Fréttablaðið - 16.03.2023, Qupperneq 17
KYNN INGARBLAÐ
Kynningar: OsteoStrong, Breiðu bökin, Saga Natura, Mulier.FIMMTUDAGUR 16. mars 2023
Heilsurækt
Pálína Pálsdóttir hefur heiðarleikann að leiðarljósi og þykir skemmtilegast að miðla þekkingu sinni um heilbrigði til almennings. Hér er hún með son sinn Hendrik í fanginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ástfangin af spegilmynd sinni og líkama
Lífsstílsleiðbeinandinn Pálína Pálsdóttir er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins þegar kemur að heilsurækt.
Hún er sögð koma með sólina inn í lífið og stefnir að því að gera Ísland að hamingjusamasta landi í heimi.
thordisg@frettabladid.is
„Ég er afar ástfangin af spegilmynd
minni fyrir utan að mér finnst ég
vera aðeins of grönn. Eftir að ég
breytti mataræði mínu og lífsstíl
er ég varla með neinar bólgur. Ég
dýrka að horfa á líkama minn og
vita að hann er hamingjusamur
og flæðið gott. Bólguástand skiptir
svo miklu máli fyrir líkamlega
heilsu, og ég hef ekki orðið veik
síðan ég fékk Covid fyrir hálfu
öðru ári, fyrir utan svæsna gubbu-
pest um daginn.“
Þetta segir lífsstílsleiðbein-
andinn Pálína Pálsdóttir, spurð
hvernig henni lítist á spegilmynd
sína og líkamsform.
Pálína er með góðan boðskap til
þjóðarinnar.
„Þó svo að margir væru til í að
gleyma því að Covid hafi nokk-
urn tímann átt sér stað er það
því miður ekki raunin. Í Covid
staðnaði þjóðfélagið í heild sinni
og einnig líkamar okkar. Mörg
okkar fengu ekki að vinna, nánast
enginn fékk að fara í líkamsrækt
né sund, og öll skipulögð hreyfing
var lögð niður. Flæðið stopp-
aði því ekki bara í samfélaginu
heldur einnig í líkömum þjóðar-
innar. Ef við erum ekki með f læði
í líkamanum nær blóðið ekki að
f lytja súrefni til margra líffæra
og vefja sem gerir að verkum að
við verðum þreyttari og nennum
minna. Sogæðavökvinn leikur
ekki heldur lausum hala um
líkamann og getur ekki hreinsað
út rusl sem byggist upp í líkama
okkar við niðurbrot og efni sem
við innbyrðum í gegnum mat
og f leira. Gott blóðflæði og gott
sogæðaflæði er undirstaða lífs og
til að geta komið í veg fyrir alls
kyns lífsstílssjúkdóma er mikil-
vægt að sinna þessum þáttum
vel. Ofan á þessa stöðnun herjaði
svo vírusinn á ónæmiskerfið sem
vann hörðum höndum við að
endurheimta heilsuna,“ greinir
Pálína frá.
Hún segir þjóðina enn vera að
hlúa að sárum Covid.
„Heilbrigðiskerfið nær ekki að
halda jafnvel utan um okkur og
við þurfum á að halda og jafn-
vel þótt gert væri grín að því í
Áramóta skaupinu er það því
miður staðreynd. Við þurfum því
að vera duglegri að axla ábyrgð
á eigin heilsu og mikilvægt að
fræðast um hvað sé gott að borða
og hvað ekki til að lifa sem heilsu-
samlegast. Til dæmis hefur verið
sýnt fram á að unnar matvörur, og
ekki síst unnar matarolíur, geta
verið afar skaðlegar fyrir heilsuna,
valdið bólgum í líkamanum sem
svo minnka f læði og þar með
getu ónæmiskerfisins til að ráðast
á veikindi sem koma inn fyrir
varnir líkamans.“