Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 24

Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI Áhugaleikhúsið Hugleikur ber nú á borð sex einþáttunga sem hreyfa vel við áhorfendum. Hafa þeir allir komið fyrir augu fólks áður, yfir árin, en þó aldrei allir saman. Um ræðir verk Júlíu Hannam sem hefur getið sér afar gott orð á þeim vettvangi. Júlía Hannam er höfundur þess sem gleðja mun áhorfendur og aðdáendur Hugleiks nú í nóvember- byrjun, en sjálf lærði hún leiklist í San Francisco á árum áður – rétt eftir menntaskóla. Aðspurð segist Júlía þó ekki hafa farið á svið sjálf fyrr en í kringum 1994, þá með áhugaleikfélaginu Leyndir draumar þar sem hún sinnti lengi formannsstöðu og gekk um fimm árum síðar til liðs við Hugleik. Fjölskyldan var í forgrunni þó leiklistarbakterían hafi alltaf verið í blóðinu og því kom sér vel að standa á sviði áhugaleikhúss, enda vart hægt að hugsa sér skemmtilegra tómstundagaman. Í dag er Júlía ein þeirra mætu leikkvenna starfandi undir hattinum Leiklistarkonur 50+ og þar er margt skemmtilegt fram undan. Einþáttungarnir sex „Ástæðan fyrir því að einþáttungarnir sex eru settir á svið,“ segir Júlía, „er sú að mig langaði að styðja Hugleik, mitt gamla félag. Hugmyndina fékk ég frá góðri vinkonu sem gerði slíkt hið sama, nú síðastliðið vor, þá í tilefni stórafmælis hennar. Mér þótti þetta svo sniðugt – og átti nægt til í sarpinum sem hafði komið áður á fjalirnar og þótt skemmtilegt. Þannig ég valdi nokkra einþáttunga með aðstoð góðra kvenna og þykir gaman af því að þeir fái að lifna aftur við á sviðinu, jafnframt því að styrkja gott málefni.“ Í öruggum heimi Við völdum semsagt alls sex þætti undir nafninu „Í öruggum heimi“ sem er auk heldur nafn á einum þættinum. Fjallar sá um að í raun er ekki allt sem sýnist. Ekki allt í hendi eins og menn vilja gjarnan ætla. Leikstjórinn er Hrefna Friðriksdóttir. Síðan er verkið „Leit“. Því leikstýrir einn stofnfélagi Hugleiks og aldursforsetinn, rétt rúmlega áttræð, hún Unnur Guttormsdóttir. Fjallar „Leit“ um unga stúlku sem leitar að afa sínum. Næst má nefna verkið „Ég hefði ekki átt að segja þér þetta“ en þar er tekin fyrir sú hugmynd um að oft megi satt kyrrt liggja. Fólk lítur jafningja sína oft öðrum augum er þeir heyra af þeim sögur, sannar eða ekki. Verkið „Stóllinn“ fjallar um vaktaskipti og er í leikstjórn Hrundar Ólafsdóttur. Svo eru það „Heilladísir“ sem Dýrleif Jónsdóttir stýrir. Þar er greint frá upplifun fólks á lífinu, sumir gefast upp á meðan aðrir halda í von um hamingju og betri tíð. Að lokum kemur svo „Hver er þessi Benedikt?“ í leikstjórn Ástu Gísladóttur og er um firringu markaðsaflanna. Kvöldstund með meiru Einþáttungana samdi Júlía yfir um 10 ára tímabil og geta þeir sem áður hafa fengið að njóta þeirra á sviðinu hlakkað til að sjá verkin nú í nýjum búningi. Verða sýningar þann 4. og 5. nóvember klukkan 20 í Funalind 2, húsnæði Leikfélags Kópavogs. Miða er hægt að finna og panta á heimasíðu Hugleiks, www.hugleikur. is og kostar 2.000 kr. Annars verður posi á staðnum og einnig hægt að greiða með peningum. Er Hugleikur eitt þeirra áhugaleikhúsa sem naut ekki góðs af styrk frá borginni nú í ár og því um að gera að taka frá kvöldstund, njóta góðrar sýningar, sýna sig og sjá aðra. /SP Hugleikur: Í öruggum heimi Júlía Hannam, leikkona og handverks- höfundur. Söguna vinsælu úr 1001 nótt um hann Aladín þekkja flestir. Þar eru í aðalhlutverki þeir fé- lagar Aladín og andinn í töfra- lampanum … en einnig hin frábæra Jasmín prinsessa. Færri vita kannski að upprunalega hét prinsessan Badroulbadour, en nafn hennar þýðir fullt tungl – sem er tákn austrænnar fegurðar. Ævintýrið hafa nú liðsmenn leikfélags Borgar í Grímsnesi sett upp en þó með nýjum brag. Ævíntýri Sindra Mjölnis Tók félagsmaðurinn Sindri Mjölnir sig til og endurskrifaði söguna frá sjónarhorni prinsessunnar Badroulbadour – listavel og nokkuð sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Leikrit Aladíns hefur ekki farið á fjalirnar áður þar sem saga Aladíns og Jasmínar er í eigu Disney en með nýjum vinkli geta áhorfendur glaðst yfir sögunni sem þeir þekkja svo vel. Kemur virkilega á óvart Í samtali við Guðnýju Tómasdóttur formann kemur fram að með þessari nýju aðalpersónu og nýja sjónarhorni er ævintýrið bæði nútímavætt og kemur virkilega á óvart. Leikritið er ætlað ungum jafnt sem öldnum og sýnt á misjöfnum tíma sólarhringsins, til að koma til móts við öll aldursskeið. Hvað varðar leikarana eru þeir 15 talsins, sá elsti um áttrætt og sá yngsti um sjötíu árum yngri, eða tólf ára. Meðal þeirra finnast lærðir leikarar, áhugamenn af hjarta og sál og í raun öll flóran. Frumsýnt verður þann 12. nóvember. Miðasalan verður á tix.is en ná sýningar fram í desember þar sem út dettur ein helgi í nóvember. / SP Leikfélagið Borg: Ævintýrið mikla ... frá öðru sjónarhorni Höfundurinn og leikstjórinn Sindri Mjölnir í gervi Aladíns. Þarna má sjá Andann Ingu Söndru Hjartardóttur og Apann Thelmu Sif Jóhannesdóttur ásamt Aladín á æfingu. Leikfélag Fjallabyggðar sýnir nú nýtt leikrit eftir Guðmund Ólafsson, sem jafnframt er leikstjóri. Verkið heitir BIRGITTA KVEÐUR og er sagt vera „sakamálaleikrit með gamansömu ívafi“. Æfingar hófust 12. september, frumsýningin var 28. október. Leikritið gerist á einu föstudagssíðdegi og -kvöldi í litlu innflutningsfyrirtæki, sem hefur sérhæft sig í innflutningi frá Kína. En þetta er ekki venjulegur dagur því um kvöldið á að kveðja elsta starfsmanninn, hana Birgittu, sem er að láta af störfum vegna aldurs. Er af því tilefni slegið upp kveðjuveislu. Er óhætt að segja að kvöldið verði viðburðaríkt og óvæntir atburðir gerist þannig að kalla þarf til lögreglu. Þrettán leikarar taka þátt í sýningunni auk baksviðsfólks af öllu tagi. Ljósameistari er Anton Konráðsson. Þetta er fimmta leikritið sem Guðmundur skrifar sérstaklega fyrir leikfélagið og hefur hann jafnfram leikstýrt þeim öllum. Eitt þeirra, „Stöngin inn!“, var valin áhugaverðasta áhugaleiksýningin árið 2013 og sýnd í Þjóðleikhúsinu. Sýningar standa yfir í Menningarhúsi Fjallabyggðar, Tjarnarborg í Ólafsfirði og eins og staðan er núna verða næstu sýningar nóvembermánaðar þann 3., 6., 10. og 11. klukkan 20.00. Almennt miðaverð er kr. 3.500 en eldri borgarar, öryrkjar og grunnskólabörn borga 3.000 kr. Miðapantanir eru hjá þeim Guðrúnu Unnsteinsdóttur í síma 863-2604 og Vibekku í síma 849-5384. Leikfélag Fjallabyggðar: Birgitta kveður Guðrún Elísabet Guðmundsdóttir í hlutverki Árnýjar verkstjóra, Margrét Kristinsdóttir, eða Magga á lagernum, og Ólöf Rún Ólafsdóttir símadama. Hér má sjá þau Hafdísi Ósk Kristjánsdóttur og Sigmund Agnarsson sem hina norskættuðu tvíbura, Luffe og Lillemor, frændsyskini forstjórans. Viðtökur á efni leikfélagsins Hugleiks hafa ætíð verið frábærar, sumar frábærari en aðrar, sbr. þessa stuttfrétt haustið 1998 í tbl. Degi. Leikendur úr einþáttungnum „Hver er þessi Benedikt?“ Á myndinni eru þær Mamiko D. Ragnarsdóttir og Hrefna Hjörvarsdóttir.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.