Bændablaðið - 20.10.2022, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
Gaman er að geta þess að Leikfélag Vestmannaeyja
hefur starfað lengur en elstu menn muna en
leiklistarstarfsemi hófst í Eyjum um miðja 19. öld.
Er enn talað um er kvenfélagið Líkn, snemma á
tuttugustu öldinni, reið á vaðið með sýningu leikritsins
Ævintýri á gönguför eftir Jens Christian Hostrup. Var
leikritið afar vinsælt á þessum tíma og sýnt víða um
land. Þess ber að geta að kvenfélagið hélt í framhaldinu
lengi uppi leikstarfsemi við hin ýmsu tækifæri og góðan
hljómgrunn.
Ávaxtakarfan vinsæla
Eitt vinsælasta barnaleikrit allra tíma, Ávaxtakarfan
eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur, verður frumsýnt
þann 28. nóvember nk. en leikfélag Vestmannaeyja býður
upp á þá dýrð undir styrkri hönd leikstjórans Ólafs Jens
Sigurðssonar.
Fjallar verkið um lærdómsríkt ferli persóna, í gervi
ávaxta, sem opna augu sín fyrir því að í raun skipti
einungis innræti máli – ekki útlit. Saga ávaxtanna fer
yfir viðkvæmt en áleitið efni á borð við einelti og
fordóma, en í ávaxtakörfunni ræður Immi ananas ríkjum
með kúgun og ógnarstjórn. Maja jarðarber er hvað
útsettust fyrir einelti en það breytist er Gedda gulrót
kemur í körfuna.
Verður Gedda fyrir fordómum þar sem hún er grænmeti
en ekki ávöxtur og tekur því við af Maju. Kemur svo að því,
eins og áður sagði, að íbúar körfunnar átta sig á að innræti
skiptir mestu máli og á því boðskapur leikritsins alltaf við
þó ekki sé nema til að vekja viðstadda til umhugsunar.
Sýningartími
Sýnt verður á Heiðarvegi 19, Vestmannaeyjum og er
frumsýningin klukkan átta.
Næsta sýning verður svo strax daginn eftir, kl. 15
á laugardeginum 29. nóvember og á sunnudeginum á
sama tíma. Ráðgert er að sýningarnar verði um tíu talsins
alls, og þá um helgar, laugar- og sunnudaga klukkan 15.
Nánari upplýsingar má fá í síma 852 1940 eða á
Facebook-síðu leikfélagsins. /SP
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirðinum er
mörgum kunnugt, en þar verður nú fyrsta
vetrardag, 22. október, haldin sannkölluð
tónlistarveisla undir nafninu Eitt spor enn.
Stendur Hollvinafélag leikhússins fyrir
uppákomunni, en um ræðir tónleikahald með
lögum Eiríks Bóassonar. Sá er vel þekktur
innan veggja leikhússins enda hefur hann
tekið þátt í ófáum sýningum sl. 30 ár, bæði
á sviði jafnt sem tónlistarflutningi. Eftir Eirík
liggur fjöldinn allur af lögum við texta hinna
ýmsu listamanna og eru þó nokkur þeirra
útgefin. Fá tónleikagestir að heyra gott úrval
laga Eiríks í flutningi frábærra hljóðfæraleikara auk hans sjálfs.
Fram koma:
Karlakór Eyjafjarðar undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar, Kirkjukór
Laugalandsprestakalls undir stjórn Þorvalds Arnar Davíðssonar, Jódís,
Svetlana Beliaeva, Olga Ivkhuanova, Óskar Pétursson, Margrét Árnadóttir
og Hannes Örn Blandon.
Hljómsveitin, Ingólfur Jóhannsson, Hermann Arason, Halldór G. Hauksson,
Kristján Jónsson, Guðlaugur Viktorsson, Einar Guðmundsson og Eiríkur
Bóasson. leikur undir og má vænta mikillar stemningar, gleði og glaums.
Kynnir verður Valdimar Gunnarsson, skemmtunin hefst kl. 20 og miðaverð
er 3.000 kr. Miðasala í síma 857-5598 og á freyvangur@gmail.com.
Lúðrasveit Þorlákshafnar í samstarfi við Jónas Sig.
Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá því platan Þar sem himin ber við haf
kom út ætla Jónas Sig. og Lúðrasveit Þorlákshafnar að blása til glæsilegra
tónleika í Háskólabíói 11. nóvember.
Fjallað er um þetta frábæra samstarf annars staðar í blaðinu, á síðu 38
nánar tiltekið, en til viðbótar við hópinn leika félagarnir Tómas Jónsson á
hljómborð, Ómar Guðjónsson á gítar, Guðni Finnsson á bassa og Arnar
Þór Gíslason á trommur. Hefjast tónleikarnir í Háskólabíói klukkan 20
og má finna miða á tix.is.
Annað samstarf sem
vert er að geta er að nú
blása þeir Magnús og
Jóhann ti l tónleika
í Bæjar bíói þann 21.
október. Er tilefnið 50
ára samstarfsafmæli þeirra
félaga, en hljómborðsleikarinn
og góður vinur þeirra, Jón
Ólafsson, verður þeim innan
handar. Hefst gleðin klukkan
20 og miða má finna á tix.is.
Á döfinni ...
Eiríkur Bóasson.
Leikfélag Vestmannaeyja:
Ávaxtakarfan í Eyjum
Immi ananas, sem leikinn er af Alberti Snæ Tórshamar, horfir yfir hópinn með þóttasvip.
Verkið Gulleyjan í höndum
Valgeirs Skagfjörð leikstjóra
verður frumsýnd sunnudaginn 23.
október en söguna þekkja margir
frá barnæsku.
Verkið er skrifað það herrans ár
1882 af skoska rithöfundinum og
ljóðskáldinu Robert Louis Stevenson
og fjallar í stórum dráttum um
ævintýralegustu fjársjóðsleit allra
tíma. Má segja að þarna sé um
fyrirmynd allra sjóræningjasagna að
ræða og með hinn vel kynnta Langa
John Silver í einu aðalhlutverkinu.
Gulleyjan er leik- og söngleikur af
bestu gerð fyrir alla fjölskylduna
eftir Robert Louis Stevenson, eins
og áður sagði, en einnig þá Karl Ágúst
Úlfsson og Sigurð Sigurjónsson.
Sýningin er full af kostulegum
persónum, bardögum og allsherjar
göldrum enda slá hér liðsmenn
Leikfélags Fljótdalshéraðs rækilega
í gegn á fjölunum. Sýnt verður í
glæsilegu, nýuppgerðu menningarhúsi
á Egilsstöðum, Sláturhúsinu, en
frumsýnt er 29. október næstkomandi.
Aðrir sýningadagar Gulleyjunnar
eru svo 30. október kl. 15.00,
2. nóvember kl. 18.00, 3. nóvember
kl. 18.00, 5. nóvember kl. 15.00,
6. nóvember kl. 15.00, 10. nóvember,
kl. 18.00 og 12. nóvember, kl. 15.00.
Hægt er að tryggja sér miða á
vefsíðunni bit.ly/gulleyjan.
/SP
Leikfélag Fljótsdalshéraðs:
Gulleyjan sívinsæla
Leikfélag Kópavogs frumsýnir
Þjófa og lík, tvo einþáttunga eftir
Dario Fo, sunnudaginn 30. október.
Leikþættirnir eru Lík til sölu í
leikstjórn Arnar Alexanderssonar
og Betri er þjófur en snurða á þræði
í leikstjórn Sigrúnar Tryggvadóttur.
Nóbelsskáldið Dario Fo þarf
vart að kynna enda hafa leikverk
hans notið mikillar hylli hérlendis
í gegnum tíðina. Spilling valdsins
er rauður þráður í mörgum verka
Dario Fo. Þau einkennast af bítandi
húmor í garð valdhafa, hvort sem
það er lögreglan, kaþólska kirkjan
eða stjórnmálamenn. Þau eru einnig
innblásin af ítalskri leikhúshefð, ekki
síst Commedia dell’arte.
Alls taka 13 leikarar þátt í
sýningunum sem verða á sviðinu í
Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi
fram eftir nóvember. Leikmynd og
búningar eru í höndum Maríu Bjartar
Ármannsdóttur.
Miðasla er á vef leikfélagsins,
www.kopleik.is. /SP
Leikfélag Kópavogs:
Þjófar og lík
Efri röð frá vinstri: Sigurður Friðrik Þórsson, Zoe Pidakou, Jarþrúður Hólmdís
Júlíusdóttir, Sandra Ester Jónsdóttir, Andri Þór Ómarsson, Margrét Inga
Guðmundsdóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Jón Vigfússon. Neðri röð frá vinstri:
María Sigurðardóttir, Árný Birta Eysteinsdóttir, Sólgerður Vala Kristófersdóttir.
Ágúst Bragi Daðason, Víðir Már Pétursson og Auðbjörg Elfa Stefánsdóttir.
Ellen Dögg Sigurjónsdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir.
Guðný Emilíana Tórshamar í hlutverki Mæju jarðarbers.
Sólgerður Vala Kristófersdóttir,
Sandra Ester Jónsdóttir og Stefán
Bogi Sveinsson.