Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
INTERCLAMP
Vörurnar frá Interclamp eru nú allar fáanlegar í vefverslun!
velaval.is
alltaf opin! Sendum
um land
allt!
Sólskríkjan er hópferðabíll
smíðaður í Reykholti veturinn
1976-77. Hún var lengi í notkun
hjá Jóni Árna Sigfússyni við
skólaakstur við Mývatn, hálendis -
ferðir o.fl. Fyrir nokkrum
misserum var hún flutt aftur á
sínar upprunaslóðir Borgarfirði
með þeirri von að varðveita hana
og koma í nothæft ástand.
Þórður Stefánsson, bifvéla-
virki á Arnheiðarstöðum í Hálsa-
sveit, kom að smíði rútunnar á
sínum tíma. Hann var starfsmaður
hjá Guðmundi Kjerúlf sem rak
bílasmiðju í Litla-Hvammi í
Reykholti á árum áður, þaðan
sem Sólskríkjan kom. Þórður
segir að framleiddir hafi verið
nálægt þremur bílum á hverjum
vetri og komu þaðan margar rútur
sem þjónuðu um allt land.
Aðspurður segir Þórður að
mikilvægasta verkefnið til að
koma rútunni í lag sé að skipta
um mótorinn, og er hann búinn
að verða sér úti um nýjan. Einnig
þyrfti að skipta um allar rúður og
tjasla upp á boddýið.
Skólaakstur og hálendisferðir
Jón Árni Sigfússon, bifreiðastjóri frá
Víkurnesi við Mývatn, byrjaði sinn
akstursferil á vörubíl árið 1949 og
fór að starfa við skólaakstur upp úr
1960. Um miðjan áttunda áratuginn
þurfti hann að stækka við sig og
lét því smíða fyrir sig Sólskríkjuna
sem hann fékk afhenda vorið 1977.
Hún er 35 sæta langferðabíll með
drifi á öllum hjólum. Grindin,
vélin, hásingarnar og drifrásin í
Sólskríkjunni kom mestmegnis
úr Mercedes-Benz vörubíl árgerð
1968 sem Jón Árni keypti á
Akureyri. Til að lengja grindina
var hún sameinuð grind úr rútu af
gerðinni Reo Studebaker sem Jón
Árni átti fyrir. Húsið var gert eftir
teikningu Guðna Sigurjónssonar
og sniðið niður og sett saman með
höndum á verkstæðinu í Reykholti.
Var við kvikmyndatökur
Þegar Jón Árni var ekki við
skólaakstur var Sólskríkjan nýtt
í hálendisferðir og ferðir með
hópa um allt land. Einu sinni
var honum falið það verkefni að
fylgja starfsfólki við upptökur
á kvikmyndinni Running blind,
eða Út í óvissuna, sem kom
út árið 1979. Þar ferjaði hann
starfsfólkið og leikarana á milli
tökustaða, sem voru m.a. í
Ásbyrgi, Herðubreiðarlindum og
fleiri stöðum á hálendinu.
Aðalpersónurnar í myndinni
áttu að ferðast um landið í löngum
Land Rover jeppa. Eitt sinn þegar
hópurinn var í Landmannalaugum
átti að taka upp atriði þar sem
bíllinn æki yfir á í Jökulgili.
Yfirmennirnir fóru fram á að
bíllinn færi yfir vatnsmikinn stað
í ánni, þvert á ráðleggingar Jóns
Árna. Hann gat ekki snúið þeim frá
þessu staðarvali, en fékk til öryggis
að festa dráttartóg í bílinn og koma
öðrum endanum fyrir á þakinu.
Þegar leikararnir voru búnir að
keyra jeppann út í miðja á byrjaði
vatnið að flæða yfir húddið og
komust þau ekki lengra. Jón Árni
sótti Sólskríkjuna, sem var niðri
í Landmannalaugum, og keyrði
upp að Land Rovernum. Þar gat
hann teygt sig eftir eftir tóginu og
stillt rútunni upp þannig að hann
gæti dregið jeppann upp á bakkann
hinum megin. Þar var hann skilinn
eftir þangað til áin varð vatnsminni
morguninn eftir.
Allir nema
yfirmaðurinn hrifnir
Þegar Jón Árni ók Sólskríkjunni
til baka átti hann fullt í fangi með
að festa hana ekki þar sem vatnið
var farið að flæða upp að gólfi
rútunnar. Hann þorði ekki að kúpla
í sundur þar sem þá hefði getað
komið vatn í kúplinguna. Með því
að slá létt í kúplingsfetilinn náði
hann að mjaka rútunni löturhægt
áfram og komst á þurrt.
Þar var honum fagnað af öllum
fyrir dirfsku. Sá eini sem kom ekki
til að taka í höndina á honum var
yfirmaðurinn sem hafði ákveðið
að senda jeppann út í ána á þessum
stað.
/ÁL
Rúta framleidd á Íslandi
Sólskríkjan var smíðuð í Reykholti og átti langan feril við skólaakstur
við Mývatn og hálendisferðir. Mynd / ÁL
SAGA VÉLAR
Mynd sem birtist í Vísi 19. janúar 1980 og sýnir atvikið þegar Jón Árni
þurfti að bjarga Land Rover jeppa upp úr á við Jökulgil. Mynd / Timarit.is