Læknablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 565
Sunnudagur Ný vika heilsar með
óvenjulegum hita þrátt fyrir að dagatalið
sýni miðjan nóvember. Framundan er
nokkuð óvenjuleg vika með blöndu af
móttökudögum og aðgerðadögum. Að
öllu jöfnu er vikan annað hvort aðgerða
vika eða móttökuvika. Mánudagurinn er
blanda af viðtölum og þremur matsgerð
um sem krefjast undirbúnings. Eftirmið
dagurinn fer því í að lesa yfir málsgögn
og undirbúa þá fundi.
Mánudagur Klukkan er 5:30 þegar
vekjaraklukkan hringir, frúin er greini
lega þegar komin á fætur og skömmu
síðar birtist hún með rjúkandi kaffi. Yfir
kaffinu er rennt yfir helstu vefmiðla þang
að til hundarnir tveir eru orðnir óþolin
móðir og óska vinsamlegast eftir sinni
morgungöngu. Klukkan er orðin rúmlega
8 þegar lagt er af stað í vinnuna, búandi
upp við Elliðavatn á leið í Ármúla 9 er
það galinn tími að vera á ferðinni. Mats
gerðir eru oftast slysamál og mismunandi
eftir eðli málanna hvort eingöngu læknir
gerir matið eða eins og algengara er að
matið er unnið sameiginlega af lækni
og lögfræðingi. Eitt af málum dagsins er
dómskvaðning þar sem málsaðilar hafa
ekki náð saman í kjölfar fyrra mats og
annar aðilinn því krafist endurmats fyrir
héraðsdómi.
Þriðjudagur Nú hringir verkjaraklukk
an á hefðbundnum tíma kl. 05:00, í þetta
skiptið náði ég að vera á undan frúnni og
kem því með rjúkandi kaffið í rúmið. Ég
og fjórfætlingarnir förum í fjallahjólarúnt
um Heiðmörk undir hálfu tungli vaðandi
í skýjum. Eftir góða útisturtu er haldið af
stað til vinnu og blessunarlega á undan
umferðinni þannig að ferðatíminn er ekki
helmingurinn af ferð gærdagsins. Það er
hressilegur móttökudagur með 7 nýkom
um og 21 endurkomu. Í lok dags er farið
yfir aðgerðir næstu tveggja daga og gert
aðgerðaplan fyrir hverja aðgerð.
Miðvikudagur Dagurinn byrjar eins og
sá fyrri og er frúin lögð af stað í vinnuna
áður en ég kem heim úr hjólatúrnum. Hún
er mætt fyrir kl. 6:30 og tekur á móti fyrsta
sjúklingi dagsins kl. 7:00 og sér til þess að
hann sé búinn að skipta um föt þegar ég
mæti skömmu síðar. Fyrsti sjúklingurinn
er 89 ára gömul kona sem býr ein, hægri
mjöðmin er þó farin að vega illilega að
hennar lífsgæðum og möguleikum til þess
að sjá um sig sjálf. Við byrjum fyrstu að
gerðina kl. 8:15 og rúllum inn á vöknun kl.
9:30 þegar næsti sjúklingur er að mæta. Sá
kom vikunni áður vegna verkja frá hægra
hné en við skoðun kom í ljós að hann var
með gríðarlegt beindrep í lærbeinshöfði
hægri mjaðmar. Það er góð tilfinning að
hafa sjálfur stjórn á aðgerðalistanum og í
svona tilvikum er því hægt að koma við
aðgerð innan viku frá greiningu. Síðasta
aðgerðin sem einnig er liðskiptaaðgerð á
mjöðm er búin kl. 14:30 og við tekur stutt
móttaka fram að stjórnarfundi. Við erum
5 í stjórn Klíníkurinnar Ármúla auk þess
sem framkvæmdastjóri situr fundina og
hittumst við að minnsta kosti einu sinni í
mánuði. Dagurinn er því langur og ekki
heim komið fyrr en kl. 19:30.
Fimmtudagur Framundan í dag eru
fjórar liðskiptaaðgerðir á hné. Á skurð
stofunni náum við að halda takti allan
daginn, sjúklingarnir eru að mæta kl. 7,
9, 11:30 og 13:30 og síðasta aðgerð búin kl.
15:30. Eftir stofugang tekur við pappírs
vinna. Um kvöldið er matarboð með
bandarískum bæklunarlækni sem vill
fræðast um íslenska heilbrigðiskerfið.
Hann er orðlaus þegar hann kemst að því
að rúmlega 1000 sjúklingar hafi greitt fyr
ir sínar liðskiptaaðgerðir sjálfir í Klíník
inni án aðkomu tryggingafélags eða ríkis.
Föstudagur Vinnuvikunni lýkur síðan
um hádegi þegar útskrift þeirra sjúklinga
er gengust undir liðskipti í vikunni er
lokið. Við hjónin brunum síðan úr bænum
og komum við á Matkránni í Hveragerði.
Síðan er haldið beina leið í hlíðina fögru
þar sem við eigum smá skika. Helginni
verður varið við smíðar með frúnni, betra
getur það vart orðið.
Hjálmar Þorsteinsson á Klíníkinni
Vika í lífi bæklunarlæknis
Skurðstofuteymi vikunnar, frá vinstri: Herborg Eiríksdóttir skurðhjúkrunarfræðingur, Hrólfur
Einarsson svæfingalæknir, Erna Dóra Hannesdóttir hjúkrunarfræðingur og Hjálmar Þorsteinsson
bæklunarlæknir.
Morgunstund við Elliðavatn, Meyja og Ronja.