Læknablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 12
540 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
algengt að fólk slasist af völdum tívolísprengja (shells/mortars) en
notkun þeirra var bönnuð á Íslandi árið 1988 í kjölfar alvarlegra
slysa áramótin áður.1013
Ekki hefur áður verið gerð heildstæð úttekt á fjölda og alvar
leika flugeldaslysa á Íslandi. Á bráðamóttöku Landspítala hefur
tíðkast að taka saman gögn upp úr áramótum og útbúa fréttatil
kynningu um umfang og alvarleika flugeldaslysa kringum ára
mótin en engin skráning verið á flugeldaslysum á öðrum hlutum
ársins.5,14 Þær rannsóknir sem þó hafa verið gerðar einskorðast
ýmist við alvarlegri augnslys eða brunaslys á börnum.6,7,15,16
Markmið þessarar rannsóknar var að meta tíðni, orsakir, eðli
og afleiðingar flugeldaslysa og áverka sökum þeirra, meðal þeirra
sem komu til meðferðar á bráðamóttöku Landspítala á tímabilinu
frá desember 2010 til janúar 2022.
Efni og aðferðir
Leitað var í sjúkraskrám Landspítala með textaleit að eftirfarandi
orðum í öllum beygingarmyndum: flugeldur, raketta, blys, terta,
stjörnuljós og sprengja. Rýnd var skráning á komum einstaklinga
þar sem leitarorðin komu fyrir. Útilokuð voru þau sem ekki höfðu
lent í flugeldaslysi. Gerður var greinarmunur á því þegar koman
var algerlega óháð flugeldum og þegar flugeldur átti þátt í komu
einstaklings án þess þó að valda sjálfur áverkanum. Þýði rann
sóknarinnar voru einstaklingar sem lent höfðu í flugeldaslysi, þar
sem flugeldurinn olli áverkanum, á tímabilinu og komið á bráða
móttökuna af þeim sökum. Eftirfarandi breytur voru skráðar í
gagnagrunn: Aldur, kyn, dagsetning og tími slyss, tegund flug
elds, hvernig slys atvikaðist, hvort viðkomandi hafi verið undir
áhrifum áfengis eða annara vímuefna. Ef um barn (aldur, <18 ár)
var að ræða var skráð hvort það hafi verið undir eftirliti. Þá var
skráður flutningur sjúklings á spítala, sjúkdómsgreining, veitt
meðferð og afdrif. Varanlegt heilsutjón var skilgreint sem sjón
skerðing, skert hreyfigeta, tap á útlim eða veruleg örvefsmyndun
(lýti).
Gögnunum var varpað yfir í tölfræðiforritið RStudio® og þau
greind með aðferðum lýsandi tölfræði. Flokkabreytur voru gefnar
upp sem fjöldi og prósenta af heild til hliðsjónar. Auk þess var
framkvæmd línuleg aðhvarfsgreining til að meta hvort breyting
hefði orðið á tíðni slysa á tímabilinu. Tölfræðileg marktækni mið
aðist við pgildi minna en 0,05.
Leyfi lágu fyrir áður en rannsóknin hófst frá vísindasiðanefnd
heilbrigðisrannsókna á Landspítala (leyfisnúmer: 52/2021), vís
indarannsóknanefndar heilbrigðisrannsókna á Landspítala og frá
yfirlækni bráðamóttöku Landspítala.
Niðurstöður
Á rannsóknartímabilinu fundust 419 einstaklingar með áður skil
greind leitarorð í sjúkraskrám sínum. Við yfirferð sjúkraskráa voru
117 einstaklingar útilokaðir frá rannsókninni þar sem vísan í leitar
orðin tengdist ekki flugeldaslysi, þá fundust 54 hliðarslys þar sem
flugeldur átti þátt í komunni án þess þó að valda sjálfur áverka.
Alls leituðu 248 manns til bráðamóttöku Landspítala í Foss
vogi eftir flugeldaslys á tímabilinu og mynda rannsóknarþýð
ið. Meirihluti slasaðra var karlkyns, eða 181 (73%). Slasaðir voru
Tafla I. Bakgrunnsþættir slasaðra eftir tegund flugelds. Fjöldi (%).
Alls
248
Raketta
56
Terta
43
Blys
34
Smádót
19
Flugeldaryk
15
Stjörnuljós
8
Flugeldaprik
6
Sprengja
5
Ótilgreint
62
Kyn
Karl 181 (73) 39 (70) 35 (81) 25 (74) 15 (79) 6 (40) 3 (38) 4 (67) 5 (100) 49 (79)
Kona 67 (27) 17 (30) 8 (19) 9 (26) 4 (21) 9 (60) 5 (63) 2 (33) 0 (0) 13 (21)
Aldur (ár)
0-5 12 (5) 1 (2) 3 (7) 0 (0) 1 (5) 0 (0) 7 (88) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
6-11 26 (10) 4 (7) 3 (7) 9 (26) 2 (11) 1 (7) 1 (13) 2 (33) 0 (0) 4 (6)
12-17 76 (31) 18 (32) 7 (16) 8 (24) 14 (74) 2 (13) 0 (0) 0 (0) 5 (100) 22 (35)
18-33 52 (21) 12 (21) 7 (16) 7 (21) 2 (11) 7 (47) 0 (0) 1 (17) 0 (0) 16 (26)
34-49 52 (21) 15 (27) 17 (40) 3 (9) 0 (0) 4 (27) 0 (0) 2 (33) 0 (0) 11 (18)
50+ 30 (12) 6 (11) 6 (14) 7 (21) 0 (0) 1 (7) 0 (0) 1 (17) 0 (0) 9 (15)
Breyttur flugeldur
Breyttur 14 (6) 2 (4) 5 (12) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 2 (40) 5 (8)
Ekki breyttur 166 (67) 40 (71) 34 (79) 31 (91) 18 (95) 8 (53) 8 (100) 5 (83) 3 (60) 19 (31)
Kom ekki fram 68 (27) 14 (25) 4 (9) 3 (9) 1 (5) 7 (47) 0 (0) 1 (17) 0 (0) 38 (61)
Gallaður flugeldur
Galli 53 (21) 11 (20) 19 (44) 16 (47) 2 (11) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 3 (60) 2 (3)
Líklega galli 43 (17) 14 (25) 11 (26) 3 (9) 1 (5) 1 (7) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 13 (21)
Ekki galli 69 (28) 16 (29) 8 (19) 8 (24) 10 (53) 5 (33) 7 (88) 5 (83) 1 (20) 9 (15)
Kom ekki fram 83 (33) 15 (27) 5 (12) 7 (21) 6 (32) 9 (60) 1(13) 1 (17) 1 (20) 38 (61)
Notkun
Röng notkun 82 (33) 24 (43) 10 (23) 7 (21) 13 (68) 0 (0) 6 (75) 0 (0) 2 (40) 20 (32)
Rétt notkun 75 (30) 11 (20) 28 (65) 18 (53) 2 (11) 4 (27) 0 (0) 5 (83) 0 (0) 7 (11)
Kom ekki fram 91 (37) 21 (38) 5 (12) 9 (26) 4 (21) 11 (73) 2 (25) 1 (17) 3 (60) 35 (56)