Bændablaðið - 20.10.2022, Page 49

Bændablaðið - 20.10.2022, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til: • viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, ásamt öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. • byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningar húsa og mannvirkja, og miðlunar upplýsinga um þær. • sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð. Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2022. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á www.husverndarstofa.is). Suðurgötu 39, 101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2023 að hafa áhrif með einfaldlega hefðbundnu fóðri. Þannig sýna rannsóknir að kýr á beit eru með mun hærra hlutfall af ómega-3 í mjólkinni en kýr á innistöðu svo dagljóst er að fóðursamsetningin hefur bein áhrif. Að ná því að framleiða mjólk sem inniheldur óvenju hátt hlutfall ómega-3 er aftur á móti erfiðara og þá getur s.s. framangreind varin fita komið að góðum notum. Það má þó einnig ná góðum árangri með því að gefa hörfræ en í Frakklandi hafa þarlendir bændur náð að framleiða mjólk með háu hlutfalli af ómega-3 með því einu að bæta hörfræjum í fóður kúnna en hörfræ innihalda hátt hlutfall af ómega-3. Fá 4 krónur aukalega Í Frakklandi hefur undanfarið fundist aukinn áhugi á mjólkur- afurðum úr mjólk sem hefur verið náttúrulega bætt með einum eða öðrum hætti. Ómega-3 bætt mjólk er gott dæmi um slíkt og fá bændur nú í kringum fjórar íslenskar krónur á lítrann ef þeir framleiða mjólk sem er með hærra hlutfalli ómega-3 en almennt þekkist. Reynslan frá Frakklandi sýnir að sé kúm gefin hörfræ í miklu magni, 1 kg á kúna á dag, þá hækkar hlutfall ómega-3 í mjólkinni! Hörfræið er gefið þannig að 40% magnsins kemur úr sérstöku kjarnfóðri sem inniheldur 15% hörfræ en hinn hlutinn er gefinn sem hluti af heilfóðri kúnna. Fleiri lönd bætast við Eftir því sem reynslan verður meiri og betri bætast við fleiri og fleiri afurðafyrirtæki sem bjóða núorðið upp á náttúrulega ómega-3 bættar mjólkurafurðir og miðað við þróunina erlendis má allt eins búast við því að kallað verði eftir svona afurðum á Íslandi einnig. Hér virðist augljóst að nýta lýsi til þess að ná þessum árangri en eins og áður segir þarf að finna rétta hlutfallið og jafnvægi á fóðrunina svo ekki komi til bragðáhrifa í mjólkinni. Að sama skapi væri fróðlegt að reyna að hækka hlutfall ómega- 3 í nautakjöti með því að gefa lýsi markvisst. Kjöt sem úr slíkri framleiðslu kæmi ætti að vera hægt að selja á töluvert hærra verði en annað kjöt. Í Frakklandi hefur reynst vel að gefa kúm hörfræ til að hækka hlutfallið af ómega-3 í mjólkinni. Mynd / Aðsend Dagana 5.–8. október hélt fjölmennur hópur starfsmanna Landbúnaðarháskóla Íslands í vísindaferð til Hollands þar sem afar margt áhugavert var skoðað. Fimmtudagsmorgunninn hófst á ferð til Bleiswijk, þar sem er garðyrkjusvið Wageningen-háskóla. Í 7.500 fm af tilraunagróðurhúsum eru stundaðar rannsóknir á sviði ylræktar og laukblóma. Þar tók á móti hópnum hin spænska Nieves Garcia sem sagði frá starfseminni, tengingu við atvinnulífið og ekki síst verkefninu um, „Gróðurhúsið 2030“, sem afar áhugavert var að skoða. Gróðurhúsið notar ekki gas til upphitunar. Það er svokallað alrafmagns-gróðurhús með fullri LED lýsingu. Varmadæla er notuð til að stýra raka. Þannig er falinn hiti endurheimtur og gróðurhúsið helst lokað á veturna og vorin. Einnig losar gróðurhúsið ekki frárennslis- og þéttivatn í fráveituna, allt er endurnýtt, þannig að engin næringarefni tapast, vatnið nýtist sem best og engar leifar úr ræktunarvörum lenda í fráveitu. Óson er notað til að sótthreinsa vatnið, þannig að vatnið er hægt að endurnýta í ræktun. Að lokum er ræktunarvernd að fullu samþætt, með því að nota náttúruleg varnarefni eins mikið og mögulegt er. Frá Bleiswijk var haldið til Wageningen-háskóla sem er einn fremsti háskóli heims á sviði lífvísinda og landbúnaðar. Wageningen svæðið er oft kallað „Matardalurinn” í Hollandi. Þar tók á móti hópnum Tineke Bremer, samskiptastjóri frá rektorsskrifstofu, en hún skipulagði dagskrána á svæðinu. Framkvæmdastjóri alþjóða- samskipta, Wassim Beaineh, byrjaði á að kynna hvaða áhrif stóraukið alþjóðastarf hefur haft á vöxt skólans og hefur á mörgum sviðum skipt sköpum. Þaðan var haldið í skoðunarferð í NPEC, nýjasta gróðurhús háskólabúsins, sem búið er hátæknibúnaði. Þar eru ýmsar rannsóknir t.d. á lýsingu, sjúkdómavörnum, áburðartilraunir og plöntukynbætur. Þá tóku við hópnum, dr. Ryan Teuling lektor, sérfræðingur á sviði vatnafræði og stýringu vatns, dr. Roel Dijksma, dósent við umhverfisfræðideild og dr. Edward Huijben, prófessor og formaður WUR. Kynntu þeir árlegar námsferðir til Íslands og síðan fóru fram umræður um samstarfsmöguleika við LbhÍ sem gæti verið afar áhugavert. Sem dæmi má nefna að sumarið 2022 dvöldu rúmlega sjötíu nemendur í níu daga við vatnarannsóknir á Íslandi. Edward Huijben, sem áður starfaði við Háskólann á Akureyri, kemur líka að kennslu við landslagsarkitektadeildina og benti á sýningu á lokaverkefnum nemenda sem hékk uppi heimsóknardaginn. Rúsínan í pylsuendanum var svo heimsókn á einstaka sýningu, „Jarðvegur heims“, sem geymir stærsta jarðvegssafn veraldar, en þar má finna sýnishorn af jarðvegssniðum út frá mismunandi vinklum alls staðar frá, og auðvitað líka frá Íslandi. Forstöðumaðurinn, Stephan Mantel og vinur okkar jarðvegssérfræðinga, sá um leiðsögn. Afar áhugavert var að sjá tenginguna við okkar fólk, bæði í myndrænu kynningarefni safnsins og í tali Stephans. Sannkallaður sjónrænn ævintýraheimur. Alls staðar mætti hópnum velvild og frábærar móttökur. Langur en afar lærdómsríkur dagur var á enda. Morguninn eftir var farið í fræðslusiglingu um síki Amsterdam um arkitekta- og skipulagssögu Amsterdam og þá var bara að láta sig hlakka til lokakvöldverðar sem haldinn var á IJ Kantine, í gömlu verksmiðjuhúsnæði við hafnarsvæði borgarinnar. Helena Guttormsdóttir, lektor við LbhÍ. Hópur starfsmanna Landbúnaðarháskóla Íslands. Vísindaferð í Hollandi Landbúnaðartæki, björgunartæki og búnaður. Svansson ehf Sími : 697-4900 ● sala@svansson.is ● www.svansson.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.