Bændablaðið - 20.10.2022, Síða 58

Bændablaðið - 20.10.2022, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022 UMHVERFISMÁL – TÍSKA FUGLINN: SKÓGARÞRÖSTUR Skógarþröstur er einn algengasti fuglinn í skóglendi og í byggð. Það er ekki óalgengt að á þessum stöðum séu þeir með fyrstu fuglunum sem taka á móti manni. Hann er að mestu leyti farfugl en engu að síður er talsvert magn af þeim sem halda sig hérna yfir veturinn. Þeir eru félagslyndir utan varptíma og koma gjarnan í stórum hópum sem ganga yfir landið. Þá skyndilega fyllast skóglendi og garðar af skógarþröstum sem byrja strax að syngja af miklu kappi. Hans helsta kjörlendi eru birkiskógar og þar getur varpþéttleikinn þeirra orðið mjög mikill. Hann er afkastamikill varpfugl og þrátt fyrir okkar stutta sumar ná þeir að verpa tvisvar til þrisvar yfir sumarið, 4-6 eggjum í senn. Yfir sumar og varptíma borða þeir helst skordýr en síðsumars og á haustin sækja þeir í alls konar ber. Það getur farið ansi vel um þá ef þeir finna sér góðan rifsberjarunna og er hætta á að lítið verði eftir af uppskerunni ef þeir fá að sitja um hana óáreittir. Þegar líður á haustið sækja þeir einnig í reyniber og er skógarþrösturinn á myndinni við það að gleypa ber af koparreyni. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson Húðvörur Brads Pitt: Að fagna hverri línu Leikarinn góðkunni, Brad Pitt, hefur nú sett á markað húðlínu; hreinsimjólk, krem og serum, ætluðum öllum kynjum en línan sem ber nafnið Le Domaine, er samstarfsverkefni þeirra Pitt og Perrin fjölskyldunnar, sem eru lífrænir vínræktendur. Vörurnar sem kosta á bilinu 80 til 385 dollara (12–55 þúsund íslenskra króna) eru í litlum flöskum úr endurunnu gleri og endurnýttum eikarviði víntunna Perrin. Á meðal innihaldsefna í kremunum og serunum má, auk retínóls, finna vínberjafræ og jurtir sem hafa haft orð á sér að hægi á öldrun til viðbótar við einkaleyfisskyld efni á borð við eitt sem kallað er GSM10. Er það gert að hluta úr blöndu grenache- og syrahfræja sem eiga að stöðva kollageneyðingu, hafa andoxunareiginleika og koma jafnvægi á húðina. Annað, ProGR3, er sagt draga úr sýnilegum öldrunar- merkjum með náttúru- legum sameindum fundnum í plöntu- þykkni, vínviðar- græðlingum, kamillu- og grænu tei. Lögð er áhersla á áfyllanlegar umbúðir varanna, endurnýtt umbúðaefni og formúlur sem eru 96%–99% af náttúrulegum uppruna. Einnig eru þær vegan og útiloka með öllu hráefni sem eru ágreiningsefni er kemur að umhverfisvernd. Brad sjálfur er ákafur talsmaður umhverfissinna og tekur því opnum örmum að leggja nafn sitt við varninginn. Þrátt fyrir að innihaldsefni línunnar gefi til kynna ávinning er kemur að því að hægja á öldrun, telur hann að ekki skuli vera of upptekinn af því. „Fólk á ekki hlaupa frá því að eldast,“ sagði hann í kremviðtali við fréttamenn tímaritsins Vogue nýverið. „Þetta er hugtak sem við getum ekki flúið, og ég myndi vilja sjá menningu okkar taka því aðeins jákvæðar er kemur að útlitinu en víðast hvar er gert í heiminum í dag.“ Öldrun ekki óaðlaðandi Flestir eru nú á sama máli enda má segja að nálgun við líkamleg einkenni öldrunar séu jafn fjölbreytt og við erum flest. Sumum finnst þeir ungir að innan og sjá ekkert athugavert við að útlit þeirra passi sem best við þá hugmynd. Aðrir sjá línur og hrukkur sem merki um tilfinningaríkt og spennandi líf og enn aðrir kjósa blöndu af hvoru tveggja. Eitthvað hafa svo vísinda- menn að segja um húðvörulínu leikarans, enda stórt nafn á ferð og því nokkuð til að standa undir. Þetta er niðurstaðan: – Á meðan vitað er að víndrykkja geti aukið merki um öldrun andlits, þar með talið þrota undir augum, getur plöntuefnasambandið resveratrol, sem er að finna í vínberjafræjum (og þá rauðvíni), hjálpað til við að berjast gegn frumuskemmdum. Einnig veitir það vernd gegn skemmdum húðarinnar frá sólarljósi. – Sameindir þær er finnast í ProGR3, þá fundnum í plöntuþykkni, vínviðargræðlingum, kamillu- og grænu tei bendir nú til þess að a.m.k. grænt teþykkni gæti hægt á öldrun húðarinnar. Notkun kamilluolíu á sár hefur gefið góða raun, grætt þau vel og fljótt en bæði kamillu- og græn te eru rík af andoxunarefnum og innihalda líffræðilegt efnasamband sem kallast pólýfenól og vinna að því að eyða sindurefnum og hægja á framvindu öldrunar. – Retínól er A-vítamínformúla sem vinnur á fínum línum, örum og litabreytingum og þykir ómissandi í öll þau krem sem eru hvað best talin vinna á öldrunareinkennum húðarinnar. Gleði í hjarta og endalaust vatn Lykilspurningin er kannski sú, þó þetta ofangreint hljómi allt vel, hvort borgi sig virkilega að smyrja sig rándýrum kremum. Auðvitað í einhverjum tilvika, en þó má ekki gleyma að heilbrigt líferni, vatnsdrykkja, inntaka C- og E-vítamína auk gleði í hjarta nær afar langt er kemur að unglegu fasi og útgeislun. /SP Leikarinn William Bradley Pitt, eins og hann heitir fullu nafni, hefur ýmislegt til málanna að leggja.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.