Læknablaðið - 01.12.2022, Síða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 571
Ö L D U N G A D E I L D I N
Öldungar á slóðum Semmelweiss og Freuds
Í byrjun október lagði ferðaglaður hópur
læknaöldunga ásamt mökum, samtals
36 manns, upp í 8 daga ferð á slóðir
Semmelweiss og Freuds í Búdapest og
Vínarborg.
Hótelið í Búdapest var í miðbænum þar
sem rútur eru bannaðar svo að fólk þurfti
að ganga smá vegalengd um nóttina
með töskurnar. Daginn eftir var gengið á
Semmelweisssafnið yfir Elísabetarbrúna
og dáðst að afrekum þessa óhamingju
sama manns.
Sama dag var farið í ökuferð um
borgina með leiðsögumanni sem gaf
okkur líka innsýn í ungverska sögu
og þjóðarsál. Ungverjar hafa sterka
þjóðerniskennd sem er nátengd þessu
sérkennilega tungumáli sem Magyarar
höfðu með sér austan úr Asíu um svipað
leyti og norrænir menn námu Ísland.
En þeir höfðu fleira með sér rétt eins og
landnemar okkar. Það fengum við að sjá
í ferð á ungversku slétturnar þar sem
voru mórauð loðin svín og hvasshyrndir
nautgripir. Aðalskemmtiatriði dagsins var
hestasýning þar sem knapar riðu berbakt
með bjórglas í hendi.
Kvöldsigling á Dóná gaf fallega sýn
á upplýstar glæsibyggingar frá 19. öld
á báðum bökkum. Undir borðhaldi var
boðið upp á söng og dans. Dagsferð í
norðvestur gaf enn aðra sýn. Szentendre
er lítill bær þar sem um aldir hefur ríkt
trúarlegt umburðarlyndi og þar hafa
listamenn unað sér. Í Visegrad vorum
við flutt aftur á endurreisnartímann
með villibráðarmáltíð úr konunglegum
veiðilendum. Til Vínar var haldið í rútu
og þar kvöddum við ágætan ungverskan
rútustjóra.
Graben Hotel dregur nafn af staðsetn
ingunni þar sem áður var síki kringum
borgarmúrana og þar með í jaðri elsta
miðbæjarins. Þar hittum við leiðsögu
menn okkar sem reyndust vera mæðgur,
og byrjuðum á stuttri gönguferð um Hof
burg með öllum sínum höllum, söfnum,
reiðhöll og allri dýrðinni úr ríki Habs
borgaranna. Í Vín var hópnum gefinn
lausari taumur á kunnuglegri slóðum.
Skoðunarferð í rútu sýndi okkur meira
af glæsilegri Vín frá fyrri tíð en svo voru
það byggingar þess makalausa Hundert
wasser, sem trúði því að beinar línur, rétt
Öldungar á slóðum Maríu Theresíu í Schönbrunn höllinni í Vínarborg. Mynd / Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Helga M. Ögmundsdóttir
ritari öldungadeildar
Óttar Guðmundsson
formaður öldungadeildar
horn og slétt gólf ættu alls ekki að vera í
mannabústöðum.
Síðasta daginn var stíf dagskrá sem
hófst með heimsókn í Schönbrunnhöll
ina, þar sem María Theresía eignaðist
sín 16 börn, ríkti yfir keisaradæminu og
stýrði 7 ára stríðinu. Skrifstofur Freuds
í Berggasse voru skoðaðar. Geðlæknar í
hópnum dáðust að því að kallinn talaði að
jafnaði við 11 sjúklinga á dag og skrifaði
eftir það ótal bækur og ógrynni bréfa. Síð
asta kvöldið nutum við hátíðarkvöldverð
ar og svo tónleika í ekta klassískum Vín
aranda.
Ekki var annað að heyra í lok ferðar en
allir hefðu notið vel og nýtt sinn frjálsa
tíma hver eftir sínum smekk – eitthvað
var verslað og nokkrir óperunördar voru
fjarskalega sælir og glaðir.
Stjórn Öldungadeildar
Óttar Guðmundsson formaður
Helga M. Ögmundsdóttir ritari
Sigurður Guðmundsson gjaldkeri
Friðrik Yngvarsson
Gísli Einarsson
Öldungaráð
Guðmundur Viggósson
Jóhannes M. Gunnarsson
Kristófer Þorleifsson
Margrét Georgsdóttir
Reynir Þorsteinsson
Ritstjóri vefsíðu og síðu
Öldungadeildar í Læknablaðinu:
Helga M. Ögmundsdóttir
Magnús Jóhannsson