Bændablaðið - 20.10.2022, Qupperneq 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2022
Næsta
Bændablað
kemur út
3. nóvember
Atvinna
Sveitasæla. Leitum að viðhalds-/
alltmuligmanneskju í ferðaþjónustu
á Suðausturlandi. Smíðar, jarðvinna
og alls konar viðhald tækja- og
húsakosts. Uppl. í s. 696-7000.
Karlmaður, 33 ára, frá Spáni hefur
áhuga á að vinna eða komast í nám
á Íslandi. Hann hefur reynslu af
bústörfum og talar frönsku, ensku
ásamt spænsku. Uppl. á geezass@
tutanota.com
Dýrahald
Get tekið að mér 4-6 hross i
vetrarfóðrun og 6-7 folöld á hús i
vetur. Er í Grímsnesi. S. 892-9191.
Gefins
Gamalt stofuorgel fæst gefins.
Þarfnast smá lagfæringar. Uppl. í s.
894-9664.
Óska eftir
Óska eftir amerískum pallbíl. Má
þarfnast alls konar lagfæringa.
Skoða allt. Uppl. í s. 774-4441.
Fjórhjól óskast, 4x4 helst með lágu
drifi. Er að leita að frekar ódýru hjóli.
Bjarni S. 892-0404.
Til sölu
Plast í fjárhúsgólf og stíur. Bása- og
drenmottur, útileiktæki, gúmmíhellur
og gervigras. Heildarlausnir á
leiksvæðum. jh@johannhelgi.is s.
820-8096.
Rýmingarsala á hjólkoppum, allir
koppar nema nýir. Sanngjarnt verð.
Lítið við. Valdi koppasali, Hólmi v/
Suðurlandsveg, ofan við Rauðhóla.
Opið 11-18 s. 865-2717.
Vatnskassar, nýir og ódýrir, í
flestar gerðir fólksbifreiða. Einnig
vatnskassar í vörubíla. S. 696-
0738 og 699-3737, netfang vatnsk@
simnet.is.
Til sölu hægindastóll. Rafmagnslyftu-
stóll, keyptur í Svefn og heilsu
og heitir Boas. Vel með farinn.
Staðsettur á Akureyri. Upplýsingar
í s. 847-5557.
Vantar þig ekki fjórar 17" álfelgur
fyrir vetrardekkin? Passa fyrir Xtrail
og Qashqai, seljast ódýrt. Uppl. í s.
690-2396.
Massey Ferguson 390T 200 með
tækjum. Þarfnast viðgerðar .
Upplýsingar gefur Pálmi í s. 487-
5402.
Citroën C5 árgerð 2001-2008
varahlutir. Til sölu notaðir varahlutir
í Citroën C5, gott úrval varahluta á
góðu verði. Einnig til sölu nokkrir
Citroën C5 bílar sem þarfnast
lagfæringa. Upplýsingar í s. 774-
7774 Flosi Kristófer.
Þjónusta
Tek að mér viðgerðir á flestum
tegundum sjálfskiptinga. Hafið
samband í s. 663-9589 til að fá uppl.
og tilboð. HP transmission, Akureyri.
Netf.- einar.g9@gmail.com, Einar G.
Erum
komin á
Instagram
Mýrdalshreppur greiðir sérstakar
heimagreiðslur til forráðamanna
barna sem bíða eftir leikskólavist í
sveitarfélaginu.
Einstæðir foreldrar eiga rétt á
heimagreiðslu þegar barn nær 9 mánaða
aldri en foreldrar í hjúskap eða sambúð
þegar barn nær 12 mánaða aldri.
Heimagreiðslur eru kr. 90.000 á mánuði
með hverju barni. Greiðslur þessar eru
endurskoðaðar árlega. „Nú eru sex
börn á biðlista á leikskólanum. Við
starfrækjum forskóla við grunnskólann,
sem varð til þess að létta nokkuð á
biðlistanum og ég er vongóður um að
geta saxað á hann á næstu vikum og
mánuðum, en það eru þó líkur til þess
að það bætist líka fleiri börn við,“ segir
Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri.
Samband íslenskra sveitarfélaga
er ekki með stefnu hvað varðar
heimagreiðslur til foreldra sem bíða
eftir leikskólaplássi fyrir barn sitt. „Fá
sveitarfélög eru með slíkar greiðslur en
ég veit að þetta er eitt af því sem mörg
þeirra eru að skoða.
Fleiri leggja áherslu á að byggja upp
leikskóla og sum sveitarfélög geta boðið
leikskóla frá 9 mánaða aldri og allmörg
frá 12 mánaða en þetta er risaverkefni,“
segir Heiða Björg Hilmisdóttir,
formaður sambandsins, aðspurð um
málið. /MHH
FRÉTTIR
Mýrdalshreppur:
90.000 krónur á mánuði með hverju barni