum leit ég út eins og ódýr mella á djamminu. Það er stíll sem ég færi aldrei aftur í og var mjög druslulegur.“ Viktor kveðst vera alæta á ákveðin tísku- tímabil. „Ég elska níunda og tíunda áratuginn, og finnst margt flott frá árunum eftir 1950 og 1920. Mér finnst „old money“-fílingur líka mjög töff.“ Spurður hvaða frægu mann- eskju hann dreymir um að fara í búðaráp með, svarar Viktor: „Það væri fatahönnuðurinn Dorit Kemsley úr Real Housewives of Beverly Hills. Hún klæðir sig mjög vel og er alltaf með réttu múnderinguna tilbúna fyrir hvert tilefni. Lúkkið er útpælt frá A til Ö.“ Ég skipti máli-tilfinningin Viktor útskrifaðist úr hjúkr- unarfræði frá Háskóla Íslands á dögunum. „Ég lærði hjúkrunarfræði því ég vil hafa alvöru tilgang í þessu lífi fyrir sjálfan mig. Ég vil leggja mitt af mörkum til samfélagsins og líða eins og ég sé að bæta við gæðum í þetta líf. Þegar ég var ekki að vinna á hjúkrunarheimili eða Landspítalanum fannst mér ég ekki vera að sinna mínum tilgangi. Starfinu fylgir svo mikil vellíðan, að geta hjálpað öðrum eins vel og manni er unnt. Ég hlakka því alltaf til að fara í vinnuna og leggja mitt af mörkum. Þá upplifi ég þessa „ég skipti máli“-tilfinningu,“ segir Viktor, sæll í sínu starfi. Spurður um styrkleika sína sem hjúkrunarfræðingur, svarar Viktor: „Ég hef mjög gott auga fyrir smáatriðum og því að sjá hverjar þarfir einstaklingsins eru, en þar er margt sem þarf að huga að. Ég mynda jafnframt alltaf góð tengsl og samskipti við aðstandendur og reyni að mæta þeim þar sem þeir eru, því ég tel mig vera skilnings- ríkan einstakling.“ Útskriftin úr HÍ eru ekki einu tímamótin í lífi Viktors því nú hefur hann loksins meiri tíma til að huga að eigin heilsu. „Mig langar að verða besta útgáfan af sjálfum mér en til að ná því markmiði þarf ég kannski að líta aðeins inn á við og taka ábyrgð á sjálfum mér. Ég elska lífið og er þakklátur fyrir það og fólkið mitt í því. Ég er rosalega heppinn með vini og fjölskyldu, og er í drauma- starfinu. Eins og aðrir á ég mín vandamál og hata að tala um þau en ég er að reyna að læra að opna mig betur fyrir fólki og taka niður veggina. Ég er því bjartsýnn á komandi tíma og hlakka til fram- tíðarinnar og þess sem hún ber í skauti sér. Það er svo margt sem mig langar að gera en núna er ég að njóta þess að vinna í fullu starfi á hjarta-, lungna- og augnskurða- deild Landspítalans.“ Vildi verða ýktari í útliti Viktor hefur verið ófeiminn að sýna hvernig hann hefur látið eiga við eitt og annað í andliti sínu. „Fæstir munu skilja hvers vegna ég fór þessa leið, en ég vil ekki vera náttúrulegur í útliti. Þetta er bara ákveðin yfirlýsing og það að leggj- ast undir hníf lýtalækna tengist ekki hækkandi aldri, enda var ég bara sautján ára þegar ég vildi verða ýktari í útliti. Þetta snýst því um að breyta ásýnd minni, en ekki að halda í æskuna,“ útskýrir Viktor í einlægni. Hann kveðst sáttur við spegil- mynd sína. „Margir halda að ég eigi við vandamál að stríða og það hljóti að vera af andlegum toga úr því ég er að þessu, en það er ekki raunin. Ég hef viljað þetta síðan ég vissi hvað lýtalækningar voru. Ég er því mjög sáttur með hvernig ég lít út núna, en ég vil miklu meira og hef nú meiri tíma til að fara í þær aðgerðir sem ég stefni að á komandi tímum.“ Í upphafi lýtaaðgerðanna segist Viktor ekki hafa haft ákveðið and- lit í huga. „Nei. Ég var aldrei að reyna að vera annar eða sækjast eftir útliti annarra. Ég vildi bara ýktara útlit sem hentar mínu andliti og hug- myndunum sem ég hafði í huga.“ Hann segir líf sitt hafa breyst til batnaðar eftir að hann ákvað að láta breyta andliti sínu. „Já, því í dag er ég sáttari með sjálfan mig og finnst ég vera í meira samræmi við minn innri mann og hvernig ég vil tjá mig útlitslega séð. Ekki að það skipti máli, en að auki er ég nú að fá miklu meiri athygli frá strákum. Kannski það sé vegna aukins sjálfstrausts míns sem fylgdi í kjölfar útlitsbreytinganna sem ég hef farið í gegnum,“ segir Viktor. Í starfi sínu á Landspítala og á hjúkrunarheimilum áður segist Viktor alltaf hafa fengið góð við- brögð við útliti sínu. „Ég hef aldrei orðið fyrir for- dómum né fengið neikvætt viðmót vegna útlits míns. Ég hef fengið meiri gagnrýni á húðflúrin mín frá eldri kynslóðinni, en samt sárasjaldan, og fáeinar eldri konur hafa spurt út í varirnar mínar. Mér er alltaf tekið vel. Í vinnunni er ég reyndar miklu minna málaður svo kannski er ekki alltaf tekið eftir því, en ég hef aldrei fengið athuga- semdir um það. Bara um hversu sætur ég sé,“ segir Viktor og hefur gaman af. n Margir halda að ég eigi við vandamál að stríða úr því ég er að þessu, en það er ekki raunin. Ég hef viljað þetta síðan ég vissi hvað lýtalækningar eru. 2 kynningarblað A L LT 23. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.