Læknablaðið - 01.12.2022, Page 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 531
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
11 af 18 skurðstofum Landspítala eru í formlegri notkun og tvær til viðbótar þegar tekst að manna þær.
Spítalinn segir að nóg sé af skurðlæknum eða öðrum stéttum en það vanti skurðhjúkrunarfræðinga og því
standi stofurnar tómar. Unnið sé að því að þjálfa upp hjúkrunarfræðinga.
Formaður Félags skurðlækna segir stöðuna ekki hafa verið verri
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Mest 13 af 18 skurðstofum
Landspítala í notkun
„Það er ekki skurðstofupláss á Landspítala og
það nagar okkur,“ segir Geir Tryggvason, for
maður Félags skurðlækna. „Það er erfitt og
streituvaldandi að sitja á móti sjúklingi og segja
honum að hann komist ekki í aðgerð sem bætir
lífsgæði hans og óljóst sé hvenær það verður.“
Ólafur B. Skúlason, forstöðumaður skurð
lækninga á Landspítala, segir í svari til Lækna-
blaðsins að nýting skurðstofa muni batna á nýju
ári en ljóst sé að þjálfa þurfi hjúkrunarfræðinga
þannig að þeir geti starfað sjálfstætt á skurðstof
um. Þótt 11 skurðstofur séu formlega opnar hafi
spítalinn „oft á tíðum“ keyrt 13 skurðstofur til
að vinna niður biðlista, en það sé háð sérstakri
mönnun.
„Frá og með janúar verða 14 skurðstofur opn
ar alla daga vikunnar auk tveggja skurðstofa á
Eiríksstöðum sem sinna augnskurðlækningum.“
Ólafur útskýrir stöðuna með því að skurðhjúkr
unarfræðingar hafi átt mikinn orlofsrétt eftir þau
tvö og hálft ár sem spítalinn starfaði á hættu og
neyðarstigi vegna COVID19.
„Stór hópur er að nálgast eftirlaunaaldur og
margir hafa kosið að fara fyrr á eftirlaun í kjölfar
mikillar vinnu tengdri COVID. Breyting á vinnu
tíma hjúkrunarfræðinga hafði jafnframt þau
áhrif að vinnuframlag hvers hjúkrunarfræðings
minnkar frá því sem áður var,“ segir í svari hans.
„Einnig hefur verið töluvert um að reyndir
skurðhjúkrunarfræðingar á Landspítala hætti
störfum og ráði sig á einkastofur sem eru að
auka umsvif sín.“ Margt nýtt starfsfólk hafi verið
ráðið auk þess sem nýtt sérnám í skurðhjúkrun
hafi hafið göngu sína í haust.
Læknablaðið spurðist frekar fyrir og fékk þá
þau svör að Landspítali styðjist við tvo skurð
hjúkrunarfræðinga í grunnmönnun í hverri
aðgerð. Þrjá við þjálfun nýrra og ef aðgerðin sé
stór. Blaðið spurði hvort taka mætti Svíþjóð til
fyrirmyndar þar sem oft er einn skurðhjúkr
unarfræðingur í aðgerð og fækka þeim hér svo
fjölga megi aðgerðum en spítalinn segir að Sví
þjóð sé eina samanburðarlandið sem hafi þann
hátt á.
„Önnur Norðurlönd og nær öll Evrópulönd,
fyrir utan Króatíu og Holland, hafa tvo skurð
hjúkrunarfræðinga í aðgerðum eins og við,“ seg
ir í svari spítalans. Smæð landsins kalli á þetta
fyrirkomulag.
Geir segir stöðuna aldrei hafa verið erfiðari.
Fólki á biðlistum hafi fjölgað gríðarlega á stutt
um tíma. Hann kallar eftir aðgerðum sem leysi
vandann.
„Það þarf hugsanlega að hugsa út fyrir boxið.
Samstarf okkar við skurðhjúkrunarfræðinga er
bæði nauðsynlegt og gott en nú þegar það vantar
þessa hjúkrunarfræðinga þurfum við að finna
lausn til að stytta biðlista. Annars lengjast þeir
og lengjast.“ Hann segir ákveðna uppgjöf í fólki
yfir ástandinu.
„Við viljum sjá áherslu á að opna skurð
stofurnar hér á Landspítala. Það eru ekki ein
faldar lausnir á vandanum en við verðum að
ræða lausnir.“ Staðan sé verri en nokkru sinni
fyrr. „Á meðan versnar sjúklingum og biðlistar
lengjast. Það er krísa og sem þarf að taka á,“
segir Geir.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags
Íslands, segir félagið hafa bent yfirstjórn spítal
ans á stöðuna sem brenni á skurðlæknum. Þeir
þurfi að skera til að viðhalda þekkingu sinni og
því slæmt þegar kraftar þeirra nýtist ekki sem
skyldi. „Við viljum sjá gripið til aðgerða þar til
fólkið sem nú er í þjálfun nær fullri færni því
þótt staðan bitni á læknum bitnar hún mest af
öllu á því fólki sem er á biðlistunum.“
Landspítali þjálfar nú upp skurð-
hjúkrurnarfræðinga til að mæta
manneklu á skurðstofunum. Mynd/
Landspítali/Þorkell Þorkelsson