Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 20.10.2022, Blaðsíða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 HANNYRÐAHORNIÐ Aðdáandi K-pop FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Hamrahlíð 17 Hús Blindrafélagsins Sími • 552-2002 ÓDÝR Margskipt gleraugu Verð 39.900 kr Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur) Gleraugu með glampa og rispuvörn Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0 19.900 kr. Margskipt gleraugu Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tv r vikur) 39.900 kr. gleraugu umgjörð og gler Freyja Rún er hress og kát stelpa frá Seltjarnarnesi sem stefnir á að verða söng- eða leikkona í framtíðinni. Nafn: Freyja Rún Ásgeirsdóttir. Aldur: 10 ára. Stjörnumerki: Vog. Búseta: Seltjarnarnes. Skóli: Mýrarhúsaskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Myndmennt. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kisa. Uppáhaldsmatur: Sushi. Uppáhaldslag: Shut down með Blackpink. Uppáhaldskvikmynd: 6th Sense. Fyrsta minning þín? Þegar mamma spurði mig; hver á afmæli í dag? Og ég sagði Ég! Og mamma sagði nei. Þá sagði ég þú! Og hún sagði aftur nei. Þá sagði ég amma Sessenja! Og það var rétt hjá mér. Hver eru áhugamálin þín? Að dansa, teikna og skauta. K-pop, að horfa á Stranger things og Malcolm in the Middle. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? K-pop söngkona eða leikkona. Hvað er það mest spennandi sem þú hefur gert? Þegar mamma og pabbi komu mér á óvart með ferð til Austurríkis. Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs Munstrið á þessum vettlingum er innblásið af minni fyrstu lopapeysu hönnun sem heitir Benjamína. Dömustærð: Vettlingarnir eru prjónaðir úr léttlopa, ein dokka af aðallit og ein af munsturlit. Notast er við sokkaprjóna nr. 3 og 4,5. Prjónafesta gefur 18 lykkjur á 10 cm. (Herrastærð): Vettlingarnir eru prjónaðir úr tvöföldum plötulopa, ein plata af aðallit og ein af munsturlit. Notast er við sokkaprjóna nr. 4,5 og 5,5. Prjónafesta gefur 14 lykkjur á 10 cm. Vettlingarnir eru nokkuð stórir, ef þú vilt hafa þá minni má notast við prjóna sem er hálfu nr. minni. Til að koma í veg fyrir löng bönd inni í vettlingunum er gott að snúa garninu saman að aftan eftir hverjar 4-5 lykkjur. Ekki snúa garninu á sama stað í næstu umferð fyrir ofan, betra er að það sé gert á mismunandi stöðum svo það sjáist ekki í gegn Fitjið upp 36 lykkjur með aðallit á prjóna nr. 3 (4,5). Skiptið lykkjunum niður á fjóra prjóna og tengið í hring. Prjónið stroff, 2 lykkjur sléttar og 2 lykkjur brugðnar til skiptis. Prjónið 6 umferðir stroff með aðallit, *prjónið 2 umferðir stroff með munsturlit, prjónið 2 umferðir stroff með aðallit*, endurtakið *til*. Prjónið 2 umferðir stroff með munsturlit og að lokum 5 umferðir stroff með aðallit. Skiptið yfir á prjóna nr. 4,5 (5,5) og prjónið slétt eftir munstri, í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur nokkuð jafnt yfir umferð, þá eru 40 lykkjur á prjónunum (10 lykkjur á hverjum prjón). Þegar búið er að prjóna 14 umferðir af munstri er gert ráð fyrir þumli (rautt strik á munstri sýnir hægri vettling). Fyrir hægri vettling: Á fyrsta prjóni, prjónið þrjár lykkjur slétt, prjónið næstu 7 lykkjurnar á aukaband, færið þessar 7 lykkjur aftur yfir á vinstri prjón og prjónið yfir þær eftir munstri. Fyrir vinstri vettling: Á öðrum prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 7 lykkjur á aukaband, færið þessar 7 lykkjur aftur yfir á vinstri prjón og prjónið yfir þær með munstri Úrtaka er gerð á eftirfarandi hátt: Á fyrsta prjón eru tvær lykkjur prjónaðar slétt, þriðja lykkjan er færð óprjónuð yfir á hægri prjón, prjónið eina lykkju og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið næst út prjóninn. Á öðrum prjóni er prjónað út prjóninn þar til þrjár lykkjur eru eftir, prjónið tvær lykkjur saman, prjónið síðustu lykkjuna slétt. Þriðji prjónn er prjónaður eins og fyrsti prjónn. Fjórði prjónn er prjónaður eins og annar prjónn. Þessi úrtaka er endurtekin í hverri umferð þar til 8 lykkjur eru eftir á prjónunum. Athugið að í síðustu úrtöku er óprjónuðu lykkjunni steypt yfir lykkjurnar tvær sem voru prjónaðar saman. Slítið frá og dragið endann í gegnum lykkjurnar. Næst er þumallinn prjónaður. Hann er prjónaður á prjóna nr. 4,5 (5,5) með lit A. Takið aukabandið úr og takið upp 16 lykkjur, hafið 8 lykkjur á prjóni fyrir ofan þumalinn og notið 2 prjóna fyrir neðan þumalinn, 4 lykkjur á hvorum prjón. Prjónið 17 umferðir, úrtaka er gerð á hliðum, á fyrsta prjón er fyrsta lykkjan tekið óprjónuð yfir á hægri prjón, prjónið eina lykkju og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir hana, prjónið út prjóninn. Á öðrum prjóni er prjónað þar til 2 lykkjur eru eftir, þær eru prjónaðar saman. Á þriðja prjóni er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð yfir á hægri prjón, prjónið eina lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir hana, prjónið þar til tvær lykkjur eru eftir á prjóninum, þær eru prjónaðar saman. Þetta er endurtekið þar til 8 lykkjur eru eftir, slítið þá frá og dragið endann í gegnum lykkjurnar. Gangið frá öllum endum, ef göt hafa myndast við þumal saumið fyrir þau. Þvoið vettlingana og leggið til þerris. Aðrar uppskriftir eftir höfund er að finna á Instagram og Facebook undir Feykirknitting. Einnig er hægt að hafa samband við feykirknitting@gmail.com. Benjamína-vettlingar Næst » Sú sem tekur við keflinu er hún Íris Katla, systir Freyju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.