Fréttablaðið - 16.03.2023, Side 4
Það þurfti ekki þetta
mál til að Píratarnir
kalli eftir afsögn minni.
Jón Gunnarsson,
dómsmálaráðherra
Ragnar Þór hlaut
57 prósent atkvæða.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af
borðstofuborðum frá CASÖ
Embla hrinborð 120 cm og 140 cm reykt eik og nature eik.
Það stefnir í að aðeins börn
ríkra foreldra geti keypt
húsnæði að sögn formanns
Viðreisnar. Vaxtahækkanir og
verðbólga sliga æ fleiri að sögn
Neytendasamtakanna.
bth@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Tekjuhár sjómaður
tók í heimsfaraldrinum 70 milljóna
króna húsnæðislán á breytilegum
vöxtum. Hann byrjaði að borga
af láninu í maí í fyrra, greiddi þá
370.000 krónur á mánuði. Eftir hrinu
stýrivaxtahækkana Seðlabankans
hefur nú mánaðarleg af borgun
mannsins hækkað í 540.000 krónur
eða um 170.000 krónur.
Á ársgrunni nemur hækkunin
rúmum tveimur milljónum króna.
Það þýðir að maðurinn þarf að auka
tekjur sínar um rúmar 3,7 milljónir
króna til að standa í skilum. Staða
mannsins versnar enn í næstu
viku þegar spáð er verulegri vaxta
hækkun.
Símar Neytendasamtakanna eru
rauðglóandi vegna Íslendinga sem
eru að sligast vegna vaxtahækk
ana og verðbólgu að sögn Breka
Karlssonar, formanns Neytenda
samtakanna. Dæmið að ofan er
frá Neytendasamtökunum komið.
Sjómaðurinn hafði samband við
samtökin vegna þess vanda sem
hann stríðir við vegna stökkbreytts
vaxtakostnaðar.
„Hann var á leið í bankann þegar
hann hafði samband við okkur og
ætlaði að endursemja,“ segir Breki.
„En það eina sem hann getur gert
er að fara aftur í verðtryggða vexti.
Þá bíta seðlabankavextirnir minna
en ella. Að reka f lesta landsmenn
aftur í verðtryggingu vinnur gegn
því markmiði Seðlabankans að ná
niður vöxtum.“
Breki segir umhugsunarefni að
maðurinn hafi vegna hvatningar
Seðlabankans og stjórnvalda á
sínum tíma tekið þau skref sem
hann steig í ákvörðunum um hús
næðismál. Nú spáir Íslandsbanki
enn einni stýrivaxtahækkuninni,
0,75 prósenta hækkun í næstu viku.
Bankinn segir nokkrar líkur á að
vextir hækki enn meira eða um heilt
prósent.
Verðbólga er þrálátari og verð
bólguhorfur verri en Seðlabankinn
vænti í febrúarbyrjun. Af þeim
sökum er spáð að að vextir haldi
áfram að hækka og nái ekki hámarki
fyrr en um mitt þetta ár. Þá gætu
landsmenn horft upp á að stýri
vextir, sem voru lægstir 0,75 prósent
fyrir skömmu, fari í 7,5 til 8 prósent.
Breki segir margt ungt fólk í
miklum húsnæðisvanda. Margir fái
kolsvarta niðurstöðu þegar spurt er
með reiknivél hvort fólk geti keypt
þak yfir höfuðið.
„Maður veltir fyrir sér hvort ruðn
ingsáhrif aðgerða Seðlabankans séu
að hafa verri afleiðingar en mark
miðið, að ná niður verðbólgu,“ segir
Breki og átelur að ekki fari saman
hljóð og mynd.
„Á meðan Seðlabankinn kemur
inn skömm hjá þeim sem fara
á sólarströnd og taka mynd af
eigin tásum, er bankinn sjálfur í
heljarinnar framkvæmdum á eigin
aðstöðu. Það er verið að laga eld
húsið í Seðlabankanum fyrir þrjá
milljarða króna. Þarf aðhaldið ekki
að byrja heima?“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, segir koma á
óvart að ríkisstjórnin virðist ekki
tilbúin með neina sérstaka áætlun
vegna þeirra hamfara sem nú skeki
efnahagslífið. Einkum séu ungir hús
næðiskaupendur í miklum vanda.
„Ég hef sérstakar áhyggjur af
högum ungs fólks. Það er ekki hægt
að aðeins ungt fólk sem á efnaða
foreldra, fjárhagssterka pabba og
mömmur, getið komið yfir sig þaki,“
segir Þorgerður Katrín. n
Mánaðarleg afborgun af íbúðarláni
hækkað um nær tvö hundruð þúsund
Þorgerður
Katrín Gunnars-
dóttir, formaður
Viðreisnar
Erfiðara er nú
fyrir ungt fólk
að kaupa hús-
næði en um
langt skeið.
Aðeins börn
ríkra geta keypt,
að sögn þing-
manns.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
kristinnhaukur@frettabladid.is
KJARAMÁL Ragnar Þór Ingólfsson
var í gær endurkjörinn formaður
VR. Hlaut hann rúmlega 57 prósent
atkvæða en mótframbjóðandi hans,
Elva Hrönn Hjartardóttir, hlaut tæp
lega 40 prósent.
Er þetta í annað sinn sem Ragnar
stendur af sér mótframboð. Ragnar
Þór, sem kjörinn var formaður 2017,
sigraði Helgu Guðrúnu Jónasdóttur
2021 með 63 prósentum gegn 34.
„Ég er ótrúlega þakklátur fyrir
stuðninginn. Ég er orðlaus. Að vera
með svona stórt og breitt félag, það
eru ólíkir hópar innan þess sem við
erum að vinna fyrir og oft erfitt að
gera öllum geðs,“ sagði Ragnar eftir
sigurinn.
„Miðað við þessar ó á nægju raddir
sem ég hef heyrt út undan mér þá er
þessi niður staða viss von brigði. Að
sama skapi kemur þetta ekki endi
lega á ó vart,“ sagði Elva þegar úrslit
in voru kunngjörð.
Sjö aðrir stjórnarmenn voru
kosnir í 18 manna stjórn félagsins. Af
þeim sem taldir eru stuðningsmenn
Ragnars náðu aðeins tveir kjöri, það
er Sigurður Sigfússon og Þórir Hilm
arsson. Helga Ingólfsdóttir og Krist
jana Þorbjörg Jónsdóttir náðu ekki
endurkjöri í stjórn. n
Segir oft erfitt að gera öllum til geðs
Ragnar Þór
Ingólfsson,
formaður VR
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Nei, þetta er alls eng
inn áfellisdómur yfir minni stjórn
sýslu. Það er mikilvægt að hafa í
huga að umboðsmaður kemst að
þeirri niðurstöðu að ég hafi ekki
brotið nein lög,“ segir Jón Gunnars
son dómsmálaráðherra.
Umboðsmaður gerði með bréfi til
forsætisráðherra í gær athugasemd
við rafbyssumál lögreglunnar. Telur
hann að góðrar stjórnsýslu hafi ekki
verið gætt og ræðir skort á samráði.
Jón segist hafa verið í fullum rétti
til að taka þessa ákvörðun, enda
mörg fordæmi að baki. Reglum um
vopn lögreglumanna hafi verið
breytt án umræðu í ríkisstjórn að
minnsta kosti tvisvar sinnum.
Jón undrast að umboðsmaður ýi
að þeirri skoðun að málið hefði átt
að ræða innan stjórnarinnar.
„Mér finnst þetta á mörkunum
hjá umboðsmanni og ekki rökstutt
með neinum fordæmum af hans
hálfu,“ segir dómsmálaráðherra.
Skiptar skoðanir eru um hvort
Jón kunni að hafa framið brot á
stjórnarskrá. Þingf lokkur Pírata
segir grafalvarlegt að umboðsmað
ur álíti að dómsmálaráðherra hafi
ekki „farið að stjórnarskrá“ líkt og
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir þing
maður orðar það. Píratar hafa sent
forseta Alþingis beiðni um sérstaka
umræðu í þinginu og vill Arndís
Anna afsögn Jóns.
„Það þurfti ekki þetta mál til að
Píratarnir kalli eftir afsögn minni,“
segir Jón. „Helst myndu þeir vilja
hafa mig undir grænni torfu.“ n
Dómsmálaráðherra hissa á áliti umboðsmanns
Frá Eggertsgötu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
REYKJAVÍK Ósk samgöngustjóra
Reykjavíkur um að óheimilt verði
að leggja ökutækjum við Eggerts
götu var samþykkt á fundi umhverf
is og skipulagsráðs Reykjavíkur.
Í greinargerð sem fylgir segir að
bílum hafi verið lagt í götunni með
þeim afleiðingum að ökumenn eigi
erfitt með að mætast og geti það
skapað hættu fyrir bæði akandi og
gangandi vegfarendur.
„Hefur þetta verið rætt við íbúa
við Eggertsgötu og er þetta gert í
sátt við a.m.k. meirihluta þeirra?“
spurði Kolbrún Baldursdóttir,
áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins.
Fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins
sátu hjá við afgreiðslu málsins. n
Bannað að leggja
á Eggertsgötu
Bandarískur MQ-9 Reaper dróni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
helenaros@frettabladid.is
HERMÁL Rússar hyggjast reyna sækja
bandarískan dróna af gerðinni MQ9
Reaper sem féll í Svartahaf á þriðju
dag. Dróninn er talinn hafa hrapað í
sjóinn eftir að rússnesk orustuþota
lenti í árekstri við hann, að því er
fram kemur á vef BBC.
Haft er eftir yfirmanni öryggis
ráðs Rússa, Nikolaj Patrúsjev, að
Rússar séu að reyna að finna vélina.
Flug drónans sé sönnun þess að
Bandaríkjamenn taki þátt í átök
unum í Úkraínu.
Bandaríkjamenn halda því fram
að dróninn hafi verið að sinna
venjubundnu störfum yfir alþjóð
legu hafsvæði. n
Hyggjast ná dróna
úr Svartahafi
4 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023
FIMMTUDAGUR