Fréttablaðið - 16.03.2023, Side 16
Það er notalegt að
finna eitthvað
einstakt og endurnýta
um leið. Ég hef gaman af
litum og fatnaði sem er á
einhvern hátt sérstakur.
Kjalar Martinsson
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Það má segja að líf Kjalars
Martinssonar hafi heldur
betur farið nýjar leiðir og
orðið líflegt undanfarna
mánuði þar sem hann tók
bæði þátt í Idol-keppninni á
Stöð 2, þar sem hann hafn-
aði í öðru sæti, og í Söngva-
keppni sjónvarpsins.
„Já, ég er sko heldur betur kominn
aftur niður á jörðina,“ svarar Kjalar
þegar hann er spurður hvort hann
sé búinn að jafna sig eftir þessa tvo
stóru viðburði í lífinu. „Ég fór beint
í meira stuð, hef verið að syngja
á hinum og þessum viðburðum,“
segir þessi ungi tónlistarmaður
sem er í söngnámi í MÍT og útskrif-
ast þaðan í vor.
Kjalar kláraði stúdentspróf
fyrir fjórum árum og hóf þá nám í
söng hjá MÍT sem er góður undir-
búningur fyrir háskólanám í tón-
list. „Ég hef ekki tekið ákvörðun
um áframhaldandi nám þar sem
ég ætla að taka smávegis frí og
einbeita mér að tónlistinni. Eftir
útskriftina verður sem sagt bæði
tónlist og gleði í lífi mínu. Ég er að
undirbúa plötu með eigin tónlist
sem ég stefni á að koma út í vor eða
byrjun sumars,“ segir hann. „Og
síðan verð ég með aðra í haust sem
verður meiri stuðplata.“
Semur eigin lög fyrir plötu
Kjalar sem er að verða 24 ára hefur
lært á píanó frá því hann var sex
ára og nýtir vel þá kunn-
áttu með söngnum.
„Ég legg út frá ein-
lægum lögum við
píanóundirleik á
plötunni. Textana
samdi ég út frá
eigin persónulegri
reynslu. Ég tók áfanga
í lagasmíðum í skól-
Fer aðrar leiðir og kaupir föt á nytjamörkuðum
Kjalar uppáklæddur og fínn í gráum jakkafötum og gulum rúllukragabol. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kjalar á von á að nóg verði að gera á næstunni enda er
hann að senda frá sér sína fyrstu plötu.
anum undir stjórn Maríu Magnús-
dóttur. Námið hjálpaði mér mikið
við textagerðina, þetta verður
svolítið hrár Kjalar,“ segir hann og
bætir við. „Ég er nefnilega enn að
þróa minn textastíl.“
Idol-keppnin og Söngvakeppnin
vöktu mikla athygli á Kjalari og
hann hefur mikið verið beðinn
um að koma og syngja, til dæmis
í brúðkaupum og afmælum. „Ég
er mjög þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að taka þátt því
það auðveldar mér fyrstu sporin í
tónlist,“ segir hann. „Tónlistin er
klárlega það skemmtilegasta sem
ég geri.“
Fatastíll með sérstöðu
Kjalar fer ekki hefðbundnar leiðir
þegar kemur að fatastíl, sem ein-
mitt vakti athygli í báðum keppn-
unum. „Ég pældi ekkert í fötum
þar til fyrir þremur, fjórum árum
en þá var það kannski í annarri átt
því þá valdi ég mínímalísk föt, eins
og svarta stuttermaboli og galla-
buxur. Fljótlega fann ég að þetta
var ekki alveg ég og þá kom systir
mín, Hekla, til sögunnar. Hún er 21
árs og er mikill listamaður og mín
fyrirmynd. Saumar til dæmis fötin
sín sjálf og hefur gaman af því að
prófa sig áfram á sviði hönnunar.
Hekla hefur haft áhrif á fatastílinn
minn og það hefur vaxið frekar en
hitt í gegnum Idolið. Stílisti keppn-
innar hafði sömuleiðis gaman af
því að finna föt fyrir mig. Henni
fannst skemmtilegt hvað ég var til
í að prófa allt. Það var geggjuð upp-
lifun,“ segir Kjalar sem kaupir öll
sín föt á nytjamörkuðum.
Hann segir að það sé kannski
ekki auðvelt að finna réttu fötin
á nytjamörkuðum, maður þurfi
að hafa fyrir því að leita. „Ég finn
samt alltaf eitthvað. Mér finnst
meira gaman að leita á mörkuðum
heldur en að fara í búð þar sem
alveg eins flíkur eru í miklu magni.
Það er notalegt að finna eitthvað
einstakt og endurnýta um leið. Ég
hef gaman af litum og fatnaði sem
er á einhvern hátt sérstakur,“ segir
hann og er alveg ófeiminn að vera
öðruvísi klæddur en aðrir. Kjalar
segist vera að undirbúa sig fyrir að
læra að hekla. Hann hefur hug á
að gera heklaðar flíkur, til dæmis
toppa. „Ég reyndi að prjóna en það
var ekki alveg fyrir mig.“
Alinn upp í tónlist
Kjalar er alinn upp á miklu
tónlistarheimili ásamt þremur
yngri systkinum. Hann fæddist
í Þýskalandi þar sem hann ólst
upp til sex ára aldurs. Faðir hans,
Martin Kollmar, er Þjóðverji en
foreldrar hans eru bæði kennarar
og hljóðfæraleikarar. Hann spilar
á píanó og klarínett en móðirin,
Guðrún Árnadóttir, á fiðlu. Þau
eru meðlimir hljómsveitarinnar
Mandólín sem leikur hjartnæma
tangótónlist. Kjalar segist lengi vel
ekki hafa sungið heldur einungis
spilað á píanó. „Það eru ekki mörg
ár síðan ég byrjaði að syngja þótt
ég hafi verið í kór,“ segir hann.
„Ég hóf söngnám árið 2018 og þá
vaknaði áhuginn. Í fyrstu var þetta
til gamans gert en síðastliðin tvö ár
hefur það verið draumur minn að
syngja opinberlega.“
Kjalar vonast til að það verði nóg
að gera hjá honum þegar vorar en
hann er þegar bókaður á danska
daga í Stykkishólmi í júní. „Boltinn
er byrjaður að rúlla og ég elska
lífið.“
Þegar Kjalar er spurður hvort
honum hafi fundist skemmtilegra
að taka þátt í Idolinu eða Söngva-
keppni sjónvarpsins, svarar hann.
„Þetta var ólíkt en ég held Idolið
því þar fékk ég að vinna að nýju
efni í hverri viku. Það var mjög
skemmtilegt. Söngvakeppnin var
miklu stærra dæmi þar sem maður
var einungis með eitt lag. Ótrúleg
upplifun í bæði skiptin en bara
aðeins frábrugðið. Fyrri keppnin
hjálpaði mér mikið varðandi
Söngvakeppnina því hún var eigin-
lega bara róleg miðað við stressið
í Idolinu. Reynslubankinn minn
fylltist meðan á þessu stóð og ég
lærði mikið um sjálfan mig auk
þess að kynnast mörgu frábæru
fagfólki.“ n
Kjalar hefur
hug á að læra að
hekla en hann segist
ekki vera góður í að
prjóna. Hann klæðir sig
gjarnan á allt annan
hátt en jafnaldrar
hans.
4 kynningarblað A L LT 16. mars 2023 FIMMTUDAGUR