Læknablaðið - 01.12.2022, Page 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 537
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Fire-works related eye injuries
Gunnar Már Zoëga
MD, FEBO
Consultant ophthalmologist,
Department of Ophthalmology
Landspítali, the National
University Hospital
Augnslys af völdum flugelda
Flugeldar hafa verið notaðir til að fagna stórvið
burðum í ríflega 2000 ár um allan heim. Er þessi
aldagamla hefð, sem rekja má til Kínverja og Ítalir
gæddu litum og flugi á endurreisnartímabilinu, að
renna sitt skeið?
Í þessu tölublaði Læknablaðsins gera Björn V.
Ólafsson og Hjalti Már Björnsson grein fyrir flug
eldaslysum á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 2010
til 2022. Árlega hefur að meðaltali 21 einstaklingur
slasast og einn hlotið varanlegt heilsutjón. Augn
áverkar fundust hjá 67 einstaklingum, 8 þurftu inn
lögn á sjúkrahús og þrír urðu lögblindir á auga.
Augnslys af völdum flugelda á árunum 1979 til
1991 voru fleiri, 15 þurftu innlögn og 7 hlutu var
anlega sjónskerðingu.1 Tíðni augnslysa virðist hafa
minnkað á síðustu árum, sérstaklega þegar haft er í
huga að magn flugelda hefur aukist umtalsvert. Þar
ber að þakka öflugu forvarnarstarfi, notkun hlífðar
gleraugna og takmörkun á sölu hættulegustu flug
eldanna.
Augnslys af völdum flugelda eru fjölbreytt og
afleiðingar þeirra misalvarlegar. Þau eru öll af völd
um sprengingar þar sem saman fara sprengjubrot,
varmi, kemísk efni, höggbylgjur og beint högg í
mismunandi hlutföllum. Í vægustu tilfellunum er
um að ræða grunn sár á yfirborði augans, hvort sem
er vegna bruna eða aðskotahlutar. Púðuragnir geta
grafist í húðina eða yfirborð augans og skilið eftir
sig varanleg ör. Kemísk efni hafa skaðleg áhrif á yf
irborð augans. Slíkt getur haft varanleg áhrif á sjón.
Í alvarlegri tilfellunum getur höggbylgjan sem fylgir
sprengingunni skaðað innri vefi augans, með blæð
ingum og jafnvel sjónhimnulosi. Beinn höggskaði
vegna sprengjuhluta getur valdið opnu sári og rofi
á auganu. Í versta falli verður auganu ekki bjargað.
Augnslys af völdum flugelda hafa alvarlegar af
leiðingar fyrir þann sem í þeim lendir. Sérstaklega
ef bæði augu verða fyrir áverka.
European Society of Ophthalmology, Americ
an Academy of Ophthalmology og International
Council of Ophthalmology hafa í sameiningu lagt til
að sala flugelda til almennings verði bönnuð. Verði
því ekki viðkomið, eigi sala flugelda til almennings
að lúta hertum alþjóðlegum takmörkunum.
Fyrirkomulag flugeldasölu hefur veruleg áhrif á
tíðni flugeldaslysa. Sala flugelda til almennings er
óheimil í Ástralíu nema í einu héraði í norðurhluta
landsins, einungis þar verða slys af völdum flug
elda.2 Lengd sölutímabils eykur líkur á slysum. Hér
lendis má selja og nota flugelda frá 28. desember til
6. janúar.3 Rannsókn Björns og Hjalta sýnir að slysin
eiga sér stað allt sölutímabiliið þó flest flugeldaslys
verði um áramótin sjálf. Athyglisvert var að börn
voru um helmingur slasaðra á tímabilinu og hlutu
þau skaða af öllum tegundum flugelda, enda mega
börn hérlendis kaupa skotelda í flokki 1 og 2,3 og
skyldueftirliti með börnunum var ábótavant.
Afturskyggn rannsókn á áhrifum reglugerða
á tíðni augnáverka af völdum flugelda í Finnlandi
og Hollandi leiddi í ljós að sértækar aðgerðir fækka
slysum. Í báðum löndum var leyfilegur skottími
skertur í 8 klukkustundir um áramótin; hvatt var til
notkunar hlífðargleraugna og það gert að skyldu í
Finnlandi; yngri en 18 ára var meinað að kaupa flug
elda auk þess sem ákveðnar tegundir flugelda voru
bannaðar. Þannig fækkaði alvarlegum augnslysum
í Finnlandi úr 9 slysum á hverja 1.000.000 íbúa í tvö
slys á 1.000.000 íbúa á ári auk þess sem slysum meðal
barna fækkaði.4
Rannsókn Björns og Hjalta er mikilvæg, bæði til
að koma auga á mögulegar sértækar aðgerðir til að
draga úr slysatíðni en einnig til þess að við sem sam
félag getum tekið afstöðu til þess fórnarkostnaðar
sem þarf að greiða fyrir þessa aldagömlu hefð. Það
er tilefni til að fjalla um heildaráhrif flugeldanotk
unar, þar með talið langtímaafleiðingar
slysa, áhrif á einstaklinga með lungna
sjúkdóma og umhverfið í heild sinni.
Reglur um sölu og notkun flugelda eru
ólíkar í ólíkum löndum. Almennt bann
við sölu flugelda er í sumum löndum en
öðrum ekki,2 og því þarf stöðugt að leita
leiða til að lágmarka áhættu af notkun
þeirra, eins og á við um aðra þætti tilveru
okkar.
Hérlendis er nauðsynlegt að tryggja
fjármögnun björgunarsveita og íþrótta
félaga með öðrum hætti. Það ætti að vera skylda
að jafnt skotmenn sem áhorfendur noti hlífðargler
augu, leyfilegan skottíma ætti að stytta og börnum
ætti ekki að vera heimilt að kaupa flugelda.
Göngum hægt um gleðinnar dyr, með hlífðar
gleraugu og hanska, og höldum slysalaus áramót.
doi 10.17992/lbl.2022.12.718
Hérlendis er nauðsynlegt að tryggja
fjármögnun björgunarsveita og
íþróttafélaga með öðrum hætti.
Það ætti að vera skylda að jafnt
skotmenn sem áhorfendur noti
hlífðargleraugu, leyfilegan skottíma
ætti að stytta og börnum ætti ekki
að vera heimilt að kaupa flugelda.
Gunnar Már Zoëga
augnlæknir, augndeild
Landspítala og Sjónlagi,
lektor við læknadeild
Háskóla Íslands
gunnarmz@landspitali.is
Heimildir
1. Sigurðsson H, Viggósson G, Jónasson F. Augnáverkar af völdum flug
elda. Læknablaðið 1991; 77: 3813.
2. Hoskin AK, Low R, de Faber JT, et al. Eye injuries from fireworks used
during celebrations and associated vision loss: the international globe
and adnexal trauma epidemiology study (IGATES). Graefes Arch Clin
Exp Ophthalmol 2022; 260: 37183.
3. Reglugerð um skotelda nr. 414/2017
4. de Faber JT, Kivelä TT, GabelPfisterer A. National studies from the
Netherlands and Finland and the impact of regulations on incidences
of fireworksrelated eye injuries. Ophthalmologe 2020; 117 (Suppl 1):
3642.