Bændablaðið - 20.10.2022, Qupperneq 42

Bændablaðið - 20.10.2022, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 Reglum um viðbrögð við riðu hefur hins vegar ekki verið breytt – þannig að ef upp kemur riða í hjörðum þarf umsvifalaust að skera þær niður – alla gripina, þá sem eru með verndandi arfgerðir jafnt sem aðra. Umsóknir um söluleyfi voru afgreiddar 12. september og þeir bæir sem hafa fengið leyfi eru Þernunes í Reyðarfirði, eini bærinn með gripi af ARR-arfgerð, og fjórir bæir þar sem arfgerðin T137 hefur fundist í gripum; Stóru-Hámundarstaðir á Árskógsströnd, Möðruvellir 3, Engihlíð og Reykir. Tvær sauðfjársæðingastöðvar eru reknar í landinu; sauðfjár- sæðingastöð Vesturlands á Hvanneyri og sauðfjársæðingastöð Suðurlands á Selfossi. Þangað veljast inn kynbótahrútar sem sauðfjárræktarráðunautar hjá Ráð- gjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) bera ábyrgð á að velja. Eyþór Einarsson er í þeim hópi og segir hann að þrír hrútar með ARR-arfgerð og tveir með T137- arfgerð hafi verið keyptir til að nota á stöðvunum og hafi nýlega verið þangað fluttir. Breytingar á reglum um viðbrögð við riðu Eftir stórtækan niðurskurð á Norðurlandi vegna riðutilfella á nokkrum bæjum árið 2020, var Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir fengin til að ráðast í endurskoðun á reglum sem varða viðbrögð við riðuveiki, fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Hún skilaði sínum tillögum að nýjum reglum í desember 2021, sem fóru síðan í lokað umsagnarferli. Hjá matvælaráðuneytinu er nú unnið að því að móta nýjar reglur eftir yfirferð á umsögnum. Gimsteinn 21-001 frá Þernunesi hefur nú yfirgefið heimahagana og er kominn í hóp sæðingahrúta. Mynd / Eyþór FRÉTTASKÝRING Fyrstu hrútar sæðingastöðvanna með ARR og T137 – Ættir, kynbótamat og stigun kynbótahrútanna sem hafa nú yfirgefið heimahagana Kynbótagripir fluttir yfir sauðfjárveikivarnalínur: Gimsteinn kominn á sæðingastöð – Enn unnið að breytingum á reglum um viðbrögð við riðu í ráðuneytinu Um miðjan ágúst tilkynnti Matvælastofnun að hún ætlaði að nýta sér undanþáguákvæði í lögum um dýrasjúkdóma og veita undanþágu fyrir sölu á líflömbum og kynbótagripum með mögulegar verndandi arfgerðir gegn riðusmiti yfir sauðfjárveikivarnalínur. Þann 23. september samþykkti matvælaráðherra breytingu á reglugerð þar að lútandi. Í fyrsta skipti í sögu sauðfjárræktar á Íslandi verða í boði hrútar á sæðingastöðvunum sem greindir hafa verið með arfgerðina ARR, sem viðurkennd er sem verndandi arfgerð gegn riðuveiki. Einnig verður nú boðið upp á hrúta sem bera stökkbreytinguna T137 en væntingar standa til þess að kindur með þá arfgerð geti ekki borið riðuveiki. Nýlega voru þessir gripir metnir af ráðunautum RML og hér að neðan fara dómar um þá. Allir þessir hrútar sem nú eru á leið á sæðingastöðvarnar verða betur kynntir í væntanlegri hrútaskrá. „ARR-hrútar“ Gimsteinn 21-001 frá Þernunesi F: Kubbur 20-004 frá Melum M: Katrín 20-071 frá Þernunesi BLUP Gerð: 115 BLUP Fita: 98 BLUP Frjósemi: 107 BLUP Mjólkurlagni: 104 Gimsteinn er kollóttur hreinhvítur að lit. Hrúturinn er afbragðsvel gerður. Hann var ekki stigaður sem lamb en hlaut dóm nú í haust, veturgamall og hlaut þá 87 stig. Faðir Gimsteins, Kubbur 20-004, er kaupahrútur frá Melum í Árneshreppi, sonur Illuga 16-225 og Ollu 19-258 sem var dóttir Fálka 17-821 frá Bassastöðum. Í móðurætt er Gimsteinn kominn út af Njálu 13-301 frá Kambi á tvo vegu. Gullmoli L70 frá Þernunesi F: Einar 19-004 frá Þernunesi M: Njálu-Brenna 17-717 frá Þernunesi BLUP Gerð: 115 BLUP Fita: 98 BLUP Frjósemi: 102 BLUP Mjólkurlagni: 106 Gullmoli er hreinhvítur og kollóttur. Hann er glæsilegt lamb, stigaðist upp á 87,5 stig. Gullmoli er kominn út af Njálu 13-301 frá Kambi líkt og Gimsteinn, en Njála er móðuramma Gullmola en Gimsteinn rekur sig í Njálu í fjórða lið í gegnum Skarphéðin 16-013 sem var sonur Njálu. Hornsteinn L224 frá Þernunesi F: Gimsteinn 21-001 frá Þernunesi M: 21-033 frá Þernunesi. BLUP Gerð: 108 BLUP Fita: 105 BLUP Frjósemi: 109 BLUP Mjólkurlagni: 103 Hornsteinn er sívalhyrndur, hreinhvítur að lit. Þetta er vel gert lamb en vantaði örlítið meiri þroska til að ná framúrskarandi stigun en hann hlaut 84 stig. Hornsteinn var með 28 mm bakvöðva, fitan mældist 3,2 mm og lögun vöðvans 4,5. Hann vó 42 kg og fótleggur mældist 107 mm. Móðurættin er blönduð af hyrndu og kollóttu fé en MMF hans er Frosti 14-987 frá Ketilseyri. Þá er formóðir Gimsteins, Njála 13-301 frá Kambi á bakvið móður hans í fimmta ættlið. T137-hrútar Austri 20-623 frá Stóru Hámundarstöðum F: Amor 17-831 frá Snartarstöðum M: Hrísey 15-546 frá Stóru-Hámundarstöðum BLUP Gerð: 120 BLUP Fita: 112 BLUP Frjósemi: 98 BLUP Mjólkurlagni: 104 Austri er hvítur að lit og vel hyrndur. Hann var sjálfur vel gerður og hlaut sem lambhrútur 87 stig. Austri er hörkugóður lambafaðir, skilar vænum lömbum og sá hrútur búsins sem skilað hefur best gerðu sláturlömbunum. Móðir Austra er af heimakyni en sá sæðingastöðvahrútur sem stendur henni næst er Myrkvi 10-905 frá Brúnastöðum en hann er MFF Austra. Ákveðið hefur verið að einnig verði tekinn á sæðingastöð lambhrútur frá Sveinsstöðum í Austur-Húnavatnssýslu. Þar koma til greina tveir albræður en ekki hefur verið gengið frá því vali þar sem beðið er niðurstaðnanna á greiningu Þokugens. Þessir bræður eru synir Dals 17-870 frá Ásgarði og móðir þeirra er Trú 17-122. Á bak við Trú standa m.a. þeir Ás 09-877 frá Skriðu og Bósi 08-901 frá Þóroddsstöðum. Þetta eru vel gerðir gripir og það sem gerir þá einnig mjög áhugaverða er að þessir lambhrútar eru einnig arfblendnir fyrir lítið næmu arfgerðinni AHQ og því munu öll þeirra afkvæmi fá annaðhvort T137 eða AHQ. Þessir hrútar eru hyrndir og hvítir að lit.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.