Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
Alhliða fasteignasala
Kynslóða- / eigendaskipti bújarða
Stofnun og skráning landspildna og lóða
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
GSM 896-9565
loftur@husfasteign.is
Hús Fasteignasala · Austurvegi 26 · 800 Selfoss
Sími: 497 1155 · www.husfasteign.is
Sagan hefst árið 1886 þar sem söguhetjan,
Þuríður Guðmundsdóttir vinnukona, stendur
ásamt frændfólki sínu og bíður skips. Hún er á
förum til Ameríku, 36 ára gömul. Sagan segir frá
ferðalagi hennar vestur en á þeirri ferð rifjar hún
upp 16 ára starfsferil sem vinnukona í Skagafirði
og Húnavatnssýslum.
Fæst í öllum helstu bókabúðum og hjá höfundi:
sveinsy47@gmail.com
Heimildaskáldsagan Aldrei nema vinnukona
er sjálfstætt framhald bókarinnar Aldrei nema
kona sem kom út 2020.
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull
Tryggjum valið
Við í búgreinadeild nautgripa-
bænda BÍ höfum nú sent
út skoðanakönnun til allra
nautgripabænda í tölvupósti þar
sem hugmyndin er að taka púlsinn
á greininni.
Hvert bú
getur tekið könn-
unina einu sinni
og verður hægt
að svara henni
út 11. nóvember.
Hugmyndin að
slíkri könnun
hefur verið
lengi á áætlun
og nauðsynlegt
er að taka stöðuna meðal bænda
nú þegar næsta endurskoðunarár
búvörusamninga gengur senn í garð.
Í könnuninni er spurt um
framleiðsluaðstöðu, framtíðaráform
og viðhorf til ýmissa atriða sem
eru starfsgreinninni mikilvæg,
búvörusamninga og fleira. Ég hvet
alla nautgripabændur til að taka þátt
og nýta tækifærið til að koma sínum
skoðunum á framfæri.
Aukin afköst en
minni stuðningur
Ekki hefur verið hefð fyrir
viðbótarfjármagni við endurskoðun
búvörusamninga. En nú þegar líður
að síðustu endurskoðun núverandi
búvörusamnings hljótum við að
spyrja okkur hvort við séum á réttri
leið. Á sama tíma og bændur eru
hvattir til að framleiða, ekki bara
meira magn matvæla heldur líka
breiðara úrval þeirra, af bættum
gæðum með auknum kröfum til
framleiðsluþátta og sjálfbærni hefur
heildarstuðningur við landbúnað
lækkað um 30 milljarða að raungildi
frá árinu 1990.
Framþróun í íslenskri
nautgriparækt
Mikil uppbygging hefur verið í
mjólkurframleiðslu síðustu ár,
bæði í aðbúnaði og þekkingu
með tilheyrandi hagræðingu og
framþróun. Kúabændur landsins
hafa valið að viðhalda íslenska
kúakyninu þrátt fyrir að reglulega
komi upp umræða um innflutning
á erlendu og afkastameira kúakyni.
Íslenski stofninn er einstakur
á heimsvísu og verðmæti hans
ómetanlegt. Því hefur mikið
kapp verið lagt í ræktunarstarf
og nautgriparæktin tekist á
við verkefnið um innleiðingu
erfðamengisúrvals, sem var
jafnvel talið ógerlegt fyrir ekki
svo mörgum árum síðan. Nú
þegar erfðamengisúrval er að
taka við megum við eiga von á að
erfðaframfarir íslenska stofnsins
muni taka gríðarlegum framförum
á næstu árum. Meðalnyt íslenskra
kúa hefur aukist um 50% á síðustu
30 árum og heildarframleiðslan
aukist sömuleiðis. Nú ber svo við að
söluaukning mjólkurvara er meiri
en síðustu ár og til að bregðast við
því var ákvörðun um greiðslumark
mjólkur 2023 tekin fyrr en
vanalega. Framkvæmdanefnd
búvörusamninga samþykkti á
síðasta fundi sínum að greiðslumark
næsta árs yrði 149 milljónir
lítra en það er 1,7% aukning
frá síðasta ári. Til samanburðar
var heildargreiðslumarkið 116
milljónir lítra árið 2011. Það er því
ljóst að næsta ár verður nokkuð
krefjandi fyrir íslenska kúabændur
sem þurfa að bregðast við aukinni
eftirspurn á sama tíma og aðföng og
fjármagnskostnaður eykst, tollvernd
fer þverrandi og ríkisstuðningur
fer lækkandi en sé ríkisstuðningur
nautgripasamningsins frá árinu
2004 núvirtur er ljóst að stuðningur
við greinina hefur lækkað um rúma
2 milljarða króna.
Sömuleiðis hefur orðið mikil
framþróun í nautakjötsframleiðslu
á síðustu árum. Nautgripabændur
hafa náð miklum framförum í
ræktun og eldi síðustu ár, gripirnir
eru þyngri og gæðaflokkun á jafnri
uppleið. Fleiri bændur hafa nú
sérhæft sig í nautakjötsframleiðslu
og með innflutningi á nýju Angus
erfðaefni er bændum ekkert til
fyrirstöðu að framleiða nautakjöt
í heimsklassa. Það höfum við strax
séð eftir að fyrstu gripirnir af nýju
erfðaefni komu til slátrunar og
sprengdu Europ skalann sem var
hér til staðar.
Þó að nautakjötsframleiðslan
hafi verið til staðar jafnhliða
mjólkurframleiðslu, líklega frá
upphafi, mætti segja að ný búgrein
sé að festa sig í sessi með aukinni
sérhæfingu og fjöldi nautakjöts-
bænda standa nú frammi fyrir
því að ákveða hvort þeir eigi að
stíga alla leið og halda sinni fram-
leiðslu áfram eða hætta.
Þetta er mjög sérkennileg staða
þar sem tækifærin, eftirspurnin og
getan er til staðar með tilheyrandi
nýsköpun og atvinnuþróun í
sveitum landsins.
Það liggur í augum uppi, viljum
við hafa aðgang að þessari góðu
vöru með tilheyrandi uppbyggingu
og atvinnumöguleikum, að nauta-
kjötsframleiðslan þarf viðbótar-
stuðning. Öll velferðarríki heims-
ins styrkja sitt landbúnaðar-
kerfi, væntanlega ekki að ástæðu-
lausu. Kröfur neytenda fara vaxandi
og með því að tryggja innlendri
framleiðslu sess tryggjum við
framboð heilnæmra matvæla en ekki
síður möguleika okkar til að stýra
okkar eigin framleiðsluþáttum.
Þetta er dýrmætt og nauðsynlegt
er fyrir íslenska þjóð að sofna
ekki á verðinum og glopra frá
sér valinu, störfum og þekkingu í
matvælaframleiðslu.
Stöndum vörð um hreinleikann
og gæðin, þekkinguna og
atvinnumöguleikana. Tryggjum
að neytandinn hafi valið og látum
hljóð og mynd fara saman.
Herdís Magna Gunnarsdóttir,
varaformaður BÍ
og formaður NautBÍ.
Herdís Magna
Gunnarsdóttir.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA