Fréttablaðið - 23.02.2023, Síða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
thordisg@frettabladid.is
„Ætli mér sé ekki best lýst sem
nokkuð margbrotnum karakter. Ég
á það til að koma fólki á óvart því
oft og tíðum hefur fólk myndað
sér fyrir fram skoðanir á því hvaða
mann ég hafi að geyma. Eflaust er
ég misskilinn út af ásjónu minni,
en þegar fólk kynnist mér kemur
í ljós að ég er allt annar en það
heldur. Þar að auki er ég með
massíft „resting bitch face“ sem
getur ruglað fólk. Ég reyni að koma
vel fram við alla, en fólk ætti þó
ekki að taka því sem veikleika því
það er alls ekki hægt að vaða yfir
mig. Ég veit hvað ég vil og er mjög
ákveðinn; alls enginn bullukollur
og segi hlutina eins og þeir eru.“
Þetta segir Viktor Andersen, 33
ára Seyðfirðingur og hjúkrunar-
fræðingur.
„Ég er einkabarn en á tvö hálf-
systkin sem fæddust löngu á eftir
mér. Ég var alinn upp
af einstæðri móður
minni og ömmu, en
hef líka alltaf átt góð
tengsl við föður
minn. Mamma
og amma voru
vanar að hafa
mig vel til-
hafðan og ég
man eftir mér
fimm ára í
Viktor var kos-
inn best klæddi
nemandinn í
menntaskóla,
þrjú ár í röð.
Hann elskar að
klæðast rúllu-
kragabolum og
gervipelsum
og þykir einna
vænst um
Adidas vintage-
fötin sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
skyrtu og vesti við fínni tilefni. Ég
var líka oftar en ekki settur í svarta
eða hvíta rúllukragapeysu sem
hefur fylgt mér inn í fullorðins-
árin, og var yfirleitt vatnsgreiddur
þegar og ef ég leyfði því að vera í
friði.“
Með stóran persónuleika
Viktor er spurður hvort fötin skapi
manninn.
„Nei, ég hef aldrei verið sammála
því orðatiltæki. Það er persónan
sem skapar manninn. Vitaskuld er
hægt að tjá sig með klæðaburði, en
það segir ekkert til um það hvaða
mann fólk hefur að geyma. Maður
getur því verið flottasta týpa í
heimi en samt algjör skíthæll. Þess
vegna þarf að horfa dýpra en bara
á yfirbragð fólks,“ svarar Viktor.
Í menntaskóla var hann kosinn
sá best klæddi þrjú ár í röð.
„Ég er allt frá „posh spice“ til
„sport spice“. Ég nýt þess að vera
fínn til fara og klæða mig upp á
við öll tilefni. Ég er mjög mikið í
„preppy country club“-stíl en líka
í sportlegum stíl. Ég elska einlitan
fatnað og lifi fyrir flotta gervipelsa,
en það sem einkennir mig eru
rúllukragapeysur. Sé ég í vafa er
rúllukragapeysa alltaf öruggt val.
Ég kaupi sjaldan litríkan fatnað,
frekar hvítan, svartan, gráan og
brúnan. En ég elska að tjá mig
með mismunandi hætti og finnst
gaman að ögra staðalímyndum,
er oft að „genderbenda“ hlutina og
ekki þekktur fyrir að sigla á milli
skers og báru.“
Viktor er með sex húðflúr.
„Eitt þeirra er portrett af ömmu,
sem mér þykir rosalega vænt um.
Svo er ég meira gull en silfur í
skarti, og elska perlur. Ég á eitt úr
sem ég hef notað í sjö ár og verið
nægjusamur með það. Ég nota
hringi lítið sem ekkert. Það skrifast
á hjúkkuna í mér, því þar safnast
sýklarnir,“ segir Viktor.
Í fataskápnum eru Moschino-
inniskórnir í mestu dálæti.
„Þeir eru dæmigerðir fyrir
mitt lúkk og öskra Viktor
Andersen,“ segir Viktor og
hlær.
Hann notar ilminn
Super Cedar frá Byredo.
„Ég er mjög kresinn á ilm-
vötn, var lengi að ákveða
þennan ilm og það þarf
mikið til að mér finnist
ilmur góður.“
Honum líður best í
svartri rúllukragapeysu
við svartar buxur og
hvíta strigaskó.
„Það er mitt lúkk í
grunninn. Ég er þó oftast
það fínn að fólk tekur
eftir mér og ég sker mig
úr fjöldanum, ekki bara
út af fötunum heldur líka
því hvernig ég mála mig og
hef mig til. Svo er ég með stóran
persónuleika sem fer ekki fram-
hjá neinum,“ segir Viktor sem
sannarlega fangar augað.
Besta tískuráðið sem honum
hefur hlotnast er:
„Ef þú ert í vafa, hafðu hlutina
einfalda og veldu svart. Yngri
hefði ég þó viljað vera meðvitaðri
um gæði og að kaupa ekki drasl
sem eyðileggst strax. Ég klæddi
mig oftast vel sem unglingur en
stundum leit ég út eins og ódýr
mella á djamminu. Það er stíll
sem ég færi aldrei aftur í og
var mjög druslulegur.“
Viktor kveðst vera
alæta á ákveðin tísku-
tímabil.
„Ég elska níunda og
tíunda áratuginn, og
finnst margt flott frá
árunum eftir 1950 og 1920.
Mér finnst „old money“-fílingur
líka mjög töff.“
Spurður hvaða frægu mann-
eskju hann dreymir um að fara í
búðaráp með, svarar Viktor:
„Það væri fatahönnuðurinn
Dorit Kemsley úr Real Housewives
of Beverly Hills. Hún klæðir sig
mjög vel og er alltaf með réttu
múnderinguna tilbúna fyrir hvert
tilefni. Lúkkið er útpælt frá A til Ö.“
Ég skipti máli-tilfinningin
Viktor útskrifaðist úr hjúkr-
unarfræði frá Háskóla Íslands á
dögunum.
„Ég lærði hjúkrunarfræði því
ég vil hafa alvöru tilgang í þessu
lífi fyrir sjálfan mig. Ég vil leggja
mitt af mörkum til samfélagsins
og líða eins og ég sé að bæta við
gæðum í þetta líf. Þegar ég var ekki
að vinna á hjúkrunarheimili eða
Landspítalanum fannst mér ég
ekki vera að sinna mínum tilgangi.
Starfinu fylgir svo mikil vellíðan,
að geta hjálpað öðrum eins vel og
manni er unnt. Ég hlakka því alltaf
til að fara í vinnuna og leggja mitt
af mörkum. Þá upplifi ég þessa
„ég skipti máli“-tilfinningu,“ segir
Viktor, sæll í sínu starfi.
Spurður um styrkleika sína
sem hjúkrunarfræðingur, svarar
Viktor:
„Ég hef mjög gott auga fyrir
smáatriðum og því að sjá hverjar
þarfir einstaklingsins eru, en þar
er margt sem þarf að huga að. Ég
mynda jafnframt alltaf góð tengsl
og samskipti við aðstandendur og
reyni að mæta þeim þar sem þeir
eru, því ég tel mig vera skilnings-
ríkan einstakling.“
Útskriftin úr HÍ eru ekki einu
tímamótin í lífi Viktors því nú
hefur hann loksins meiri tíma til
að huga að eigin heilsu.
„Mig langar að verða besta
útgáfan af sjálfum mér en til að ná
því markmiði þarf ég kannski að
líta aðeins inn á við og taka ábyrgð
á sjálfum mér. Ég elska lífið og er
þakklátur fyrir það og fólkið mitt
í því. Ég er rosalega heppinn með
vini og fjölskyldu, og er í drauma-
starfinu. Eins og aðrir á ég mín
vandamál og hata að tala um þau
en ég er að reyna að læra að opna
mig betur fyrir fólki og taka niður
veggina. Ég er því bjartsýnn á
komandi tíma og hlakka til fram-
tíðarinnar og þess sem hún ber í
skauti sér. Það er svo margt sem
mig langar að gera en núna er ég
að njóta þess að vinna í fullu starfi
á hjarta-, lungna- og augnskurða-
deild Landspítalans.“
Vildi verða ýktari í útliti
Viktor hefur verið ófeiminn að
sýna hvernig hann hefur látið eiga
við eitt og annað í andliti sínu.
„Fæstir munu skilja hvers vegna
ég fór þessa leið, en ég vil ekki vera
náttúrulegur í útliti. Þetta er bara
ákveðin yfirlýsing og það að leggj-
ast undir hníf lýtalækna tengist
ekki hækkandi aldri, enda var ég
bara sautján ára þegar ég vildi
verða ýktari í útliti. Þetta snýst því
um að breyta ásýnd minni, en ekki
að halda í æskuna,“ útskýrir Viktor
í einlægni.
Hann kveðst sáttur við spegil-
mynd sína.
„Margir halda að ég eigi við
vandamál að stríða og það hljóti að
vera af andlegum toga úr því ég er
að þessu, en það er ekki raunin. Ég
hef viljað þetta síðan ég vissi hvað
lýtalækningar voru. Ég er því mjög
sáttur með hvernig ég lít út núna,
en ég vil miklu meira og hef nú
meiri tíma til að fara í þær aðgerðir
sem ég stefni að á komandi
tímum.“
Í upphafi lýtaaðgerðanna segist
Viktor ekki hafa haft ákveðið and-
lit í huga.
„Nei. Ég var aldrei að reyna að
vera annar eða sækjast eftir útliti
annarra. Ég vildi bara ýktara útlit
sem hentar mínu andliti og hug-
myndunum sem ég hafði í huga.“
Hann segir líf sitt hafa breyst til
batnaðar eftir að hann ákvað að
láta breyta andliti sínu.
„Já, því í dag er ég sáttari með
sjálfan mig og finnst ég vera í meira
samræmi við minn innri mann og
hvernig ég vil tjá mig útlitslega séð.
Ekki að það skipti máli, en að auki
er ég nú að fá miklu meiri athygli
frá strákum. Kannski það sé vegna
aukins sjálfstrausts míns sem
fylgdi í kjölfar útlitsbreytinganna
sem ég hef farið í gegnum,“ segir
Viktor.
Í starfi sínu á Landspítala og á
hjúkrunarheimilum áður segist
Viktor alltaf hafa fengið góð við-
brögð við útliti sínu.
„Ég hef aldrei orðið fyrir for-
dómum né fengið neikvætt viðmót
vegna útlits míns. Ég hef fengið
meiri gagnrýni á húðflúrin mín
frá eldri kynslóðinni, en samt
sárasjaldan, og fáeinar eldri konur
hafa spurt út í varirnar mínar. Mér
er alltaf tekið vel. Í vinnunni er ég
reyndar miklu minna málaður svo
kannski er ekki alltaf tekið eftir
því, en ég hef aldrei fengið athuga-
semdir um það. Bara um hversu
sætur ég sé,“ segir Viktor og hefur
gaman af. n
Margir halda að ég
eigi við vandamál
að stríða úr því ég er að
þessu, en það er ekki
raunin. Ég hef viljað
þetta síðan ég vissi hvað
lýtalækningar eru.
2 kynningarblað A L LT 23. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR