Fréttablaðið - 10.03.2023, Qupperneq 30
Ég elska þetta lag og er
með það sem hringi
tón en það er allt
annað að heyra þetta
úr gömlu, góðu
GameBoyvélinni.
Óskar Árnason fann gamla
GameBoy-tölvu úr eigu bróður
síns inni í geymslu. Tölvan var
keypt árið 1991, fyrir 32 árum
síðan, og komst í gang eftir
örlítið bras þannig að gamlar
gersemar á borð við Super
Mario vöknuðu til lífsins.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég held alveg örugglega að þetta sé
tölva bróður míns, svona ef ég man
þetta rétt,“ segir Óskar Árnason,
einn fremsti borðspilasérfræðingur
landsins, um Nintendo GameBoy-
leikjatölvu sem hann fann inni í
geymslu hjá sér.
„Mín nefnilega virkaði ekkert og
var einum eða tveimur árum eldri
og var þess vegna hent í kjölfarið en
þessi yngri er enn hér.
Að þetta skuli enn virka!“ segir
Óskar um tölvuna sem hann rámar
endilega í að hafi verið keypt árið
1991. Tölvan er fyrsta sinnar teg-
undar frá Nintendo en í kjölfarið
fylgdi sannkölluð gullöld hinna
handhægu GameBoy-véla með til-
heyrandi útgáfum. GameBoy Color,
GameBoy Color Advanced og að síð-
ustu fartölvulega GameBoy Color
Advanced SP-vélin fylgdu allar í
kjölfarið.
Grái jálkurinn var
hins vegar sá fyrsti
og ber sig merkilega
vel miðað við 32 ára
aldur. „Hún fer í gang
en virðist svo frjósa eftir
tvær, þrjár mínútur,“
útskýrir Óskar sem fann
að sjálfsögðu veglegt safn
GameBoy-leikja í geymsl-
unni á sama tíma.
Nagaður af hundinum
„Ég er búinn að prófa
fjóra leiki í vélinni. Það
þarf að blása í hylkin
og slökkva og kveikja
nokkrum sinnum
og þá fara þeir allir í
gang,“ útskýrir Óskar
en alls fann hann átta
upprunalega leiki með
vélinni. Þar á meðal
er hinn goðsagna-
kenndi Super Mario
Land sem virkar í
eitt til tvö borð að
sögn Óskars áður
en vélin frýs.
„Sem er merki-
legt þar sem leik-
urinn var marg-
sinnis skilinn eftir
á glámbekk og nag-
aður af hundi
svo eitthvað sé
nef nt ,“ seg ir
Óskar hlæjandi
og segir
þetta ágætis vitnisburð
um gæðin í gömlu, góðu
vélunum.
Hann segir mikla nost-
algíu hellast yfir sig við
að kveikja á vélinni.
Nostalgían í hljóðinu
„Það er aðallega hljóð-
ið,“ útskýrir Óskar en minn-
ugir lesendur muna eflaust
vel hversu miklu hlutverki
hljóðið gegndi í GameBoy-
tölvuleikjunum.
„Til dæmis það að heyra
Maríó-lagið úr dósinni. Ég
elska þetta lag og er með
það sem hringitón en það
er allt annað að heyra þetta
úr gömlu, góðu GameBoy-
vélinni, það er þetta tin-
hljóð sem fylgir þar með,“
segir Óskar.
Upprunalega vélin var
ekki það eina sem fannst í
geymslunni. „Ég átti nefni-
lega líka GameBoy Advan-
ced SP og svo á konan mín
GameBoy Color,“ segir Óskar
og því vantar bara eina vél
í safnið hjá þeim hjónum,
GameBoy Advanced.
„En mér skilst að það sé
mögulega hægt að láta gera
við svona, þannig að mögu-
lega er hægt að finna út úr
þessu,“ segir Óskar og ekki
stendur á svörum þegar
hann er spurður út í sinn
uppáhalds leik. „Wario Land:
Super Mario Land 3. Hann var
svona bestur í minningunni,
já og RadarQuest.“ n
Lifir enn í þriggja áratuga
gömlum glæðum GameBoy
Síðasta kynslóð GameBoy, SP.
Önnur kynslóð GameBoy með lit.
Óskar fann gersemar í geymslunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Gamli
jálkurinn
er í merki-
lega góðu
standi 32
árum síðar. SuperMarioLand er líklega einn þekktasti leikur heims.
Í HELGARBLAÐINU |
Maður
margra hatta
Einar Bárðarson fagnar því um þess-
ar mundir að 25 ár eru liðin frá því
að hans vinsælasta lag, Farinn, kom
út. Einar ólst upp á Selfossi og segir
skilnað foreldra sinna hafa haft meiri
áhrif á sig en hann gerði sér grein
fyrir. Hann ræðir lífið og tilveruna,
uppsögn eiginkonu sinnar, ferilinn
og Votlendissjóð í einlægu viðtali við
Helgarblað Fréttablaðsins.
Hefur alltaf elskað
sviðsljósið
Diljá Pétursdóttir sigraði ekki ein-
ungis Söngvakeppnina síðustu helgi
heldur hug og hjarta þjóðarinnar.
Dilja hefur búið í Snælandshverfi
í Kópavogi alla sína tíð. Hún hefur
alltaf verið vinsæl og vinmörg og
snemma hafði hún áhuga á leik- og
sönglist. Sjáðu nærmynd af Dilja í
Helgarblaðinu.
Fjörutíu ára Kvennalisti
Á mánudaginn verða liðnir fjórir áratugir frá stofnun
Kvennalistans. Fjörutíu ár frá því að konur fullar bar-
áttuvilja og þrár eftir breytingum tóku málin í eigin
hendur og buðu fram til alþingiskosninga með lista
fullskipaðan konum – komu þremur inn og tvöfölduðu
árangurinn í næstu kosningum.
22 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 10. MARS 2023
FÖSTUDAGUR