Bændablaðið - 20.10.2022, Page 4

Bændablaðið - 20.10.2022, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 Málþingið Græn framtíð á degi landbúnaðar: Fæðuöryggi, orkuskipti og aðfangamál Málþingið Græn framtíð var haldin á Hilton Reykjavik Nordica, föstudaginn 14. október frá kl. 10–12. Það voru Bændasamtök Íslands sem blésu til málþingsins, sem markaði upphafið á degi landbúnaðarins. Síðar um daginn var landbúnaðarsýningin Íslenskur landbúnaður sett í Laugardalshöll, sem stóð yfir alla helgina. Húsfyllir var á málþinginu, sem helgað var framtíð íslensks landbúnaðar og umhverfismálum tengdum landbúnaði. Fyrirlesarar voru Ingólfur Frið­ riks son, úr utanríkisráðuneytinu, sem ræddi um ytri vídd fæðuöryggis, Rúnar Þór Þórarinsson, yfirmaður sjálfbærni og nýsköpunar Landeldi, sem talaði um fiskeldisúrgang sem öflugan áburð, Eygló Björk Ólafsdóttir, bóndi í Vallanesi, fjallaði um matvælaframleiðslu í skjóli skóga og lífræna ræktun, Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráð­ gjafar miðstöðvar landbúnaðarins, gerði grein fyrir hvernig upplýsingar koma að notum í baráttunni við loftslagsmál, og Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsbreytinga, orkuskipta og nýsköpunar Orkustofnunar, sagði frá orkunni sem býr í sveitinni. Í lokin ávarpaði Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis­, orku­ og loftslagsmála, gesti málþingsins. Líflegar pallborðsumræður Í pallborðsumræðum á eftir fyrirlestrunum tóku þátt þau Guðlaugur Þór, Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Helgi E. Þorvaldsson, formaður starfshóps um kornrækt, Hlédís Sveinsdóttir, meðhöfundur skýrslunnar Ræktun Íslands, Svanhildur Hólm, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Erna Björnsdóttir, fagstjóri matvæla og náttúruafurða hjá Íslandsstofu. Sköpuðust þar líflegar umræður um margvísleg málefni landbúnaðarins í fortíð, nútíð og framtíð. Í umræðum um fæðuöryggi vakti Helgi E. Þorvaldsson athygli á þeirri staðreynd að engar plöntukynbætur væru stundaðar á Íslandi í dag. Hann skýrði þá stöðu í því sögulega ljósi að þegar áföll dundu á þjóðinni, pestir, plágur og náttúruhamfarir, hafi áhersla verið lögð á kvikfjárrækt til að hámarka nýtingu á starfsfólki. Enda varð gjarnan veruleg fækkun mannfjölda á Íslandi í slíkum hamförum. Þá varð það hlutskipti til dæmis kornræktar að vera lögð til hliðar. Kerfið hafi síðan að vissu leyti verið byggt á þessari forsögu. Helgi sagði einnig að sagan hafi líka sýnt okkur að hægt væri að rækta korn á Íslandi með góðum árangri – til þess að það geti orðið þurfi hins vegar að byggja upp innviði til kornræktar. Bændur fá ekki nægilega mikið greitt Guðlaugur Þór sagði að íslenskir bændur geti borið höfuðið hátt. Það væri í raun bara eitt atriði í ólagi í íslenskum landbúnaði; bændur fengju ekki nægilega mikið greitt fyrir sínar vörur. Íslenskur landbúnaður gæti bara keppt við aðrar vörur í gæðum, ekki verðlagi. Bændur væru harðduglegt fólk sem fengi alls ekki það sem þeir ættu að bera úr býtum. Helgi tók undir með Guðlaugi Þór og benti á að afkomuskilyrði bænda væru víða orðin mjög slæm, hann heyri það á bændum að ástandið hafi sjaldan eða aldrei verið þyngra. Það hafi einmitt verið eitt aðalmálið í fæðuöryggisskýrslunni sem gefin var út í byrjun síðasta árs, að tryggja afkomu bænda. Hann sagði einnig að eitt brýnasta málið við endurskoðun rammasamnings búvörusamninga á næsta ári eigi að vera að sækja meira fjármagn til verkefna eins og plöntukynbóta, þannig að ekki þurfi að vera að bítast um það fjármagn sem stjórnvöld leggja þegar til landbúnaðarins. Góð ímynd landbúnaðarins Erna ræddi um hina góðu ímynd ar stöðu sem íslensk land­ búnaðarframleiðsla byggi við. Eitt af hlutverkum Íslandsstofu væri að aðstoða erlenda fjárfesta sem vilja koma til Íslands. Reynsla þeirra af samskiptum við fjárfesta væri sú að þeir séu mjög meðvitaðir bæði um hagstætt orkuverð á Íslandi, en einnig ímynd hinnar vistvænu orku. Góð tækifæri séu því til staðar fyrir Íslendinga að nýta sér þessa stöðu, með því annaðhvort að sækja fjárfesta til landsins eða fleiri neytendur erlendis frá. Upptökur frá málþinginu eru aðgengilegar í gegnum Facebook­ síðu Bændasamtaka Íslands. /smh FRÉTTIR Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, setur málþingið og þar með formlega dagskrá á degi landbúnaðarins. Líflegar pallborðsumræður sköpuðust, en þeim stjórnaði Guðmundur Gunnarsson, fréttastjóri Markaðarins. Orkuskipti sem möguleiki okkar til aðfangaöryggis Ingólfur Friðriksson, frá utan­ ríkisráðuneytinu, ræddi um það í sínu erindi hvaða möguleika Íslendingar hefðu sjálfir til að bæta aðfangaöryggi sitt – sem væri eitt af lykil atriðunum í átt að fæðuöryggi. Hann bendir á að með orku­ skiptum, frá jarðefnaeldsneyti yfir í vistvænt eldsneyti, megi taka stórt skref í þá átt. Einungis eitt til tvö prósent af núverandi innlendri raforkuframleiðslu þyrfti til að standa straum af allri áburðarnotkun í landinu. Hann sagði að mikil vinna hefði farið í það á undanförnum árum að safna upplýsingum um fæðuöryggismál á Íslandi. Fyrst í gegnum vinnu við mótun matvælastefnu fyrir Ísland til 2030 og svo við gerð fæðuöryggisskýrslu sem skilað var til atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytisins í febrúar á síðasta ári – auk þess sem skýrsla var gefin út nýlega um birgðahald. Ytri og innri ógnir Hann benti á að bæði væru ytri ógnir og innri sem ógnuðu íslensku fæðuöryggi, náttúruhamfarir, efnahagsáföll, stríð og þess háttar áhrifavaldar. Innri ógnirnar fælust einnig í innlendri matvælaframleiðslu og nefndi Ingólfur í því sambandi fjóra áherslupunkta úr fæðuöryggisskýrslunni, fjórar forsendur þess að fæðuöryggi geti hér verið tryggt. Að auðlindir til framleiðslunnar séu til staðar, einnig þekking og tæki til framleiðslu, auk þess sem aðgengi að aðföngum sé tryggt og birgðir nægar af nauðsynlegum fæðutegundum. Sagði hann að ljóst væri að þarna birtist nokkuð sterk undirliggjandi innflutningsþörf, til að styðja við þessar fjórar forsendur. Birgðir væru ónógar á Íslandi af ýmsum aðföngum – sem væri ein af helstu áskorunum innlendrar framleiðslu. Nefndi hann sérstaklega eldsneyti á skip og vélar, áburð og fóður til fiskeldis og landbúnaðar. Aðrir mikilvægir þættir væru baggaplast, vélar og tæki. Innfluttir aðfangaliðir ættu það sumir hverjir sameiginlegt að vera upprunnir úr jarðefnaeldsneyti. Vék Ingólfur því næst tali að þeim úrræðum sem Íslendingar hafa í hendi sér til að lagfæra þessa stöðu. Sérstaklega tiltók hann orkuskipti sem möguleika okkar til betra aðfangaöryggis. Í stað jarðefnaeldsneytis verði skipt yfir í vistvænt eldsneyti – vetni, ammoníak, rafeldsneyti og rafmagn – að í stað innflutts tilbúins áburðar gætu að einhverju leyti komið grænir orkugjafar til framleiðslu á ammoníaki auk þess sem hægt væri að nota græna orku til ræktunar. Eitt til tvö prósent raforkunnar dugi til áburðarframleiðslunnar Ingólfur telur að einungis þurfi eitt til tvö prósent af núverandi innlendri raforkuframleiðslu til að standa undir allri áburðarframleiðslu sem þörf sé fyrir á Íslandi – og að jafnvel gætu skapast tækifæri til útflutnings á áburði. Slíkur útflutningur gæti orðið Íslendingum mjög mikilvægur liður í átt að fæðuöryggi þar sem styrkari stoðum væri með því skotið undir okkar eigin framleiðsluþætti. Tækifæri væru einnig í nýsköpun við framleiðslu á fóðri og plasti, dæmi væru um það nú þegar í fiskeldi og spurning hvort hægt væri að nýta sér þau fordæmi að einhverju leyti við þróun á fóðri fyrir landbúnaðinn. /smh Ingólfur Friðriksson, úr utanríkisráðuneytinu, ræddi um ytri vídd fæðu­ öryggis á málþinginu. Sigurður Ingi Friðleifsson, frá Orkustofnun, fjallaði eins og Ingólfur um orku­ og fæðuöryggi. Fjölmenni var í fundarsal Hilton Reykjavik Nordica, föstudaginn 14. október. Myndir / smh

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.