Bændablaðið - 03.11.2022, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
UMHVERFISMÁL – TÍSKA
FUGLINN: SÚLA
Drottning Atlantshafsins, eða súla eins og hún heitir. Hún er stærsti sjófugl Evrópu, næstum því alhvít fyrir utan gulleitt höfuð og svarta vængenda. Súlur hafa langa, oddmjóa vængi með 160–180 cm vænghaf
og eru auðþekkjanlegar á flugi á djúpum vængjatökum. Þær eru félagslyndar og sjást oft saman í hópum. Eitt þekktasta atferli súlunnar er veiðiaðferðin hennar sem kallast súlukast. Það getur verið mjög
tilkomumikil sjón þegar hópur af súlum hefur fundið mikið æti í sjónum. Þá stinga þær sér hvað eftir annað lóðrétt niður úr allt að því 40 metra hæð eftir fiskum sem þær hafa séð úr lofti. Súlan telst farfugl en
fer frá landinu aðeins í stuttan tíma, frá október fram í desember. Þær eru trygglyndar við bæði maka og varpsetur. Súlan verpir einungis einu eggi ár hvert og tekur útungun um sex vikur. Þá tekur við ungatími
í um þrjá mánuði, eða þangað til unginn yfirgefur hreiðrið síðsumars. Súlur verpa í þéttum byggðum en einungis eru fimm slíkar byggðir þekktar hér við land. Af þeim er Eldey stærsta og sennilega þekktasta
súlubyggðin með um 15.000 setur. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Hann stendur í gættinni, dökk-
hærður með skeggrót og bros sem
bræðir. Komdu sæl, segir hann og
réttir fram höndina.
Karlmannleg snerting hrjúfrar
handar hans fær mig til að kikna í
hnjánum og ég lít undan. Hann sleppir
ekki. Hvernig get ég aðstoðað þig
segir hann djúpri röddu sem fær mig
til að missa næstum stjórn á mér. Bara
röddin hefur æsandi áhrif á mig. Ég sé
glytta í dökk bringuhár og sterklega
fætur ... sigggróin hné… ég lít upp og
sé að hann glottir. Grípur um mittið á
mér og stígur nokkur dansspor. Hann
er múrari. Maður líkamlegra verka og
það fer ekki framhjá mér ...
(Þetta er brot úr ástarsögunni,
Óvænt kynni, sem var fyrst gefin út
í kringum 1976-77).
Sá sem umvefur þig og verndar
Jú, dökkhærðir
karlmenn sem
kunna til verka eru
kynþokkafullir. Skeggrót og hrjúfar
hendur að sama skapi, falleg rödd og
bros. En hvers vegna hrjúfar hendur?
....Sigg?
Samkvæmt fjölmörgum könnunum
sem gerðar hafa verið af bandarískum
sálfræðingum kom í ljós að sigggrónar
hendur (ekki var fjallað sérstaklega
um hné) voru hátt á lista hjá kven-
peningnum yfir þætti sem þykja
kynþokkafullir í fari karlmanna. Þá oft
nefnd sem gróf mótsögn við snertingu
mýkri húð kvenna.
Þær sem upplifðu faðm slíkra
manna nefndu að þær finndu þar vernd
– þetta væru menn sem hikuðu ekki
við að veita þeim öryggi.
Í viðtölum við iðnaðarmenn sem
báru sigg á líkamanum voru þeir flestir
jákvæðir í garð þess, enda sá tími liðinn
að blöðrur eða sár mynduðust við
vinnu og myndun harðari húðar hlífði
þannig álagspunktum. En svo voru
nokkrir sem voru ekki eins sáttir og
af þeim þó nokkrir sem lögðu mikinn
metnað í að velja sér handkrem við
hæfi. Vildu mýkri hendur þó ástæða
þess væri ekki alltaf sú sama. Hér á
eftir eru því listuð upp þrjú vinsælustu
kremin, kostir þeirra og gallar.
Krem eitt
Hæst á lista er kremið Working
Hands undir merkjum
O´Keeffes‘s. O´Keeffes‘s
er eitt þessara vörumerkja
sem hefur verið inni á
heimilum almennings
Bandaríkjanna hvað
lengst og á sér afar stóran
aðdáendahóp. Upphaflega var
kremið hrært saman af lyfjafræðingi
að nafni Tara O’Keeffe, en hún ætlaði
útkomuna föður sínum sem starfaði
sem nautgripabóndi og hafði bæði
grófar og þurrar hendur sem sprungu
gjarnan við vinnu.
Áferð kremsins hefur verði lýst
sem kalkkenndri, næstum á borð við
tannkrem – og getur sviðið undan ef
það kemst í snertingu við opin sár.
Notendum er þó bent á að hætta ekki
notkun þess því gríðarlegur árangur
mun koma í ljós eftir um það bil viku,
eða mun hraðar en þegar um ræðir
önnur krem. Skemmst er frá því að
segja að þarna er eitt besta krem sem
talið er fyrirfinnast.
Kostir: Áreiðanlegt vörumerki sem
hefur staðist tímans tönn, skjótfeng
virkni auk þess sem um ræðir blöndu
af rakaefnum og efnum sem þekja vel
og halda rakanum inni.Yfirgæfandi
vinsældir og ánægja með vöruna.
Samkvæmt fjölmörgum rannsóknum
hefur enginn annar handáburður hlotið
jafn yfirgnæfandi jákvæða dóma.
Gallar: Áferðin sérkennileg og
óþægileg til að byrja með og einungis
ætlað þeim með allra sigggrónustu
hendurnar. Verður of yfirdrifið fyrir
þá sem þjást aðeins af örlitlum
handþurrki.
Krem tvö
Krem númer tvö á lista ber af
einhverjum ástæðum nafnið Jack
Black. Líkt og leikarinn. Vilja einhverjir
meina að þarna fari lúxusvörumerki
og markhópur þess sé hinn sterklegi
og grófi einstaklingur líkamlegrar
vinnu, sem vill fara mjúkum höndum
um maka sinn. Innihaldslýsing tekur
reyndar sérstaklega fram að þarna sé
um áburð að ræða sem einnig megi
nýta á olnboga og hné… svona fyrir
þá sem bera þess háttar álagsbletti.
Eucalyptus* lykt er af áburðinum og
þegar hann er borinn á þarf að bíða í
heilar fimm mínútur þar til hann hefur
komist fyrir neðan efsta húðlagið.
Þegar sá áfangi hefur tekist, er húðin
þurr í stað þess að vera fitug eða sleip
eins og oft á við þegar krem er borið á.
Kostir: Nærir húðina djúpt og
vel án þess að skilja eftir óþægilega
áferð, lúxusvara karlmannsins sem
vill bjóða upp á mýkri hlið. Ilmar
vel (fyrir þá sem kunna vel við ilm
eucalyptus trésins) og virkar jafn vel
á alla álagsbletti líkamans.
Gallar: Ilmar … ef til vill ekki
ilmur sem allir kunna jafn vel við og
hefur ekki þá þykku mjúka áferð sem
einkennir flest krem.
Krem þrjú
Kremið sem er í þriðja sætinu ber
nafnið AHAVA og er stútfullt af
náttúrulegum efnum sem er þekkt fyrir
að hafa afar góð áhrif á húðina. Ber þar
hæst witch hazel, eða á íslenskunni
nornahesli, glýserín auk blöndu
steinefna úr Dauðahafinu. Kremið, svo
og aðrar vörur þessa merkis, eru einnig
vegan, parabenalausar, þalötlausar og
húðfræðilega prófaðar og samþykktar
fyrir viðkvæma húð.
Handkremið er því eitt hið allra
besta fyrir bæði heiminn og þá sem í
honum eru. Til viðbótar má nefna að
það djúpnærir hratt og örugglega auk
þess að einungis þarf að bera örlítið
magn á hendurnar til þess. Ein túpa
af kremi endist því lengi.
Kostir: Náttúrulegt og þykir gott
fyrir viðkvæmar hendur auk þess að
vera afar drjúgt.
Gallar:Innihaldsefnin, þá helst
nornaheslið, geta valdið ofnæmis-
viðbrögðum hjá fólki og því mikilvægt
að lesa vel hvað stendur á umbúðunum.
Að lokum
Niðurstöðurnar eru án efa þær að til
eru lausnir fyrir þá kynþokkafullu
iðnaðarmenn sem kjósa að mýkja sig
aðeins upp að utanverðu, ef til vill í
samræmi við þeirra innri mann. Gott
er að prófa sig áfram og hafa ber í huga
að eitt er ekki allra. /SP
*(ísl. tröllaviður)
Kynþokkafullir karlmenn:
Sigggróni múrarinn