Fréttablaðið - 16.03.2023, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 16. mars 2023
Khaled lýsir stíl sínum sem blöndu af klassískum og nútímalegum. Honum finnst skipta miklu máli að koma vel fyrir. MYNDIR/AÐSENDAR
Trúir því að tískan sé hvetjandi
og valdeflandi fyrir fólk
Khaled Djouihel er ungur alsírskur maður sem varð ástfangin af einstöku landslagi Íslands,
menningunni og fólkinu og ákvað að gera landið að heimili sínu. Khaled elskar tísku, hann
leggur mikla áherslu á að koma vel fyrir og sést það á fatavali hans sem er alltaf úthugsað.
Khaled hefur búið á Íslandi í sjö
ár og segist hafa notið hverrar
mínútu sem hann hefur dvalið hér
á landi.
„Þessi hrífandi náttúrufegurð,
lifandi menning og samfélag sem
býður mig velkominn hafa gert
Ísland að stað sem er ótrúlegt að
geta kallað heimili mitt. Mér finnst
gaman að skoða landsbyggðina
um helgar, smakka nýjan íslenskan
mat og taka þátt í sjálfboða- og
félagsstarfi. Lífsgæðin hér eru
sannarlega einstök og ég er þakk-
látur fyrir að vera hluti af svo kraft-
miklu og hvetjandi samfélagi,“
segir hann.
Khaled segist njóta þess að verja
frítíma sínum með hundinum
Freyju, ferðast og kynnast ólíkri
menningu.
„Ég hef líka mikinn áhuga á
ljósmyndun og nýt þess að taka
myndir af landslagi og dýrum.
Mér finnst líka gaman að gera til-
raunir í matargerð og prófa nýjar
uppskriftir í frítíma mínum. Þessi
áhugamál gefa mér færi á að slaka
á, læra nýja hluti og fá útrás fyrir
sköpunargáfuna.“
Mikilvægt að koma vel fyrir
Khaled vinnur í þjónustugeiranum
og sérhæfir sig í þjónustu við við-
skiptavini.
„Ég nýt þess að eiga samskipti
við viðskiptavini og legg mig
alltaf fram um að koma vel fyrir.
Hvort sem ég er að vinna á hóteli
eða að aðstoða viðskiptavini í
verslunum. Ég tel að það að koma
vel fyrir og vera aðgengilegur sé
lykillinn að því að því að veita
framúrskarandi þjónustu,“ segir
hann.
Þessi viðhorf Khaleds sýna sig
meðal annars í því að hann er allt-
af f lottur í tauinu og hugsar út
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Justin Bieber kátur í bútasaums
teppinu góða. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Kanadíski söngvarinn Justin Bie-
ber mætti til leiks sveipaður litríku
bútateppi yfir svört jakkaföt sín í
eftirpartí tímaritsins Vanity Fair
eftir afhendingu Óskarsverðlaun-
anna á mánudaginn. Hann sýndi
teppið þó ekki á rauða dreglinum
þar sem hann gekk ekki heldur
með eiginkonu sinni, fyrirsætunni
Hailey Bieber.
Hjónin hafa verið í fréttum
undanfarið eftir að út spurðist að
Hailey og vinkona hennar, fyrir-
sætan Kylie Jenner, hefðu gert gys
að augabrúnum söngkonunnar
Selenu Gomez á samfélagsmiðl-
inum Tik Tok í enda febrúar. Sel-
ena er fyrrverandi kærasta Justins
Bieber sem kann því illa þegar
fólk er lagt í einelti og hefur verið
sagður ósáttur við konu sína vegna
þessara meintu illdeilna. Hann var
sagður líta út fyrir að vera hrelldur
þetta kvöld á Óskarnum.
Í kjölfarið hefur Hailey misst
yfir milljón fylgjendur enda þóttu
ummæli hennar hatursfull. Justin
hefur líka fengið að kenna á þessu
ljóta baktali og meðal annars kyrj-
uðu áhorfendur „Til fjandans með
Hailey Bieber“ þegar hann steig á
svið með Don Toliver. Í millitíðinni
hefur söngvarinn þó birt myndir af
þeim hjónum til að sýna að hann
stendur með konu sinni og skrifað
við eina þeirra: „Luv u baby.“ n
Tepptur í partíi