Bændablaðið - 03.11.2022, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
Kynbótamat hefur verið uppreiknað
fyrir íslensk hross og vistað inni í
Upprunaættbók íslenska hestsins,
WorldFeng (WF).
Alls fengu 479.960 einstaklingar
mat en það eru öll þau hross sem skráð
eru í WF með gilt einstaklingsnúmer,
þar sem kemur fram land, ár og kyn.
Útreikningar kynbótamatsins byggja
á kynbótadómum sem töldu að þessu
sinni 35.091 og alls var tekið tillit til
1.000 arfgerðagreindra hrossa fyrir
gangráðinum. Dómar skiptast þannig
eftir löndum: Ísland 21.949, Svíþjóð
4.370, Þýskaland 3.643, Danmörk
2.744, Noregur 1.246, Austurríki 374,
Finnland 291, Holland 298, Bandaríkin
226, Kanada 117, Sviss 102, Bretland
39 og Færeyjar 9.
Kynbótamatið dregur saman allar
tiltækar tölulegar upplýsingar frá
kynbótadómum allra hrossa í stofninum
í heildarniðurstöðu sem endurspeglar
gildi hrossa til framræktunar. Gildið
ræðst af röðun hrossa út frá því
hversu mikils er að vænta að þau geti
lagt af mörkum í ræktunarstarfinu.
Skalinn miðar við 100 sem meðalgildi
og eitt staðalfrávik er 10 stig.
Allur hrossastofninn dreifist um 6
staðalfrávik eða frá u.þ.b 70 til 130,
með einungis örfá hross utan þeirrar
spannar. Almennt er ekki ráðlegt að
nota hross til undaneldis sem eru undir
100 í aðaleinkunn kynbótamats, þar
sem þeirra framlag er líklegt til að vera
í neikvæða átt, miðað við opinbert
ræktunarmarkmið íslenska hestsins. Í
þessu samhengi er þó afar mikilvægt
að hafa öryggi kynbótamatsins til
hliðsjónar, enda er það misjafnt frá
hesti til hests. Því meiri upplýsingar
sem eru tiltækar um foreldra, afkvæmi
og ættingja, því öruggara er matið.
Þegar öryggi kynbótamats er undir 60%
ber að taka þeirri spá með fyrirvara.
Því hærra sem öryggi matsins er því
lægra er staðalfrávik matsins jafnan.
Upplýsingar um bæði staðalfrávik og
öryggi koma fram í WF. Hross með
118 í aðaleinkunn kynbótamats, með
5 í staðalfrávik og 87% öryggi þýðir
einfaldlega að hrossið hefur með 87%
öryggi kynbótagildi milli 113 og 123
stig. Það er því sannarlega afbragðs
undaneldisgripur og tilheyrir hópi u.þ.b.
15% efstu hrossa í hrossastofninum
hvar sem er í heiminum
Leiðréttingar fyrir kerfisbundnum
umhverfisáhrifum
Aðferðin sem notuð er til að reikna út
kynbótamat gengur jafnan undir heitinu
BLUP aðferðin en hún er gríðarlega
viðfangsmikil og öflug aðferð. BLUP
gildin (þ.e. kynbótamatið) endurspegla
erfðafræðilega getu hestanna, í
samanburði við öll önnur hross innan
stofnsins. Þetta innifelur jafnframt
að tekið er tillit til kerfisbundinna
umhverfisþátta sem hafa áhrif á
frammistöðu gripanna. Með því að
leiðrétta fyrir þessum umhverfisþáttum
eru dómarnir gerðir samanburðarhæfir
milli einstaklinga innan stofnsins.
Leiðrétt er fyrir þremur
umhverfisáhrifum en það er aldur
og kyn einstaklings og sýningarárið
þegar hross hlýtur sinn hæsta
aldursleiðrétta dóm. Varðandi aldur
og kyn einstaklingsins þá hafa þessir
þættir áhrif á frammistöðu hrossa,
t.d. eru stóðhestar kerfisbundið
fyrri til en hryssur og hrossin verða
kerfisbundið betri með auknum aldri.
Þar sem dómstörfin þróast ár frá ári
og samanburðarhópurinn verður
sífellt betri, verður jafnframt til
kerfisbundinn munur á niðurstöðum
milli ára, þ.e. sýningarára.
Stöðlun og erfðaframfarir
Niðurstöður kynbótamatsins er staðlað
út frá þeim hrossum sem fæðast á
Íslandi síðastliðin 10 ár og í ár er tala
þeirra 56.597. Þessi tíu ár endurspegla
meðalkynslóðabil í hrossastofninum.
Með þessu móti er gert ráð fyrir
erfðaframförum í stofninum enda
gengið út frá því að framför sé í
stofninum með ræktun hverrar
kynslóðar. Stöðlunin miðar eins og áður
sagði við að meðalgildi kynbótamats sé
100 stig og hvert staðalfrávik 10 stig.
Það geta alltaf orðið einhverjar
breytingar í kynbótamati einstakra
hrossa einatt út af þessari stöðlun
þar sem hún veltur fram eitt ár í
senn, t.d. ef engar nýjar upplýsingar
bætast við þá er tilhneiging að
kynbótamat læki eilítið enda
hrossið að eldast og ræktunin ætti
sífellt að skila erfðafræðilega betri
einstaklingum. Einstaklingar með
miklar upplýsingar að baki sér og
öruggt mat breytast þó jafnan lítið
sem ekki neitt. Helstu breytingar
í kynbótamati hrossa eru jafnan
út frá frammistöðu þeirra sjálfra
og skylduliðs. Það ber þó einnig
að benda á að kynbótamatið er
röðun hrossa og geta því einhverjar
smávægilegar breytingar orðið á
kynbótamati einstaklinga því þegar
einhver hross fara niður í röðun,
þýðir það jafnframt að önnur hross
raðast hærra owg hljóta fyrir vikið
hærra kynbótamat en áður.
Þróun á kynbótamati
Árið 2020 voru gerðar talsverðar
breytingar á kynbótamatinu eins og
áður hefur verið fjallað um [sjá 8. tbl.
Bændablaðsins 2020]. Þá varð mikil
aukning í fjölda þeirra hryssna sem
hlutu afkvæmaverðlaun um haustið
en þær voru þá alls 31 talsins. Stöðugt
er verið að vinna að því að bæta kerfið
þannig að það þjóni tilgangi sínum sem
allra best og með öruggasta hætti.
Við síðustu breytingar, vorið
2022, var hætt að leiðrétta fyrir því
landi sem hrossið er sýnt í, en það
hafði verið gert í áratugi á undan.
Hrossarækt:
Kynbótamat hrossa og hryssur til
afkvæmaverðlauna haustið 2022
Stóðhesturinn Skýr frá Skálakoti með Jakobi Svavari Sigurðssyni og Guðmundi Viðarssyni, ræktanda sínum.
Myndin er tekin á Landssýningu 2020 þegar Skýr hlaut Sleipnisbikarinn. Mynd / Eiðfaxi – Louisa Lilja
Hér má sjá Elísu frá Feti sem stendur efst hryssna fyrir afkvæmi. Hún er
með afkvæmi sínu, Eyvöru frá Rauðalæk, sem er undan Arði frá Brautarholti
en Elísa er fylfull við Sóloni frá Þúfum. Hjá þeim er Guðmundur Friðrik
Björgvinsson, ræktandi og annar eigandi hryssunnar.
Álfamær frá Prestsbæ. Mynd / ÓÖJ Lýdía frá Eystri-Hól. Mynd / ÓÖJ
Umhverfismat framkvæmda
Umhverfismatsskýrsla í kynningu
Strandavegur um Veiðileysuháls í
Árneshreppi
Vegagerðin hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats
Strandavegar um Veiðileysuháls í Árneshreppi.
Kynning á umhverfismatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd
og umhverfismatsskýrsla liggur frammi til kynningar frá 2. nóvember til
14. desember 2022 hjá Verzlunarfjelagi Árneshrepps, Norðurfirði og hjá
Skipulagsstofnun. Umhverfismatsskýrslan er einnig aðgengileg á vef
Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og lagt
fram umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14.
desember 2022 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is Mynd 1: Dreifing á kynbótamati allra hrossa í íslenska hrossastofninum. Kynbótamat 99,8% allra hrossa liggur á milli 70
og 130 stig. Guli kassinn vísar til dæmis í textanum þar sem samband kynbótamats, öryggis og staðalfráviks er skýrt.
Stig kynbótamats
Fjöldi hrossa
Elsa Albertsdóttir
ráðunautur, búfjárræktar- og
þjónustusviði
elsa@rml.is
Á FAGLEGUM NÓTUM