Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
LÍF&STARF
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Tugþúsundir gesta heimsóttu stórsýninguna
Íslenskur landbúnaður í Laugardalshöllinni
um síðustu helgi. Á sýningunni gafst gestum
tækifæri á að skoða alla þá fjölbreytni sem
íslenskur landbúnaður hefur upp á að bjóða.
Auk þess að skoða nýjustu tæki og tól fyrir
landbúnað gátu gestir smakkað á ótrúlegu úrvali
gómsætra afurða frá fjölda minni og stærri
framleiðenda.
Forseti Íslands og matvælaráðherra fluttu
ávarp við opnun sýningarinnar og voru þau
sammála um nauðsyn öflugs landbúnaðar í
landinu sem undirstöðugreinar í samfélaginu
og að nauðsynlegt væri að styrkja stoðir
greinarinnar til að tryggja fæðuöryggi í landinu.
Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri
sýningarinnar, sagði í samtali við Bændablaðið
að fjölbreytni landbúnaðarins á Íslandi sé mikil
og að sýningin hafi að hans mati endurspeglað
þá miklu grósku. / VH
Íslenskur landbúnaður 2022:
Margt að sjá og bragða á
Íslenskar rósir í boði blómaframleiðenda og Bændasamtakanna.
Mynd / ghp
Margt var um manninn á landbúnaðarsýningunni alla sýningardagana. Mynd / ghp
Vörur Sveppagarðsins voru afar vinsælar hjá gestum sýningarinnar. Mynd / VH
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2022 var formlega opnuð af forseta Íslands. Ólafur M. Jóhannesson sýningarhaldari, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands og Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. Mynd / Odd Stefán
Magnús Þór Stefánsson garðyrkjumaður og Ragnheiður Hrefna Jónsdóttir,
fyrrverandi garðyrkjubóndi, í bás Lambhaga. Mynd / VH
Guðrún Birna Brynjarsdóttir, starfsmaður Bændasamtakanna, stóð vaktina á sýningunni og fræddi gesti um ólíkar hliðar landbúnaðar. Mynd / ghp
Hjónin William Óðinn LeFever og Gréta Mjöll Samúelsdóttur búa á Djúpavogi
og framleiða þar sterkar sósur í nafni fyrirtækisins LeFever Sauce co. Mynd / ghp