Bændablaðið - 03.11.2022, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
FRÉTTIR
Erfðamengisúrval hefur verið
innleitt í kynbótastarf íslensku
mjólkurkýrinnar og markar
það stór tímamót í íslenskri
nautgriparækt.
Hið nýja skipulag gerir það að
verkum að kynbótaframfarir verða
örari með styttra ættliðabili og
öruggara kynbótamati einstakra
gripa. Í stuttu og mjög einfölduðu
máli felur þetta í sér að greining á
erfðamengi einstaklinga verði notað
til að reikna út hversu efnilegir gripir
eru til framræktunar á íslensku
mjólkurkúnni.
Á þessu ári byrjuðu kúabændur
að taka sjálfir sýni úr nýfæddum
kvígukálfum um leið og þeir eru
merktir. Þessir gripir hafa fengið
arfgerðargreiningu.
Erfðamatið ljóst frá upphafi
Niðurstöður fyrstu keyrslu á
erfðamati, það er nýju kynbóta-
mati, hefur verið lesið inn í
skýrsluhaldskerfið Huppu og geta
þeir sem sendu sýni úr kvígum í
arfgreiningu séð erfðamat gripa
sinna. Með því geta bændur fengið
mat á því hversu góður gripurinn
getur orðið þegar hann er aðeins
nokkurra mánaða gamall, í stað þess
að fá slíkt mat eftir fyrsta burð.
Þeir gripir sem ekki hafa
arfgerðargreiningu fá kynbótamat í
hinu nýja erfðamengisúrvali.
Breytingarnar bera með sér að
minna verður um tilviljanir og
öryggi við val á kynbótagripum
verður meira. Hægt verður að leggja
betra mat á eiginleika sem erfitt
hefur verið að mæla, s.s. endingu
og skap.
Breytingar strax
Þó nokkrar breytingar munu verða
á kynbótastarfi nautgriparæktarinnar
með innleiðingu erfðamengisúrvals.
Fyrir það fyrsta mun notkun
óreyndra nauta heyra sögunni til.
Þannig verður aðeins um að ræða
naut í notkun sem verða þá allt
niður í rúmlega ársgömul. Samhliða
því verður tilnefningu sérstakra
nautsfeðra hætt. Val nautsmæðra
mun taka breytingum og verða
öruggara og betra en áður.
„Það mun byggja á arfgreiningum
og erfðamati þeirra sjálfra enda
mun meirihluti kúa í framleiðslu
verða arfgreindur innan þriggja
ára. Þannig styrkja sýnatökur úr
kvígum og arfgreiningar þeirra val
nautsmæðranna í framtíðinni“, segir
í tilkynningu frá RML.
Fleiri árgangar í boði
Þá tók Fagráð í nautgriparækt þá
ákvörðun að hafa 22 naut í notkun
á næstunni og er það val byggt á
erfðamati. Munu nautin vera úr
fleiri árgöngum en áður, enda hafa
þær upplýsingar sem fyrir liggja
geta metið gæði nauta til framtíðar.
Af nautum í notkun eru t.d.
tvö fædd árið 2021 og það yngsta
aðeins 19 mánaða gamalt. Fimm
eru fædd árið 2020 og fjögur árið
2019. Nautin 22 eru undan fjórtán
feðrum. „Rétt er taka skýrt fram
að mat þessara gripa getur átt eftir
að breytast og innbyrðis röð þeirra
riðlast eftir því sem upplýsingar
um dætur þeirra berast. Þannig er
óvíst að það naut sem er með hæst
erfðamat nú verði það eftir næstu
keyrslu og svo koll af kolli. Hins
vegar er ljóst að þessi hópur nauta er
úr hópi þeirra bestu sem um ræðir,“
segir í frétt RML.
Gríðarlegur ávinningur
„Verkefnið um erfðamengisúrval
hefur verið stærsta verkefni
nautgriparæktarinnar síðustu ár.
Þetta er kostnaðarsamt verkefni sem
hefur verið unnið í nánu og góðu
samstarfi allra aðila greinarinnar;
LK, BÍ, RML, mjólkuriðnaðinum,
Fagráði í nautgriparækt og síðast en
ekki síst bændum sjálfum.
Ávinningur verkefnisins felst
fyrst og fremst í auknum erfða-
framförum sem sérfræðingar telja að
geti numið um 85 milljónum króna
á ári. Auk þess getur sparnaður
vegna minna umfangs við nauta-
hald og sæðistöku numið tugum
milljóna króna á ári. Þegar
heildardæmið er reiknað er talið
að ávinningur af innleiðingu
erfðamengisúrvals muni nema
a.m.k. um 40 milljónum króna á ári
í minnkuðum framleiðslukostnaði
fyrir mjólkuriðnaðinn í heild.
Ég fagna þessum merkilegu
tímamótum framfara nú á sama
tíma og greinin stendur frammi fyrir
gríðarlegum áskorunum í auknum
aðfanga- og fjámagnskostnaði.
Aukin afköst og minni sóun leiða
einnig af sér minni losun frá
greininni og því má segja að inn-
leiðing erfðamengisúrvals sé ein
stærsta loftslagsaðgerð íslenskrar
mjólkurframleiðslu,“ segir Herdís
Magna Gunnarsdóttir formaður
deildar nautgripabænda hjá Bænda-
samtökum Íslands.
Líklegt þykir að í náinni framtíð
verði sett inn í reglugerð skylda
kúabænda til að taka sýni úr
nýfæddum kvígukálfum til að efla
og styrkja erfðamengisúrvalið.
/ghp
HAUGTÆKI
Úrval tækja á flottu verði!
5.935.000 + vsk.
Nautgriparækt:
Gjörbylting kynbótakerfisins
– Erfðamengisúrval mun stórauka og hraða erfðaframförum á íslensku mjólkurkúnni
Bikar 16008 frá Stóru-Hildisey 2
í Landeyjum, f. Bambi 08049, mf.
Vindill 05028,
Jarfi 16016 frá Helgavatni í
Þverárhlíð, f. Bambi 08049, mf.
Stíll 04041,
Herkir 16069 frá Espihóli í Eyja-
firði, f. Gustur 09003, mf. Baldi
06010,
Þróttur 17023 frá Ósi í Hval-
fjarðarsveit, f. Klettur 08030, mf.
Þræll 09068,
Búkki 17031 frá Lundi í Lundar-
reykjadal, f. Dropi 10077, mf. Bolti
09021,
Ós 17034 frá Espihóli í Eyjafirði,
f. Úlli 10089, mf. Kambur 06022,
Títan 17036 frá Káranesi í Kjós, f.
Úranus 10081, mf. Dynjandi 06024,
Óberon 17046 frá Skeiðháholti
1 á Skeiðum, f. Úranus 10081, mf.
Skalli 11023,
Barón 17050 frá Bryðjuholti í
Hrunamannahr., f. Úlli 10089, mf.
Laufás 08003,
Ítali 17056 frá Stóru-Reykjum í
Flóa, f. Úlli 10089, mf. Þáttur 08021,
Beykir 18031 frá Brúnastöðum
í Flóa, f. Gýmir 11007, mf. Baldi
06010,
Tindur 19025 frá Hvanneyri í
Andakíl, f. Sjarmi 12090, mf. Klettur
08030,
Skáldi 19036 frá Skáldsstöðum
í Eyjafirði, f. Bárður 13027, mf.
Klettur 08030,
Kvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði, f. Sjarmi 12090, mf. Úlli
10089,
Samson 19060 frá Egilsstöðum á
Völlum, f. Steri 13057, mf. Baldi
06010,
Marmari 20011 frá Glitstöðum
í Norðurárdal, f. Jörfi 13011, mf.
Bambi 08049,
Banani 20017 frá Vatnsenda í
Eyjafirði, f. Jörfi 13011, mf. Bambi
08049,
Svarfi 20027 frá Hofsá í
Svarfaðardal, f. Jörfi 13011, mf.
Bambi 08049,
Keilir 20031 frá Brúnastöðum í
Flóa, f. Hálfmáni 13022, mf. Bolti
09021,
Garpur 20044 frá Birtingaholti 1
í Hrunamannahr., f. Jörfi 13011, mf.
Bambi 08049,
Óðinn 21002 frá Birtingaholti 4
í Hrunamannahr., f. Kláus 14031,
mf. Úlli 10089
Hákon 21007 frá Skeiðháholti
1 á Skeiðum, f. Ýmir 13051, mf.
Fossdal 10040.
Listi yfir naut sem eru
til notkunar núna:
Banani 20017 frá Vatnsenda í Eyjafirði. Hann stendur efstur í heildareinkunn allra nauta í augnablikinu.
Hákon 21007 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum, yngsta nautið sem nú kemur til
notkunar. Myndir / Aðsendar
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
Hádegisfundir um áburðarmál
Í lok nóvember og fram í
desem ber munu ráðunautar
Ráðgjafarmiðstöðvar land búnað
arins (RML) fara um landið og
halda fræðslu og umræðufundi um
áburðarmál.
„Það að nýta búfjáráburð og annan
lífrænan áburð sem best samhliða því
að lágmarka notkun á tilbúnum áburði
án þess að það hafi skaðleg áhrif á
búreksturinn eru meðal helstu áskorana
sem bændur standa frammi fyrir í dag.
Á fundunum munu ráðunautar
RML fara yfir helstu atriði sem hafa
þarf í huga varðandi áburðarnýtingu
o.fl. og síðan verða umræður í lokin
þar sem m.a. er gert ráð fyrir þátttöku
áburðarsala“, segir í tilkynningu frá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
/ghp
Farið verður yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga varðandi áburðarnýtingu.
Gert er ráð fyrir þátttöku áburðarsala í umræðum. Mynd /bbl