Bændablaðið - 20.10.2022, Side 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
UMHVERFISMÁL – TÍSKA
FUGLINN: SKÓGARÞRÖSTUR
Skógarþröstur er einn algengasti fuglinn í skóglendi og í byggð. Það er ekki óalgengt að á þessum stöðum séu þeir með fyrstu fuglunum sem taka á móti manni. Hann er að mestu leyti farfugl en engu að síður er
talsvert magn af þeim sem halda sig hérna yfir veturinn. Þeir eru félagslyndir utan varptíma og koma gjarnan í stórum hópum sem ganga yfir landið. Þá skyndilega fyllast skóglendi og garðar af skógarþröstum
sem byrja strax að syngja af miklu kappi. Hans helsta kjörlendi eru birkiskógar og þar getur varpþéttleikinn þeirra orðið mjög mikill. Hann er afkastamikill varpfugl og þrátt fyrir okkar stutta sumar ná þeir að
verpa tvisvar til þrisvar yfir sumarið, 4-6 eggjum í senn. Yfir sumar og varptíma borða þeir helst skordýr en síðsumars og á haustin sækja þeir í alls konar ber. Það getur farið ansi vel um þá ef þeir finna sér
góðan rifsberjarunna og er hætta á að lítið verði eftir af uppskerunni ef þeir fá að sitja um hana óáreittir. Þegar líður á haustið sækja þeir einnig í reyniber og er skógarþrösturinn á myndinni við það að gleypa
ber af koparreyni. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Húðvörur Brads Pitt:
Að fagna hverri línu
Leikarinn góðkunni, Brad Pitt, hefur nú sett
á markað húðlínu; hreinsimjólk, krem og
serum, ætluðum öllum kynjum en línan sem
ber nafnið Le Domaine, er samstarfsverkefni
þeirra Pitt og Perrin fjölskyldunnar, sem eru
lífrænir vínræktendur.
Vörurnar sem kosta á bilinu 80 til 385
dollara (12–55 þúsund íslenskra króna)
eru í litlum flöskum úr endurunnu gleri og
endurnýttum eikarviði víntunna Perrin.
Á meðal innihaldsefna í kremunum og
serunum má, auk retínóls, finna vínberjafræ
og jurtir sem hafa haft orð á sér að hægi á
öldrun til viðbótar við einkaleyfisskyld efni
á borð við eitt sem kallað er GSM10. Er það
gert að hluta úr blöndu grenache- og syrahfræja
sem eiga að stöðva kollageneyðingu, hafa
andoxunareiginleika og koma jafnvægi á
húðina.
Annað, ProGR3,
er sagt draga úr
sýnilegum öldrunar-
merkjum með náttúru-
legum sameindum
fundnum í plöntu-
þykkni, vínviðar-
græðlingum, kamillu-
og grænu tei.
Lögð er áhersla á áfyllanlegar umbúðir varanna,
endurnýtt umbúðaefni og formúlur sem eru
96%–99% af náttúrulegum uppruna. Einnig
eru þær vegan og útiloka með öllu hráefni sem
eru ágreiningsefni er kemur að umhverfisvernd.
Brad sjálfur er ákafur talsmaður umhverfissinna
og tekur því opnum örmum að leggja nafn sitt
við varninginn.
Þrátt fyrir að innihaldsefni línunnar gefi
til kynna ávinning er kemur að því að hægja
á öldrun, telur hann að ekki skuli vera of
upptekinn af því. „Fólk á ekki hlaupa frá
því að eldast,“ sagði hann í kremviðtali við
fréttamenn tímaritsins
Vogue nýverið. „Þetta
er hugtak sem við
getum ekki flúið, og
ég myndi vilja sjá menningu okkar
taka því aðeins jákvæðar er kemur
að útlitinu en víðast hvar er gert í
heiminum í dag.“
Öldrun ekki óaðlaðandi
Flestir eru nú á sama máli
enda má segja að nálgun við
líkamleg einkenni öldrunar séu
jafn fjölbreytt og við erum flest.
Sumum finnst þeir ungir að
innan og sjá ekkert athugavert
við að útlit þeirra passi sem
best við þá hugmynd. Aðrir sjá
línur og hrukkur sem merki um
tilfinningaríkt og spennandi líf
og enn aðrir kjósa blöndu af
hvoru tveggja.
Eitthvað hafa svo vísinda-
menn að segja um húðvörulínu
leikarans, enda stórt nafn á ferð og því nokkuð
til að standa undir. Þetta er niðurstaðan:
– Á meðan vitað er að víndrykkja geti aukið
merki um öldrun andlits, þar með talið þrota
undir augum, getur plöntuefnasambandið
resveratrol, sem er að finna í vínberjafræjum
(og þá rauðvíni), hjálpað til við að berjast gegn
frumuskemmdum. Einnig veitir það vernd gegn
skemmdum húðarinnar frá sólarljósi.
– Sameindir þær er finnast í ProGR3, þá
fundnum í plöntuþykkni, vínviðargræðlingum,
kamillu- og grænu tei bendir nú til þess að
a.m.k. grænt teþykkni gæti hægt á öldrun
húðarinnar. Notkun kamilluolíu á sár hefur
gefið góða raun, grætt þau vel og fljótt en bæði
kamillu- og græn te eru rík af andoxunarefnum
og innihalda líffræðilegt efnasamband sem
kallast pólýfenól og vinna að því að eyða
sindurefnum og hægja á framvindu öldrunar.
– Retínól er A-vítamínformúla sem vinnur á
fínum línum, örum og litabreytingum og þykir
ómissandi í öll þau krem sem eru hvað best
talin vinna á öldrunareinkennum húðarinnar.
Gleði í hjarta og endalaust vatn
Lykilspurningin er kannski sú, þó þetta
ofangreint hljómi allt vel, hvort borgi sig
virkilega að smyrja sig rándýrum kremum.
Auðvitað í einhverjum tilvika, en þó má ekki
gleyma að heilbrigt líferni, vatnsdrykkja,
inntaka C- og E-vítamína auk gleði í hjarta
nær afar langt er kemur að unglegu fasi og
útgeislun. /SP
Leikarinn William Bradley Pitt, eins og hann heitir fullu nafni, hefur ýmislegt til málanna að leggja.