Bændablaðið - 20.10.2022, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
Þakefnasala Íslands er með allt sem þarf til þaklagna.
Þakpappa frá Ítalska fyrirtækinu Pluvitec
en þeir eru með yfir 30 ár reynslu af framleiðslu þakpappa.
Pluvitec framleiðir þakpappa eftir sérpöntun og því býður
Þakefnasalan þakpappa fyrir íslenkar aðstæður.
Pluvitec þakpappi stenst alþjóðlegar gæða og öryggisstaðla
(ISO 9001 - ECO 100 - EPD EN 15804) og er Svansvottaður.
Bæjarhraun 24, 220 Hafnarfjörður
8370303 - 6661425
thakefnasala@thakefnasala.is
www.thakefnasala.is
Lofttúður og niðurföll í mörgum stærðum Sérhæfð verkfæri og festingar til þaklagna
Ekki hika við að hringja eða senda okkur línu til að fá upplýsingar,ráðgjöf eða verðtilboð
Horfst í augu við kartöflu
Frá fræi á disk. Mynd / Grasagarðurinn í Reykjavík
Kartafla er ekki alltaf það sama
og kartafla.
Á Íslandi eru ræktaðar bleikar,
dökkrauðar, skærgular, fjólubláar,
svartar og jafnvel doppóttar
kartöflur. Sumar kartöflur eru
ljúffengar á meðan aðrar slá ekki
í gegn hvað bragðgæði varðar en
allar eiga það sameiginlegt að vera
upphaflega ræktaðar upp af fræjum.
Fyrsta vetrardag, laugardaginn
22. október, býður Grasagarðurinn
áhugafólki fræðslu um kartöflu
ræktun og Garðyrkjufélag Íslands
til áhugaverðrar fræðslu um
frækartöflur.
Áhugasömum býðst að koma og
kynna sér þessa ótrúlega spennandi
nýjung í íslenskri matjurtaræktun
á milli kl. 11 og 13 þennan dag í
garðskála Grasagarðsins. Þátttaka
er ókeypis og öll velkomin. /VH
Gramsverslun til sölu
Byrjað er að taka við umsóknum
frá aðilum sem vilja kaupa
Gramsverslun á Þingeyri með
þeim kvöðum að húsinu verði
komið í upprunalega mynd.
Húsið er 350 fermetra
bárujárnsklætt timburhús á tveimur
hæðum, byggt árið 1890 og þjónaði
sem verslun. Umsóknarfrestur
er til 24. október næstkomandi.
Umsóknum skal fylgja áætlun um
endurbætur og framtíðarnotkun.
Nýir eigendur munu fá húsið afhent
í núverandi ástandi, en samkvæmt
úttekt þarf að fara í mjög viðamiklar
framkvæmdir til að koma húsinu í
nothæft ásigkomulag.
Þau atriði sem þarf að laga
eru eftirfarandi: Fjarlægja þarf
undirstöður og steypa nýjar; koma
þarf lagi á burðargrind; endurnýja
þarf timbur og bárujárnsklæðningu;
lagfæra grind og klæðningu í þaki,
endurnýja allar hurðir og glugga;
rétta húsið af. Óljóst er hvort húsið
sé tengt við vatns og fráveitukerfi.
Umsóknum skal skilað rafrænt á
bygg@isafjordur.is. /ÁL
Bágborið ásigkomulag hússins þýðir að nýrra eigenda mun bíða mikið verk
á Þingeyri. Mynd /Tæknistofa Vestfjarða
Katrínu ekki slátrað
Á hringferð sinni um landið í vor
kom Katrín Jakobsdóttir við á
Skarðaborg í Reykjahverfi.
Þar var sauðburður í fullum gangi
og var ráðherrann fenginn til að taka
á móti lambi sem í kjölfarið fékk
nafnið Katrín. Í haust kom þessi
gimbur af fjalli og ákváðu Helga
og Sigurður, bændur á Skarðaborg,
að Katrín yrði líflamb.
Frá þessu greinir forsætisráðherra
á Facebooksíðu sinni eftir að hún
hitti gimbrina öðru sinni í byrjun
mánaðar. /ÁL
Myndin til vinstri er tekin við sauðburð í vor. Til hægri sést endurfundur
Katrínar og Katrínar í haust. Myndir / Facebook-síða Katrínar Jakobsdóttur
Kemur næst út 3. nóvember