Fréttablaðið - 10.03.2023, Side 22
Við erum
ekki með
lið, því lið
verja sig
gegn svona
áföllum.
Frammistaða íslenska lands-
liðsins í handbolta í tapi gegn
Tékkum í undankeppni EM
er einhver sú allra lélegasta
í manna minnum og mögu-
leiki á að umræðan í kringum
liðið á ólgutímum sé að ná til
leikmannanna.
HANDBOLTI Einar Örn Jónsson, fyrr-
verandi atvinnu- og landsliðsmaður
í handbolta og núverandi íþrótta-
fréttamaður hjá RÚV, hefur lengi
vel fylgst með íslenska landsliðinu.
Einar lýsti leik Tékklands og Íslands
á dögunum, leik sem lauk með fimm
marka sigri Tékka, 22–17. Leik þar
sem frammistaða íslenska lands-
liðsins vakti reiði og furðu margra.
„Fyrsta viðbragð hjá mér var
eiginlega bara það að ég snöggreidd-
ist, á meðan ég var að lýsa leiknum.
Reiddist yfir því hversu ráðalaust og
slakt íslenska landsliðið var í raun
og veru. Eftir því sem þetta ráðaleysi
hélt áfram hjá liðinu því lengra sem
leið á leikinn, var maður í raun bara
sleginn yfir því hvað liðið virtist
ekkert geta rifið sig upp úr dalnum
sem það var í.
Maður getur orðið fúll yfir því
að nokkrar sóknir fari forgörðum,
að það líði nokkrar mínútur milli
marka, en að spila hræðilegan fyrri
hálf leik og taka síðan heilt korter
í þeim seinni í að skora eitt mark
með tilliti til slæms fyrri hálfleiks.
Það var þá sem ég varð bara fyrir
sjokki. Ég bjóst aldrei við því að
sjá þetta frá íslensku landsliði og
þá kannski síst frá þessu tiltekna
íslenska landsliði.“
Þessi frammistaða hjá liðinu, er
hægt að líkja henni við einhverja
frammistöðu á árum áður hjá
íslenska landsliðinu? Hefurðu séð
svona frammistöðu hjá íslensku
landsliði áður?
„Nei, ekki í f ljótu bragði. Mögu-
lega man einhver betur en ég og ég
myndi kvitta upp á það síðar meir.
En með tilliti til andstæðingsins
sem við vorum að mæta, þess sem
var í húfi með því að mæta almenni-
lega í leikinn og gæðanna sem búa
í þessu liði, þá verð ég að segja að
þetta var það lélegasta sem ég hef
nokkurn tímann séð.“
Í djúpum dal rúnir sjálfstrausti og grimmd
Aron
Guðmundsson
aron
@frettabladid.is
Rúnir sjálfstrausti
Það er nefnilega töluvert mikið
í húfi. Íslenska landsliðið er svo
gott sem búið að tryggja sig á EM í
Þýskalandi á næsta ári en á hættu á
að missa af toppsæti síns riðils. Það
sæti veitir sæti í efsta styrkleika-
f lokki þegar dregið verður í riðla
á lokamótinu. Með því að vera í
efsta styrkleikaflokki er komist hjá
möguleikanum á því að geta mætt
mörgum af bestu handboltaþjóðum
Evrópu í riðlakeppninni.
Íslenska landsliðið getur, með
góðum úrslitum á EM á næsta ári,
opnað leið fyrir sig inn á Ólympíu-
leikana í París það sama ár. Því
skiptir það gríðarlega miklu máli
að ná góðum úrslitum á EM.
Það var í raun frammistaða
strákanna okkar gegn Tékkum á
dögunum sem stingur Einar Örn
hvað mest.
„Hvað leikmenn liðsins voru
ráðalausir, hvað sjálfstraustið var
ekkert og náði samt að minnka
meðan á leiknum stóð og hvernig
þetta fór illa þó að við höfum á
endanum bara tapað með fimm
mörkum. Þetta liggur allt saman
alfarið hjá íslenska liðinu, því and-
stæðingurinn var ekki góður. Miðað
við hversu mikið var í húfi er bara
mjög erfitt að finna útskýringu á því
af hverju liðið er svona rúið sjálfs-
trausti, rúið einhverjum anda af
því að maður sá akkúrat mjög lítið
af leikmönnum bregðast við, reyna
að verja sig. Það fauk ekki í einn
einasta leikmann liðsins, maður
sá ekki grimmd í augum þeirra í
seinni hálfleik þegar allt var að fara
á versta veg. Það svíður eiginlega
mest. Það var ekki fyrr en menn
voru endanlega komnir á botninn
sem þeir svöruðu aðeins fyrir sig,
það var bara af því að Tékkarnir eru
ekki betri en þeir eru.“
Þetta er ekki lið
Liðið, sem hópur, virðist vera á mjög
erfiðum stað.
„Það eru til alls konar klisjur um
veikasta hlekk keðjunnar og svo
framvegis en það hefur margsýnt
sig í íþróttaheiminum að framúr-
skarandi einstaklingar verða ekki
að framúrskarandi liði bara af
sjálfu sér. Það þarf að búa til lið,
finna réttu blönduna og græja allt
það sem þarf að græja svo lið smelli
saman. Maður hélt að allt það væri
til staðar hjá þessu íslenska landsliði
af því að við höfum séð það áður. En
svo horfir maður á þennan leik gegn
Tékkunum og verður, í framhaldi af
honum, að segja að þetta er ekki lið.
Við erum ekki með lið, því lið verja
sig gegn svona áföllum. Lið geta
alveg tapað leikjum en þau verja
sig gegn svona. Lið stendur saman,
berst áfram í gegnum hlutina, það
þekkja allir sín hlutverk og enginn
er brotin skel inni á vellinum.
Maður sá brot af því á HM, að við
værum ekki lið, en svo sá maður
það að fullu á móti Tékkunum
þegar við fórum á háværan útivöll
gegn algjöru miðlungsliði og stein-
liggjum. Það er enginn sem að ber
hönd fyrir höfuð sér til að verja liðið
gegn þessu áhlaupi og áfalli.“
Lengi í kastljósinu
Íslenska landsliðið hefur nú í lengri
tíma, eftir vonbrigðin á HM í janúar,
verið í kastljósinu. Meðal annars
vegna starfsloka Guðmundar Guð-
mundssonar landsliðsþjálfara og
sögusagna um leka úr landsliðs-
hópnum. Eru leikmenn landsliðsins
að bugast undan þessari umræðu?
„Mögulega er þetta að ná til þeirra
að einhverju leyti en ég efast um að
þeir séu að bugast undan þessu.
Þetta eru sjóaðir atvinnumenn,
menn sem eru búnir að vinna stóra
titla með sínum félagsliðum. Líf
atvinnumannsins er enginn dans
á rósum, það er enginn að klappa
þér á bakið og segja þér hvað þú ert
æðislegur, þannig að ég hugsa að
menn séu ágætlega vel brynjaðir
fyrir neikvæðri umfjöllun.
En svo er spurning um orsök og
afleiðingu. Sér fólk eitthvað í liðinu
sem fyllir það neikvæðni eða er nei-
kvæðnin að fylla liðið óöryggi? Það
er vonlaust að setja fingur á hvað
það er af því jákvæðnin í kringum
liðið eftir EM í fyrra var alveg
svakaleg. Það er rosalega mikið af
jákvæðum straumum í kringum
þetta lið, en eins og Arsené Wenger,
fyrrverandi knattspyrnustjóri Arse-
nal, sagði einu sinni um sjálfstraust:
„Þú öðlast það með því að labba
upp stiga, en það kemur niður með
lyftunni.“
Mögulega hefur öll þessi umræða
áhrif á liðið en gott lið brynjar
sig fyrir svoleiðis. Gott lið kemst í
gegnum svoleiðis. Ef öll jákvæð eða
neikvæð umræða, áhugi og athygli
hefði alltaf neikvæðar afleiðingar,
þá hefðum við aldrei afrekað neitt.
Því við höfum öll sjúklega mikinn
áhuga á þessu liði, alltaf allir til í að
stökkva á vagninn, en ef það hefði
alltaf neikvæð áhrif á liðið með
pressu og bugun, þá hefðum við
aldrei farið í þessa undanúrslita- og
verðlaunaleiki sem liðið hefur farið
í. Góð lið standa bara svoleiðis af sér
og fá eitthvað jákvætt úr því en það
virðist verða neikvætt fyrir þennan
tiltekna hóp landsliðsmanna.“ n
Ég bjóst aldrei við því
að sjá þetta frá íslensku
landsliði og þá kannski
síst frá þessu tiltekna
íslenska landsliði.
Einar Örn Jóns-
son, fyrrverandi
atvinnu- og
landsliðsmaður í
handbolta
14 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 10. MARS 2023
FÖSTUDAGUR