Bændablaðið - 20.10.2022, Side 20

Bændablaðið - 20.10.2022, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 FRÉTTASKÝRING Í rammasamningi er kveðið á um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins, en síðan eru sérstakir samningar um nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju – sem samkomulag er um á milli samningsaðila að styðja sérstaklega við með beinum greiðslum til bænda. Áður hét þessi samningur „búnaðarlagasamningur“, í samræmi við setningu búnaðarlaga árið 1998 sem enn eru í gildi, og fjallaði um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins. Á honum varð nafnabreyting við samningsgerðina 2016. Stuðningur við búgreinar í sögulegu ljósi Núverandi form búvörusamninga nær aftur til ársins 1985, en niðurgreiðslur stjórnvalda til búvöruframleiðslu hófust árið 1943. Lengi hefur verið um það deilt hvort líta beri á ríkisstuðning við búgreinar sem launagreiðslur til bænda, eða niðurgreiðslur á innlenda búvöruframleiðslu. Ljóst er að þegar byrjað var að niðurgreiða búvörur var það liður í viðleitni stjórnvalda til að draga úr verðbólgu og tryggja bændum viðlíka laun og sambærilegar stéttir þjóðfélagsins höfðu. Þá höfðu landbúnaðarvörur hækkað í verði sem olli mikilli óánægju í samfélaginu og leiddi til verkfalla. Á þeim árum voru laun að miklu leyti verðtryggð og full verðlagsuppbót greidd á laun mánaðarlega samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar. Því var það sameiginlegur hagur stjórnvalda og neytenda að niðurgreiða búvörur til að halda vísitölu og verðbólgu niðri. Einnig er ljóst að stuðnings- greiðslur við bændur í dag eru ekki greiddar sem laun, heldur felast í þeim möguleikar bænda á að selja afurðir sínar ódýrari en annars væri hægt – sem þannig kemur neytendum til góða. Óvenju langir búvörusamningar Gildistími núgildandi búvöru- samninga er óvenju langur, eða tíu ár, en annars hafa búvörusamningar gilt í mesta lagi til sjö ára. Ástæðan fyrir hinum langa gildistíma var sögð sú, að með síðustu samningum hafi verið ráðist í talsverðar breytingar á starfsumhverfi landbúnaðarins sem kallaði á langtímahugsun. Raddir hafa hins vegar heyrst um að æskilegt væri að samningarnir giltu í mun skemmri tíma, eða væru endurskoðaðir oftar, svo starfsskilyrði bænda geti slegið betur í takt við þjóðarpúlsinn og ríkisfjármálin á hverjum tíma. Á fyrstu tveimur árum búvörusamninganna, árin 1985 til 1986, var gildistími þeirra einungis eitt ár. Ekki lögbundnir samningar Búvörusamningar eru ekki lögbundnir í þeim skilningi að stjórnvöldum er heimilt en ekki skylt að leita samninga við BÍ um gerð þeirra. Ef einhvern tíma myndast meirihluti á Alþingi Íslendinga fyrir því að ekki verði gerðir búvöru- samningar þá er ekkert lagalega sem mælir á móti því. Hins vegar má leiða líkur að því að slíkt myndi leiða til upplausnarástands í þjóðfélaginu. Samningar myndu þá renna út á gildistíma, en áfram giltu lögfestar reglugerðir sem myndu skapa margvíslega ringulreið í stjórnkerfinu – enda væri stuðningskerfið við landbúnað í raun ófjármagnað. Norðmenn hafa fastmótað kerfi; grunnsamningur sambærilegur íslenskum búvörulögum er lögbundinn og þar fer fram árlegt uppgjör og/eða endurskoðun. Önnur Norðurlönd eru bundin sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins (CAP). Svigrúm er þó meðal landa að útfæra sértækar aðgerðir til stuðnings eigin landbúnaði. CAP hefur venjulega náð til sjö ára, en næsta tímabil styttist um tvö ár þar sem langan tíma tók að ramma inn stórauknar áherslur í loftslagsmálum og mun það því gilda frá 2023 til 2027. Tímamótasamningar til tíu ára Búvörusamningarnir íslensku sem tóku gildi árið 2017 og gilda út árið 2026 voru að ýmsu leyti tímamótasamningar, því þá birtust áherslur sem áður höfðu ekki komið fram með jafn afgerandi hætti; eins og í tollamálum, upplýsingagjöf til neytenda, íslenskar upprunamerkingar, fæðuöryggismál, stuðningur við ylrækt vegna raforkukostnaðar – og einmitt loftslagsmál. Segja má að við gerð samninganna árið 2016 hafi hugmyndafræðin verið að samræma betur stuðninginn við landbúnaðinn og leggja meiri áherslu á sameiginlega þætti búgreina, eins og með sérstökum stuðningi við jarðrækt, landgreiðslum og aukið vægi nýliðunar- og nýsköpunarstyrkja. Meiri fjármunir fengust enn fremur með þeirri nálgun inn í samningana. Má leiða líkur að því að þar hafi verið tekið ákveðið skref í átt að því markmiði að sameina samningana að lokum undir einum hatti. Af hálfu stjórnvalda var unnið út frá því markmiði að efla íslenskan landbúnað til framtíðar, til að styrkja fæðuöryggi þjóðarinnar, efla búsetu í dreifðum byggðum landsins og auka sóknarfæri á erlendum mörkuðum og í ferðaþjónustu. Samsvarandi áherslur fólu í sér stefnu í átt að almennari stuðningsformum, óháðum búgreinum, til að opna möguleika á nýtingu nýrra tækifæra. Þá voru áherslur í þá átt að stuðla að aukinni og arðbærari framleiðslu landbúnaðarafurða, eflingu landbúnaðar sem atvinnugreinar í dreifðum byggðum og sjálfbærri landnýtingu. Einnig voru settar fram áherslur í að styrkja fæðu- og matvælaöryggi, auk þess að auðvelda nýliðun. Til grundvallar áherslum stjórn- valda lágu meðal annars gögn frá tveimur háskólum; Rannsóknar- stofnun Háskólans á Akureyri, skýrslan „Markmið og forsendur sauðfjársamnings“, sem gefin var út í nóvember 2015, og skýrsla Háskóla Íslands, „Mjólkurvöruframleiðsla á Íslandi – Staða og horfur“, birt í maí 2015. Fjárfestingastyrkir í svínarækt Í rammasamningi sem tók gildi árið 2017 er í fyrsta skipti kveðið á um styrkveitingar til svínaræktar, ekki beingreiðslur heldur fjárfestingar- styrkir. Voru þeir hugsaðir til að aðstoða bændur við að uppfylla hertar aðbúnaðarkröfur þar sem ljóst var að svínabændur þurftu að fara í kostnaðarsamar breytingar á sínum húsakosti. Til annarra búgreina er ekki sérstaklega vísað í rammasamningi, utan smærri verkefna á sviði geit- fjárræktar, lífrænnar framleiðslu og fleiri þátta sem eru ekki bundnir við búgreinar. Í honum verða hins vegar þau nýmæli að Bændasamtökum Íslands verður heimilt að ráðstafa fjármunum sem ætlaðir eru til leiðbeiningaþjónustu, til Ráðgjafarmiðstöðvar land- búnaðarins (RML), sem hóf formlega starfsemi 1. janúar 2013 við sameiningu ráðgjafarþjónustu búnaðarsambandanna í landinu og ráðgjafarsviðs BÍ. Áður fyrr voru ráðunautar Búnaðarfélags Íslands á beinum launum hjá ríkinu, auk þess sem ráðgjafarstörf í landbúnaði voru fjármögnuð í gegnum búnaðarsambönd. Afnema átti kvóta- og greiðslumarkskerfi Eitt aðalatriði samninganna árið 2017 var það upplegg að stefnt yrði að því að afnema kvótakerfi í mjólkurframleiðslu og greiðslu- markskerfi í sauðfjárrækt – og þar með framseljanlegt stuðningskerfi þessara greina. Rökin voru þau meðal annars að þessi kerfi hindruðu aðgengi að greinunum, auk þess sem fjármunir rynnu til bænda á leið út úr greininni og til fjármálastofnana sem fjármagnskostnaður. Við endurskoðun á þessum samningum var snúið frá stefnu grunnsamninganna í þessum málum. Fyrst með endurskoðun sauðfjársamnings 11. janúar 2019, þar sem hætt var við að afnema greiðslumark en draga fremur úr vægi þess frá ári til árs, og síðan við endurskoðun nautgripasamnings 25. október 2019, eftir að kúabændur BORGARPLAST hefur framleitt rotþrær, skiljur og geyma sem hafa margvísleg notagildi fyrir vatn, efnavöru og fleira, í yfir 50 ár. BORGARPLAST sérmíðar risarotþrær, -skiljur og -vatnsgeyma fyrir sveitarfélög og sumarhúsafélög. Borgarplast.is borgarplast@borgarplast.is ROTÞRÆR, VATNSTANKAR OG SKILJUR – MARGAR STÆRÐIR OG TEGUNDIR ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í YFIR 50 ÁR Búvörusamningar fjalla um starfsskilyrði íslenskra bænda til búvöruframleiðslu. Mynd / ghp Búvörusamningar verða endurskoðaðir á næsta ári: Sáttmáli stjórnvalda og bænda um starfsskilyrðin til búvöruframleiðslu Seinni endurskoðun búvöru samninganna sem tóku gildi 2017 er á dagskrá á næsta ári. Undirbúningsvinna er hafin innan Bændasamtaka Íslands (BÍ), þar sem mat er lagt á hvort markmið samninganna hafi náðst. Í búvörusamningum semja stjórnvöld og BÍ um starfsskilyrði bænda í fjórum sérstökum samningum. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.