Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 28

Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 LÍF&STARF Kort af Rauðasandshreppi norðan heiða. Búseta er á Hvalskeri, Neðri-Tungu og Hænuvík. Í Örlygshöfn var öll þjónusta hins forna hrepps, eða grunnskóli, félagsheimili, verslun, höfn o.fl. Loftmynd / Landmælingar Íslands Í síðasta tölublaði Bændablaðsins var fyrri hluti umfjöllunar um Rauðasandshrepp hinn forna, sem nú tilheyrir Vesturbyggð. Þá var tekinn fyrir Rauðisandur, en núna verður hreppnum norðan heiða gerð skil. Þetta landsvæði er með helstu náttúruperlur sunnanverðra Vestfjarða og er straumur ferðamanna mikill. Rauðisandur, Örlygshöfn, minjasafnið á Hnjóti og Látrabjarg hafa verið vinsælir áfangastaðir, en umferð út í Kollsvík hefur aukist á undanförnum misserum. Eins og kom fram í fyrri umfjöllun var íbúafjöldi þessa forna hrepps 93 árið 1993, en hefur fækkað mjög hratt á undanförnum árum. Nokkuð er af fólki sem heldur til á svæðinu hluta úr ári, en einungis ellefu eru með heilsársbúsetu, þar af sex í Rauðasandshreppi norðan heiða. Tveir bræður eru búsettir á Hvalskeri sem gera út vinnuvélar, hjón á Neðri-Tungu í Örlygshöfn með sauðfé og hjón í Hænuvík með sauðfjárrækt og ferðaþjónustu. Í síðasta tölublaði Bændablaðsins var íbúatala hins forna hrepps ranglega talin vera níu og leiðréttist hér með. Hnjótur Kollsvík Sellátranes Hænuvík Neðri-Tunga Örly gshöfn Rauðasandshreppur: Náttúrufegurð og fólksfækkun Patreksfjörður Sauðlauksdalur Hvalsker Látrabjarg Breiðavík Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Guðjón Bjarnason og María Ólafsdóttir eru sauðfjárbændur í Hænuvík, ysta bænum í sunnanverðum Patreksfirði. Þar búa þau með 250 kindur og reka ferðaþjónustu og handverksverslun með dóttur sinni, Guðnýju Ólafíu. Hjónin eru bæði úr sveitinni, en Guðjón ólst upp í Hænuvík og María kemur frá Sellátranesi, sem er næsti bær fyrir innan. Þegar Guðjón og María tóku við búinu í Hænuvík fyrir fjörutíu árum þurftu þau að byrja frá grunni. Foreldrar Guðjóns drápu allan sinn fjárstofn haustið áður en þau keyptu af þeim jörðina eftir að hafa lent í ýmsum skakkaföllum. „Ég var búinn að vera viðloðandi búskapinn frá 1962 eða 1963 og vissi alveg hvað var hér til staðar. Þegar við tókum við árið 1982 fengum við lömb frá bændum í grenndinni og vorum fyrsta veturinn með 52 kindur. Við skulduðum aldrei krónu þar sem við býttuðum á jörðinni og húsinu sem við áttum á Patró,“ segir Guðjón. Sjálfum sér nóg Fyrstu árin voru erfið að sögn Guðjóns, en með því að þurfa ekki að kaupa orku og vera sjálfum sér nóg um mat náðu þau að láta hlutina ganga upp. „Við fiskum allan okkar fisk, framleiðum allt okkar kjöt, allar okkar kartöflur, við framleiðum orkuna alla sjálf,“ segir Guðjón, en á bænum hefur verið heimarafstöð frá því um miðja síðustu öld. Lengi vel voru þau með 400 kindur, en núna séu þau farin að minnka við sig. Síðasta vetur voru 250 kindur á bænum og reiknar Guðjón með að fækka meira núna í haust. Sauðfjárræktin gjaldþrota Aðspurður um það hvort hægt sé að lifa af sauðfjárbúskapnum segir Guðjón: „Ef þú ætlar að kaupa áburð og fóðurbæti og vera með svolítið af lánum þá þarftu að hafa tvö þúsund fjár. Það er ekkert að marka þetta hjá okkur – við getum heyjað allan hreppinn. Sauðfjárræktin er gjaldþrota. Einfaldlega vegna þess að við erum ekki bara að keppa við þessa útþenslustefnu sem Bændasamtökin hafa verið að hvetja til, heldur er verið að flytja inn í landið fleiri þúsund tonn af alls konar kjöti. Það tekur frá okkur og er á niðurgreiddu verði – eitthvert hormónadrasl,“ segir Guðjón. Rödd Vestfjarða heyrist ekki Guðjón er mjög gagnrýninn á þá þróun sem hefur átt sér stað í félagskerfi bænda á undanförnum árum. Raddir bænda á Vestfjörðum fái ekki að heyrast. „Kannski tekur því ekki vegna þess að búskapur er almennt að deyja á Vestfjörðum,“ segir Guðjón. „Sjáðu fundarherferðina hringinn í kringum landið sem þeir gortuðu sig af um daginn. Hvar er fundurinn fyrir okkur? Á Ísafirði. Það er enginn áhugi fyrir því að halda fund hér á sunnanverðum Vestfjörðum.“ Hann segir bændur hafa verið hvatta til að hagræða og stækka búin, en það sé ekki hlaupið að því á Vestfjörðum þar sem undirlendi er lítið. „Vestfirðir eru að deyja sem búskaparland, meðal annars fyrir tilstilli Bændasamtakanna. Öll félagastarfsemi er búin. Búnaðarsambandið helst á lífi enn þá, en það er löngu farið að ræða að sameina það undir Vesturland. Hvar eru þá raddirnar sem eiga að berjast fyrir Vestfirði? Þær voru sex til sjö á fundum áður fyrr – ég held að það sé einn núna.“ Sauðféð ratar heim Guðjón segist vera heppinn með sitt fé, en það hefur vanist því að koma sjálft til byggða á haustin. Hann segist ná þessu með því að láta sauðféð sitt vera úti mest allt árið sem verður til þess að þær þekki sitt umhverfi og viti hvert þær eigi að fara þegar haustar. „Það er búið að taka úr íslensku fé þessa náttúru að koma til byggða þegar haustið kemur.“ Þó svo að hann sé síðasti bóndinn á svæðinu hafa smalamennskur verið viðráðanlegar. Innviði þarf að bæta Aðspurður um hvernig hann sjái byggðina þróast á næstu árum og áratugum, segir Guðjón að nauðsynlegt sé að bæta fjarskiptasamband á svæðinu. Fólk geti því flutt á svæðið sem geti unnið í fjarvinnu. Lagning ljósleiðara og þriggja fasa rafmagnsstrengs var komin á dagskrá fyrir skemmstu. Allt efnið var komið, en Guðjón segir að tveir landeigendur á svæðinu hafi ekki gefið heimild fyrir að plægja strenginn í gegnum sitt land. Guðjón er hins vegar með heimarafstöð og framleiðir þriggja fasa rafmagn fyrir heimilið. Þrýstivatnspípa úr fiskeldiskvíum Undanfarin ár hefur Guðjón unnið að því að stækka virkjunina hjá sér til að bæta raforkuöryggi í Hænuvík og húsunum þar í kring. Ein af ástæðunum fyrir því að hann lagði í þessa vinnu var sú að honum áskotnuðust þrjár aflagðar fiskeldiskvíar sem hann gat tekið í sundur og fengið kílómetra langt rör. Líklegt er að hann muni eiga umframorku en hann mun ekki geta selt þann straum ef lagning kapals fyrir þriggja fasa rafmagn út í Hænuvík klárast ekki. Búið var lífrænt Búið í Hænuvík var komið með lífræna vottun fyrir nokkrum árum. Búreksturinn hefur lengi vel verið svo gott sem lífrænn, þar sem áburðargjöf Hænuvík Guðjón Bjarnason ólst upp í Hænuvík. Hann er gagnrýninn á þróun félagskerfis bænda og sérstaklega hversu litla rödd Vestfirðingar fá. Hótel Látrabjarg var áður grunnskóli sveitarinnar.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.