Bændablaðið - 20.10.2022, Page 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
Í upphafi vil ég nota tækifærið og þakka
þeim sem sóttu Landbúnaðarsýninguna í
Laugardalshöllinni um helgina og litu við
á bás Bændasamtaka Íslands á sýningunni.
Það var okkur mikil ánægja að geta tekið
samtalið um landbúnað í hinni víðustu mynd,
bæði við bændur, frumframleiðendur og
neytendur. Fjölmargir sýndu þessari frábæru
sýningu áhuga og miðað við mannfjöldann
um helgina má ætla að sýningin hafi slegið
fyrri aðsóknarmet.
Ég vil því nota tækifærið og koma á framfæri
þökkum til starfsfólks Bændasamtakanna fyrir
frábæran undirbúning og vinnu við sýninguna
og einnig fyrir skipulag og utanumhald á
fyrsta degi landbúnaðarins sem haldinn var á
föstudagsmorgun fyrir opnun sýningarinnar.
Einnig vil ég koma á framfæri þökkum til
þeirra fyrirtækja sem styrktu okkur með
afurðum og veitingum sem voru hluti af
kynningarbás okkar á sýningunni og áttu
þátt í að skapa rækilega stemningu í kringum
afurðir bænda. Það er ljóst að það er mikill
meðbyr með íslenskum landbúnaði sem er
okkur bændum hvatning til áframhaldandi
góðra verka.
Af seyru og skítalykt
Dagur landbúnaðarins, málþing
Bændasamtakanna, undir yfirskriftinni
Græn framtíð, fór fram fyrir fullu húsi á
Hótel Nordica sl. föstudag í aðdraganda
Landbúnaðarsýningar. Á málþinginu var
fjallað um áskoranir og framtíðarverkefni
í landbúnaði á Íslandi og óhætt að segja að
mikill áhugi hafi verið fyrir viðburðinum.
Erindin á málþinginu voru afar áhugaverð
þar sem Ingólfur Friðriksson, staðgengill
skrifstofustjóra hjá utanríkisráðuneytinu
fjallaði um Ytri vídd fæðuöryggis, Rúnar Þór
Þórarinsson hjá Landeldi kynnti Visthæfingu
landeldis, úr fiskeldisúrgangi í öflugan
áburð, Eygló Björk Ólafsdóttir fræddi gesti
um starfsemina í Vallanesi og möguleika á
matvælaframleiðslu í skjóli skóga, Karvel L.
Karvelsson hjá RML, sýndi fram á nauðsyn
gagnasöfnunar og upplýsinga í landbúnaði og
hvernig þær geta komið að notum í baráttunni
við loftslagsmál og Sigurður Ingi Friðleifsson
hjá Orkustofnun hélt erindi um Fæðuöryggi
og orkuöryggi, sem nauðsynlegt er að tala
um samhliða og í sömu andrá, því það sé til
lítils að ræða fæðuöryggið ef ekki væri fyrir
orkuöryggið.
Einnig þarf að horfa til þess hvernig
landbúnaður getur þróast til framtíðar í
skipulagslegu tilliti þar sem ýmis atriði í
núverandi löggjöf stangast á við þá þróun.
Hvernig eiga framleiðendur landbúnaðarvara
að auka framleiðslu sína ef skilgreining á
skipulagi er þannig að ef um ræktun kjúklinga
eða svína er að ræða þurfi að tryggja allt að
600 metra fjarlægð að næstu íbúðabyggð?
Eru ef til vill aðrar lausnir líkt og úti í hinum
stóra heimi? Ég fæ ekki séð að 600 metrar í
Danmörku eða Hollandi geti gengið þar sem
land er af skornum skammti. Við verðum að
skilgreina þessa starfsemi með öðrum hætti
en gert er í dag ef við ætlum að ná því göfuga
markmiði að vera sjálfbær með stóran hluta
matvæla til að geta staðið undir fæðusjálfstæði
þjóðarinnar. Má ekki vera keimur af landbúnaði
í andrúmsloftinu í okkar nánasta umhverfi?
Fyrirheitin
Þá er umtalsvert rætt um þörfina á því
að efla og auka kornrækt hér á landi. Það er
verðugt verkefni sem bændur eru reiðubúnir
að takast á við, en það endurspeglast þó
ekki í því fjárlagafrumvarpi sem liggur
fyrir Alþingi í dag. Bændasamtökin hafa
lengi talað fyrir daufum eyrum almennings
og stjórnvalda um mikilvægi matvæla- og
landbúnaðarframleiðslu á Íslandi.
En síðustu misseri hefur orðið breyting
á. Einum manni frá einni þjóð sem tók eina
gerræðislega ákvörðun hefur tekist að setja
heimsálfuna á hliðina. Í alþjóðlegu samhengi
fer fæðuöryggi og sjálfstæði þjóðarinnar
algjörlega saman. Þess vegna þurfa stjórnvöld
að gefa þessi fyrirheit um framtíðina og
samþykkja fjárlög og landbúnaðarstefnu
sem taki til framtíðarinnar. Það er beinlínis
þjóðhagslega mikilvægt verk.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári.
Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (24. tölublöð) kostar þá kr. 12.200 með
vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 8.000 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Borgartúni 25, 4. hæð - 105 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Gróskan
Hægt er að slá því nokkuð föstu að
gífurlegur meðbyr sé með íslenskum
landbúnaði.
Það sást bersýnilega á pakkfullum
sal málþingsins Græn framtíð á degi
landbúnaðarins föstudaginn 14. október.
Þar tóku til máls málsmetandi einstaklingar
með fjölbreytta og spennandi sýn á
framtíð atvinnugreinarinnar. Ingólfur
Friðriksson frá utanríkisráðuneytinu
gerði aðfangaöryggi að umfjöllunarefni
sínu. Hann telur að einungis þurfi eitt
til tvö prósent af núverandi innlendri
raforkuframleiðslu til að standa undir
allri áburðarframleiðslu sem þörf sé fyrir
á Íslandi – og að jafnvel gætu skapast
tækifæri til útflutnings á áburði. Rúnar
Þór Þórarinsson frá Landeldi sagði frá
tækifærum við nýtingu lífræns úrgangs
frá landeldi laxa sem er í örum vexti.
Eygló Björk Ólafsdóttir bóndi fjallaði um
samspil skógræktar og lífrænnar ræktunar.
Karvel Karvelsson hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins benti á að stígandi framför
í landbúnaði kæmu ekki að sjálfu sér,
gagnaöflun og úrvinnsla upplýsinga væri
þar meginþáttur og það sé að endurspeglast
í augljósum vexti í framleiðni og
árangri í umhverfismálum. Sigurður
Ingi Friðleifsson hjá Orkustofnun gerði
orkuskipti að umfjöllunarefni. Hann benti
réttilega á að landið myndi lamast á mánuði
án olíuinnflutnings. Við getum varla talað
um einhverja undirstöðuframleiðslu, hvað
þá afleiddar atvinnugreinar, nema hafa til
þess grunnorku.
Í pallborðsumræðum í kjölfar erinda var
ýmislegt sem brann á þeim sem á sviðinu
sátu; að íslenskir neytendur ættu að hafa
sjálfsagðan rétt á að drekka ógerilsneydda
mjólk, að íþyngjandi regluverk væri
hamlandi fyrir atvinnugreinina, að við
værum ekki að nýta okkur gæðastimpil
landbúnaðarframleiðslu nógu vel og að það
væri í raun fáránlegt að ekki væru stundaðar
plöntukynbætur á Íslandi.
Tugþúsundir mættu á stórsýninguna
Íslenskur landbúnaður 2022 sem haldin
var í Laugardalshöll í kjölfar málþingsins,
helgina 14.–16. október. Þar voru kynntar
vörur og þjónusta bænda, fyrirtækja og
stofnana sem öll eiga það sameiginlegt að
vinna að uppgangi landbúnaðar á einn eða
annan hátt.
Starfsmenn Bændablaðsins voru á
vappi á sýningunni. Þeir voru hluti af bás
Bændasamtaka Íslands, sem hafði til sýnis
fjölbreytta landbúnaðarframleiðslu. Þar var
fólk sem vinnur í þágu íslensks landbúnaðar
og ræddu við gesti um hagsmunamál
starfsstéttarinnar. Ef marka má þá jákvæðni
sem okkur mætti, er engum blöðum um það
að fletta að hjarta þjóðarinnar slær með
íslenskum landbúnaði.
Það er auðvelt að vera nautnaseggur
á Íslandi. Á meðan ég pára þennan pistil
gæði ég mér á bláberjagrafinni léttreyktri
ærlund, sýrðu rótargrænmeti, spírukonfekti
og bragðsterkum geitaosti, dýfi honum
létt í birkisíróp og dreypi á mjólkurlíkjöri
með því, allt matvörur sem kynntar
voru fyrir mér á stórsýningunni. Hvílík
endemis dýrð úr nægtarbrunni íslenskrar
landbúnaðarframleiðslu.
Hversu heppin erum við? Að geta gengið
að gæðavörum úr heilnæmum hráefnum,
framleiddum af hugviti úr íslenskri náttúru
og umhverfi, sem við erum að leggja okkur
fram við að verja eftir bestu getu. Að baki
liggur hagsmunabarátta forvera okkar,
ofsalegur vilji, hugsjón og vinnusemi.
Nú er það okkar að vinna markvisst
að áframhaldandi þróun og halda þessari
grósku áfram.
/ghp
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
GAMLA MYNDIN
Ritstjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir (ábm.) gudrunhulda@bondi.is – Sími: 563 0339 – Blaðamenn: – Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is
Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303
Netfang auglýsinga: thordis@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Heyfengur á Skógarsandi 1955. Algengt var að ýta þurrheyi í sátur til geymslu og breiða yfir þær striga til að ekki rigndi ofan í þær.
Mynd / Gunnar Rúnar
Áfram veginn