Læknablaðið - 01.12.2022, Side 33
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 561
Í síðastliðnum mánuði gerðist það að
tölvukerfi Landspítala hrundi. Þetta kom
fyrir á háannatíma klukkan hálf ellefu
á mánudagsmorgni. Fyrst gekk treglega
að senda lyfseðil, svo var Saga frosin, og
Heilsugáttin raunar líka, og þegar ég tók
upp tólið til að hringja í tölvudeildina var
enginn sónn í símanum. Símkerfið var
hreinlega dottið út svo ég gat ekki einu
sinni kvartað. Það er búið að hakka okkur!
Skýringin var þó reyndar bara stutt og
sakleysislegt rafmagnsleysi í Fossvogin
um, eða svo er mér sagt.
Þessi bilun vægast sagt lamaði alla
starfsemi. Við fórum í morgunkaffi,
sem var mjög notalegt – en þetta sýndi
bersýnilega hvað við erum háð þeim
tölvukerfum sem við vinnum í. Rafrænu
sjúkraskrárkerfin sem hinn almenni
starfsmaður á Landspítala notar mest eru
Saga og Heilsugátt. Í einfaldri mynd má
líta svo á að Saga sé forrit sem geymir,
birtir og skráir sjúkraskrártexta. Heilsu
gátt sækir hins vegar gögn úr Sögu og
öðrum kerfum og miðlar upplýsingum
og beiðnum milli kerfa. Þannig er auð
velt í Heilsugátt að opna nótur, panta
blóðprufur, myndrannsóknir, ræktanir og
þess háttar. Eftir sem áður eru gögnin þó
geymd í Sögu.
Sögukerfið hefur verið í þróun frá
árinu 1993 og er alfarið í eigu Origo. Frá
þeim tíma hafa Embætti landlæknis (EL)
og heilbrigðisstofnanir átt í reikningsvið
skiptum við Origo við þróun Sögu. Síð
astliðið haust lagði sprotafyrirtækið Kara
Connect fram kæru á hendur EL þar sem
embættið hafði ekki boðið út kaup við
þróun á fjarfundarlausnum í sjúkraskrá.
Kærunefnd útboðsmála skilaði úrskurði
nú í vor þess efnis að embættið hefði með
þessu brotið lög og bæri að bjóða út slík
kaup. EL hefur ekki unað þessari niður
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
sob32@hi.is
Sólveig Bjarnadóttir
sérnámslæknir í almennum lyflækningum
stöðu og hefur stefnt Köru Connect til
að málið verði endurupptekið. Þetta mál
hefur marga anga og ég hvet fólk til að
kynna sér úrskurð kærunefndar en ekki
liggur fyrir niðurstaða úr endurupptöku
málsins.
Án formlegs útboðsferlis hef ég síð
astliðið ár boðið út starfskrafta mína sem
sérnámsgrunnslæknir og unnið á þremur
stöðum í íslenska heilbrigðiskerfinu, það
er á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akur
eyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Húsavík. Á hverjum stað þurfti ég að læra
á nýtt vinnulag og ný kerfi. Til að mynda
eru aðeins takmarkaðir hlutar af Heilsu
gátt í boði utan Landspítala og kerfin tala
illa saman milli landshluta. Sjúkraskráin
virðist þannig hólfuð niður eftir lands
hlutum rétt eins og um sauðfjárvarnarlín
ur væri að ræða. Eitt dæmi eru aðvaranir
um mikilvæg atriði er varða öryggi sjúk
linga sem eru skráðar í hið svokallaða
„Snjókorn” í Sögu. Þessar upplýsingar eru
skráðar innan stofnunar en ekki miðlægt
og eru illa aðgengilegar milli stofnana.
Bráðaofnæmi fyrir hnetum skráð á Ak
ureyri sést þannig ekki á Landspítala
– hneturnar urðu hreinlega allar eftir við
sauðfjárvarnarlínuna á Holtavörðuheiði
og fyrirfinnast ekki í Reykjavík. Þetta er
hin mesta furða.
Á þessum nótum sendi aðalfundur LÍ,
haldinn 14. október síðastliðinn, frá sér
áskorun til heilbrigðisráðherra um að gera
sjúkraskrár aðgengilegar öllum þjónustu
veitendum í einum miðlægum og óháðum
gagnagrunni. Slíkur ráðahagur myndi
auka öryggi sjúklinga, bæta vinnuum
hverfi lækna verulega og minnka sóun,
til að mynda við tvítekningu rannsókna.
Það má einnig velta fyrir sér hvert við
stefnum með framþróun sjúkraskrár á Ís
landi. Er rétt að sama fyrirtækið hafi verið
ráðandi í þróun sjúkraskrárkerfa á Íslandi
yfir 30 ára tímabil og hafi átt í reiknings
viðskiptum við ríkið að andvirði margra
milljarða? Á sama tíma virðist erfitt fyrir
nýsköpunarfyrirtæki að koma inn í núver
andi umhverfi og það er torvelt að nálgast
gögn sem ættu með réttu að vera miðlæg.
Fagfélög lækna sendu frá sér formlegt
erindi varðandi margumrætt snjókorn um
síðastliðin áramót en þrátt fyrir það hafa
orðið litlar hreyfingar.
Enginn er eyland og það væri óskandi
að hægt væri að samtengja kerfi á skil
virkari hátt. Það er sannarlega dýrt að
þróa hugbúnað en það væri fróðlegt að fá
nákvæmar tölur um kostnað ríkisins hvað
þetta varðar. Ég kalla því eftir frekari
umræðu og umfjöllun um þessi mál auk
afléttingar á varnarlínum milli landshluta
– enda margt ólíkt með sauðfé og rafræn
um sjúkraskrám.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Þórdís Þorkelsdóttir
Sólveig Bjarnadóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Magdalena Ásgeirsdóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Ragnar Freyr Ingvarsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Rafræn sjúkraskrá og sauðfjárvarnarlínur