Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
John Deere 6135R er sérlega vel
útbúinn traktor með stiglausri
skiptingu og fjögurra strokka
hreyfli. Þessa dráttarvél væri hægt
að flokka sem millistóra eins og
Fendt 700 eða Massey Ferguson
6S. Dráttarvélin hugsuð sem
valkostur fyrir þá sem vilja eins
mikinn munað á flestum sviðum
og hægt er.
Þegar gengið er að vélinni er
gaman að sjá klassísku John Deere
litina, grænan og gulan. Vélar frá
þessum framleiðanda hafa ekki átt
langa sögu á íslenskum markaði,
en eru með þeim vinsælustu
beggja vegna Atlantshafsála.
Frændur okkar Norðmenn hafa til
að mynda tekið ástfóstri við þetta
merki undanfarna áratugi og er
líklega einn grængulur á flestum
bæjartorfum þar í landi. Þótt John
Deere sé amerískt merki, þá er þessi
vél alfarið framleidd í Mannheim í
Þýskalandi.
Íslyft formlegur umboðsaðili
Markaðshlutdeild þessara véla á
Fróni hefur aukist á allra síðustu
árum eftir að þær hlutu varnarþing
hjá Íslyft, hafandi verið á hrakhólum
lengi. Verandi með íslenskt umboð
hefur John Deere lagt á sig þá vinnu
að íslenska allt stýrikerfi og allar
notendahandbækur. Bændur sem
vilja traktor sem hugsar á okkar
ástkæra og ylhýra geta því íhugað
þennan kost.
Dráttarvélin vigtar notandann
Allar vélarnar sem umboðið flytur
inn eru með hátt búnaðarstig og
finnur maður mjög fljótt þegar
tekið er í traktorinn að lúxusinn er
mikill. Sætið er til að mynda með
tæknilegri fjöðrun. Þegar vélin er
ræst heyrast óhljóð undir sessunni
og notandinn lyftist upp og niður.
Þarna eru innbyggðar vogir að mæla
þyngd notandans og er fjöðrunin
sjálfkrafa stillt samkvæmt því.
Við þetta bætist fjarandi hús og
framhásing sem verja ökumanninn
frá utanaðkomandi hamagangi.
Sætinu er hægt að snúa um
nokkrar gráður til þess að öku-
maðurinn þurfi ekki að vinda upp
á sig þegar fylgst er með tækjum
fyrir aftan. Þessi ás er þannig stilltur
að það truflar notandann ekkert að
hafa opið fyrir snúninginn öllum
stundum. Stjórnandinn hefur því
mikinn hreyfanleika við vinnu og
upplifunin er sambærileg því að
sitja í vönduðum skrifborðsstól.
Hljóðlát og svöl
Þægindin halda áfram þegar byrjað
er að aka vélinni og hávaðinn frá
mótornum berst lítið sem ekkert til
notandans. Hvað hljóðvist varðar
er þó ekki hægt að segja að John
Deere 6135R skeri sig frá öðrum
nýjum millistórum vélum, enda
virðast flestir betri frameiðendur
vanda sig á þessu sviði.
Bændur sem vilja hafa með
kælivöru á heitum dögum geta
glaðst, því hér er komin dráttarvél
með kæliboxi. Það er ekki mjög
stórt, en dugar til að rúma þrjár
Nocco dósir, eina samloku og
súkkulaðistykki.
Breið framrúða – góðir speglar
Framrúðan er breið og kemur á óvart
hversu þægilegt er að horfa út um
slíkan skjá. Húsið er einungis með
fjórum gluggapóstum sem gerir
útsýnið til hliðanna betra en annars.
Þar sem brettin og dekkin skyggja
á koma hliðarspeglarnir að góðum
notum, jafnvel þegar ekið er áfram.
Í ámoksturstækjavinnu skyggir
stórt og kröftugt húddið á útsýnið
beint fram fyrir vélina. Því er ekki
hægt að mæla með þessari vél ef
hún er hugsuð helst í þannig vinnu,
enda er hún ekki hönnuð sem slík.
Þetta er miklu frekar dráttarvél en
mokstursvél.
Þessi áhersla sést þegar þak-
glugginn er skoðaður. Ólíkt þak-
gluggum í mörgum öðrum nýjum
dráttarvélum er nokkuð þykkur
póstur milli framrúðunnar og
áðurnefnds þakglugga. Útsýnið til
himins er því ekki óhindrað.
Stiglaus sjálfskipting
Stiglaus sjálfskiptingin er eitt af
helstu trompum þessarar vélar. Í
akstri er bremsan eina fótstigið
sem nauðsynlegt er að nota, annars
er hægt að stjórna aksturshraða og
snúningshraða mótorsins alfarið
með annars vegar einni sveif og
hins vegar handolíugjöf. Þegar
„aksturshraðasveifin“ er færð fram
og aftur sér notandinn í mælaborðinu
hvaða hraði hefur verið valinn og
getur svo fínstillt með litlum hnappi
efst á sveifinni.
Þar sem skiptingin er algjörlega
stiglaus er hægt að skipta úr lægsta
drifinu í það hæsta á augabragði án
fyrirhafnar. Í notkun virðist skiptingin
almennt vera fumlaus en blaðamanni
fannst dráttarvélin rykkjast örlítið
til í mikilli fínvinnu. Taka ber í
reikninginn að undirritaður er óvön
skrifstofublók, ekki þaulæfður bóndi.
Skjár með mikla virkni
Þegar stjórnborðið er skoðað er
greinilegt að mikil hugsun hefur
farið í að hafa staðsetningu allra
stjórntækja eins þægilega og
aðgengilega og hægt er. Notandanum
stendur til boða að sérsníða virkni
fjölda hnappa eftir sínum þörfum og
er það gert í gegnum stóran tölvuskjá
þar sem allt viðmótið er á íslensku.
Áðurnefndur skjár gefur líka góða
yfirsýn yfir allt sem vélin er að gera
hverju sinni.
Á stjórnborðinu er rafmagns-
stýripinni fyrir ámoksturstækin.
Á honum eru nokkrir forritanlegir
hnappar sem er hægt að láta
stjórna nokkrum aðgerðum. Þar
er m.a. hægt að hafa skipanir fyrir
frambeislið, afturbeislið, glussaúttök
og vendigírinn.
Tölur
Nafn vélarinnar, 6135R, er ekki
endilega auðskiljanlegt við fyrstu
sýn. Ef þetta er túlkað og brotið niður
þá stendur „6“ fyrir stærðarflokkinn,
„135“ er afl mótorsins og „R“ er
efsta búnaðarstigið. Framleiðandinn
straumlínulagaði nafngiftir sínar
fyrir skemmstu og munu þessir
traktorar heita 6R 140 hér eftir.
Þrátt fyrir að vélin sé seld sem
135 hestafla vél þá er hún útbúin
aflauka sem virkjast við mikið álag.
Því standa til boða 20 auka hestöfl
sé þess mikil þörf.
Verðið á þessari vél með
ámoksturstækjum er 18.300.000
krónur án vsk. Helstu mál eru
eftirfarandi: Lengd 4.870 mm, hæð
2.930 mm og breidd 2.550 mm.
Sérstakar þakkir fá bændurnir
á Ytra-Hólmi sem lögðu til
dráttarvélina í þennan prufuakstur.
VÉLABÁSINN
Tölvuskjárinn býður upp á mikla möguleika. Allt viðmótið er á Íslensku. Innréttingin virðist vera vel skrúfuð saman. Sætið er vandað og stillir af
fjöðrunina eftir þyngd notandans.
John Deere 6135R er dráttarvél fyrir þá sem vilja mikinn lúxus. Stiglaus sjálfskipting og rafstýringar í öllu miða að áreynslulausri notkun. Myndir / ÁL
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Allt er vænt sem vel er grænt.Vélin er nefstór og ekki hugsuð fyrir þá sem þurfa
aðallega að nota ámoksturstækin.