Læknablaðið - 01.12.2022, Page 14
542 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
14 (5,6%) tilfellum. Í 96 (39%) tilvikum var flugeldurinn talinn gall
aður. Alls 30 (32%) skottertur voru gallaðar, 70% allra tertuslysa.
Algengast var að þær féllu á hliðina eða sprungu samtímis á jörðu
niðri. Nokkuð var um að blys spryngju í höndunum á fólki, í 55%
slysa af völdum blyss var það talið gallað. Út frá lýsingum á slysum
mátti álykta að fólk hefði farið rangt að í 82 (33%) tilfellum, tafla I.
Helstu áverkar sem fundust voru brunar, sár, brot, mar, hljóð
himnurof og aðskotahlutur í auga. Í heildina voru þessir áverkar
382 talsins. Algengustu áverkarnir voru brunasár, en 157 einstak
lingar hlutu bruna. Á mynd 3 má sjá að dreifing bruna var ójöfn
eftir líkamssvæðum og lang algengast var að brenna á höndunum.
Sé skoðað stig bruna á hverju líkamssvæði, voru yfirborðsbrun
ar og grunnir hlutþykktarbrunar í miklum meirihluta. Alvarlegri
brunar, dýpri hlutþykktarbrunar og fullþykktarbrunar, voru í
heildina tæp 13% allra bruna. Stigs bruna var ekki getið í 10 tilfell
um. Næst algengast var að hljóta opið sár eftir návígi við flugeld,
alls 97 einstaklingar, tafla II.
Það komu 67 einstaklingar vegna augnáverka. Þar af voru 29
með aðskotahlut í auga, 6 voru með blæðingu, fimm fengu högg
á auga og fjórum sinnum var móðusjón skráð sem greining. Átta
einstaklingar þurftu innlögn á sjúkrahús og þrír hlutu varanlegan
augnskaða sem leiddi til lögblindu á skaddaða auganu.
Rof á hljóðhimnu varð hjá 15 einstaklingum en alls voru 19
hljóðhimnur rofnar. Aflimanir gerðust í tveimur slysanna, í báð
um tilvikum áverkar á efri útlim.
Líklegast var að hljóta bruna eftir flestar tegundir flugelda, tafla
III. Einungis flugeldaryk, flugeldaprik og sprengjur voru líklegri
til að særa einstakling en brenna hann. Allir þeir sem slösuðust á
stjörnuljósi brenndust á meðan allir þeir sem fengu flugeldaprik í
sig hlutu skurð á höfuðið. Sex af 10 beinbrotum urðu eftir návígi
við tertu eða flugeld. Einnig var algengast að hljóta mar eftir þær
tegundir flugelda.
Á rannsóknartímabilinu lögðust 22 inn eftir flugeldaslys og
lágu í samtals 91 dag, frá einum degi upp í 33 daga hver. Á tímabil
inu undirgengust 19 einstaklingar skurðaðgerð vegna áverkanna.
Algengustu meðferðirnar voru: umbúðir, verkjastilling, sýkla
lyf, kæling, deyfing og saumun sára. Lyf voru gefin minnst 170
einstaklingum, þar af 6 sem voru bólusettir gegn stífkrampa.
Athugaðar voru endurkomur sjúklinga á sjúkrahús og reyndust
116 (47%) sjúklingar, hafa mætt í endurkomu, oftast í umbúða
skipti, en auk þess voru 27 endurkomur til augnlækna. Enginn lést
en að minnsta kosti 13 einstaklingar hlutu varanlegt heilsutjón
vegna flugeldaáverka.
Af þeim 171 sem voru útilokaðir frá rannsókninni voru 54 sem
leituðu lækninga á bráðamóttöku Landspítala eftir flugeldatengda
uppákomu, það eru hliðarslys sem ekki voru talin orsökuð beint
af flugeldum. Þó nokkuð var um að fólk hrasaði um flugeldaleifar
eða dytti við að forðast flugeldasprengingar en 19 einstaklingar
leituðu á bráðamóttökuna eftir slíkt fall. Þá fundust 10 komur
vegna mengunar af völdum flugelda.
Umræður
Niðurstaða þessarar fyrstu heildstæðu samantektar á flugelda
slysum á höfuðborgarsvæðinu staðfestir að notkun flugelda fylgir
umtalsverð slysatíðni. Á þeim 11 heilu árum sem rannsóknin náði
til reyndust flugeldar orsaka að meðaltali 21 komu á bráðamóttöku
Landspítala, langmest á fyrsta sólarhring hvers árs. Þó enginn hafi
látist, voru slysin mis alvarleg, allt frá því að vera litlir brunar upp
í aflimanir og blindu. Þá hlutu 13 varanlegt heilsutjón vegna flug
elda, eða um einn einstaklingur á hverju ári að meðaltali.
Notkun flugelda hér á landi er nær einskorðuð við áramótin.
Því kom ekki á óvart að tímasetning slysanna virtist haldast í
hendur við notkunartímann þannig að um helmingur slasaðist á
nýársdegi og fjórðungur á fyrstu klukkustund hvers árs, mynd 2.
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að karlmenn eru líklegastir til að
Mynd 3. Stig bruna eftir líkamssvæði. Yfirlit um stig bruna eftir
líkamssvæðum, lengst til vinstri er uppsafnaður heildarfjöldi
bruna skipt eftir gráðu.
Tafla II. Áverkagreining. Fjöldi (%).
Tegund áverka Einstaklingar1 Efri útlimir Bolur Höfuð og háls Neðri útlimir Augu Eyru ALLS
Bruni 157 (63) 104 (51) 22 (11) 44 (22) 11 (5) 15 (7) 6 (3) 202 (100)
Sár 97 (39) 31 (28) 2 (2) 39 (35) 10 (9) 27 (24) 2 (2) 111 (100)
Brot 10 (4) 8 (80) 0 (0) 1 (10) 1 (10) 0 (0) 0 (0) 10 (100)
Mar 16 (6) 6 (38) 0 (0) 1 (6) 6 (38) 3 (18) 0 (0) 16 (100)
1 Hlutfall af heildarslysum.