Fréttablaðið - 16.03.2023, Qupperneq 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5652.
Pálína segir fólk
þurfa að elska
sig sjálft aðeins
meira. Þá muni
það alltaf setja
heilsu sína og
heilsuræktina í
forgang.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Líkaminn man eftir áföllum
Pálína kveðst hafa verið barnið
sem var aldrei í íþróttum og fannst
líkamsrækt ömurleg.
„En eftir að hafa átt eldri
strákinn minn átján ára gömul,
og eftir pínu erfið unglingsár,
kviknaði einhver eldur og ég áttaði
mig á hvað líkamsrækt hefur
mikinn lækningamátt fyrir líkama
og sál. Ég var 22 ára þegar ég þurfti
að horfast í augu við lífið og fara í
endurhæfingarúrræði á Akureyri
sem gjörbreytti lífi mínu. Þar voru
sálrænar meðferðir samtvinnaðar
líkamlegum meðferðum og það
breytti öllu, þar á meðal mér og ég
öðlaðist nýtt líf,“ segir Pálína sem
í kjölfarið fór í sálfræðinám ásamt
því að mennta sig í einkaþjálfun.
Í endurhæfingunni nyrðra var
hún langyngst í hópi kvenna og
ekki komin með líkamlega kvilla
út frá sínum áföllum.
„En allar konurnar í hópnum
voru með líkamsmeiðsl og lífsstíls-
sjúkdóma sem hægt var að tengja
við áföll sem þær höfðu orðið fyrir
á ævi sinni. Líkaminn man það
sem komið hefur fyrir og hann
geymir það ef ekki er unnið í því.
Þess vegna fer fólk oft og tíðum í
kulnun þegar líkaminn gefur sig
vegna líkamlegs og andlegs álags.
Áföllin geymast í litlum „pökkum“
innra með okkur og setjast í líffæri,
vefi og vöðva þar sem þau sitja
þar til við gerum eitthvað í þeim.
Ellegar skemma þau út frá sér
því taugakerfið getur ekki unnið
rétt. Það stakk mig að allar þessar
konur voru svo fallegar að utan
sem innan og mér fannst það svo
sorglegt að ég ákvað að sérhæfa
mig í bættri heilsu kvenna til að
reyna að koma í veg fyrir að þær
einfaldlega lömuðust í lífinu,“ segir
Pálína.
Hún segir reyndar auðvelt að
hvetja fólk til dáða, hvort sem það
eru konur, börn eða karlar.
„Maður þarf að hlusta af ein-
lægni og leyfa manneskjunni að
vera nákvæmlega eins og hún
er, spyrja hana persónulegra
spurninga og leyfa henni að
kynnast sjálfri sér. Ég er góð í að
taka eftir smáatriðum og því var
auðvelt fyrir mig að benda þeim á
árangurinn sem þær náðu, láta þær
horfa í spegil og verða ástfangar af
spegilmynd sinni. Því það fyrsta
sem þarf til að sjá bata af einhverju
tagi er að byrja að elska sjálfan
sig og átta sig á því að maður er
ekki áfallið sem hefur komið fyrir
mann. Maður er nógu góður, alveg
sama hvað hefur gerst.“
Að setja sjálfan sig í forgang
Pálínu er best lýst sem heilara. Hún
er með háskólagráðu í sálfræði og
ýmsa titla sem hún hefur safnað til
að þekkja líkamann betur, hvernig
hann geymir áföll og getur losað
sig við þau.
„Ég hef mikinn áhuga á því að
hjálpa fólki að líða betur í lífinu.
Það geri ég með því að auka flæði
hjá þeim með líkamsrækt og jóga,
eða með því að hjálpa því að mýkja
sig upp með rúllum fyrir bandvef,
bandvefslosun, heilun og nuddi.“
Hún sérhæfir sig í skemmti-
legum æfingum.
„Í ræktinni á maður ekki að
þurfa að líta stanslaust á klukk-
una heldur njóta þess að svitna og
anda. Fyrir mér eru skemmtilegar
æfingar þær sem maður gleymir
sér við vegna einbeitingar við að
gera þær rétt. Það er til dæmis
afar erfitt að gera tvíhöfðakrullu
og gleyma sér. Æfingar sem mér
finnst svo að ætti að forðast eins
og heitan eldinn eru þær sem setja
skrýtið álag á hrygginn, en allt er
þetta persónubundið og fyrir þau
sem eru með brjósklos þarf að fara
rólega í ýmsar æfingar.“
Spurð um bestu og árangursrík-
ustu heilsuræktina, svarar Pálína:
„Ætli svarið sé ekki bland í poka.
Þegar allt er gert í hófi, ekkert er
of mikið og við hlúum að öllum
hliðum heilsuræktarinnar. Við
verðum öll að stunda styrktar-
þjálfun af einhverju tagi, annars
hverfa vöðvarnir með aldrinum,
og svo er algjör skylda að teygja
og rúlla, og gera einhvers konar
þolþjálfun fyrir hjarta og tauga-
kerfið.“
Fyrir Pálínu er draumaformið að
vera laus við bólgur og bjúg.
„Með réttu mataræði og metnaði
í að rúlla sig, fara í nudd, stunda
jóga, heita og kalda potta, og
styrktarþjálfun geta allir komist
í sitt draumaform. Metnaður er
þar lykilatriði og að setja sjálfan
sig í forgang. Við eigum bara eitt
líf og mörg eyða mörgum klukku-
stundum á dag á samfélagsmiðlum
en hreyfa sig ekki neitt og skilja
svo ekkert í því af hverju þau eru
þreytt, þrútin og verkjuð.“
Sjálf ræktar Pálína sinn innri
mann, líkama og sál á marga vegu.
„Jóga gerir hvað mest fyrir mig.
Þar næ ég góðri djúpslökun og að
gleyma mér. Þessa dagana er ég á
erfiðum tímamótum og hef þurft
að sinna mínum innri kjarna
aðeins meira. Ég nota óhefðbundn-
ar leiðir eins og hugleiðslu inn í
orkustöðvarnar. Nýverið prófaði
ég dáleiðslu í fyrsta sinn og mæli
með að allir prófi slíkt. Þar náði
ég að vinna úr miklu síðan úr barn-
æsku sem hafði ýtt undir að mér
fannst ég ekki nógu „góð“, ásamt
því að losa mig við kvíða sem
blundaði djúpt innra með mér. Ég
fer einnig til heilara sem vinnur
með orkustöðvarnar. Göngutúr í
náttúrunni er líka sígildur, þar sem
gróður er mikill og trén há. Þar get
ég hengt vandamál á greinarnar og
skilið þau eftir.“
Með orma í maganum
Pálína er með þúsundir fylgjenda
á Instagram sem fylgjast með
heilræðum hennar og fróðleik um
heilsurækt og mataræði.
„Ég er mikill lestrarhestur,
með algjöran límheila og það
skemmtilegasta sem ég geri er að
miðla þekkingu minni áfram til
almennings. Ég vil að við verðum
hamingjusamasta þjóð í heimi
en til þess þurfum við að huga
að heilsunni sem í augnablikinu
er á pínu brothættum stað. En ég
er alltaf með góð ráð til að elska
sjálfan sig betur, vera jákvæðari og
velja hollari kostinn þegar kemur
að mat og hreyfingu,“ segir Pálína
sem hefur heiðarleika að leiðarljósi
sem áhrifavaldur á Instagram.
„Ég kem alltaf til dyranna eins
og ég er klædd og samfélag mitt á
Instagram hefur heillast af því. Ég
er afar persónuleg og alltaf tilbúin
að hjálpa. Ég tala líka um hluti sem
ekki allir eru tilbúnir að ræða. Í
brennidepli í fyrra voru sníkjudýr í
maga okkar sem ógna bæði líkam-
legri og andlegri heilsu. Ég fór ítar-
lega í mitt innra ástand og benti
samfélaginu á að fara í ristilskolun
hjá Heilsunni minni í Hafnar-
firði eftir að í ljós kom að margt af
mínum heilsuvanda í áranna rás
var tilkomið sökum þess að ég var
með mikið af ormum í maganum
sem engum hafði tekist að finna en
komu í ljós í kjölfar ristilskolunar.“
Pálína gerði líka uppgötvun
þegar hún fór til Grikklands þar
sem lítið er um unnar matvörur
og olíur.
„Öll aukakílóin sem höfðu
hlaðist utan á mig á meðgöngu
hrundu af mér og ég ákvað að
kynna mér áhrif unninna olía á
mannslíkamann. Þar kom í ljós
að þær eru afar skaðlegar heilsu
okkar í miklu magni og því ákvað
ég að taka þær út. Ég fjallaði mikið
um þetta á Instagram, sem fékk
mikla athygli því margir eru orðnir
ráðþrota þegar kemur að því
hvað á að borða. Sjálfri hefur mér
aldrei liðið eins vel í líkamanum
og eftir að ég tók þennan viðbjóð
út úr fæðunni og hef fengið mikið
af jákvæðum reynslusögum frá
fylgjendum mínum um það sama.
Ég var alltaf að berjast við að vera
undir ákveðinni tölu á vigtinni
en núna berst ég fyrir því að vera
fyrir ofan ákveðna tölu. Ég er ekki
hlynnt öfgamataræði eins og ketó
og veganisma sem er alveg fallegt
hugtak en það er afar erfitt að fá
öll næringarefni á slíku mataræði,
nema maður viti nákvæmlega
hvað maður er að gera.“
Andleg heilsa er allt
Pálína keppti áður í bikinífitness
með góðum árangri en segist hætt
slíkum keppnum.
„Mig langar alltaf aftur upp á
svið en eins skemmtilegt og það
er langar mig frekar að þjálfa þau
sem taka þátt í slíku. Að mínu
mati ættu konur ekki að keppa
mikið í þessu sporti því hormóna-
búskapurinn fer oft í rugl og það
hefur áhrif á svo marga mikilvæga
ferla í kvenlíkamanum.“
Hún segir erfitt að svara því
hvað henni þykir erfiðast þegar
kemur að viljastyrk í ræktinni.
„Því ég þarf frekar að sannfæra
mig um að ég þurfi að hvíla mig.
Ég held að fólk þurfi bara almennt
að elska sjálft sig aðeins meira. Þá
mun það alltaf setja heilsuræktina
í forgang.“
Innt eftir því hvort tilveran sé
ríkulegri þegar maður er í fanta-
formi, segir Pálína:
„Þegar ég var í fitness var lífið
ekkert endilega betra því hausinn
fer oft í rugl þegar maður er í
niðurskurði. Í dag, þegar ég rúlla
mig reglulega, fer í núvitundar-
göngur, stunda jóga og styrktar-
þjálfun, fer í heita og kalda potta,
og er með lítið af bólgum, þá já,
er lífið miklu betra. Það er líka
svo gott þegar maður fer að borða
hreina fæðu og er ekki stútfullur
af úrgangi í þörmunum því þá
virka öll ferli líkamans svo miklu
betur. Mest af serótíninu okkar er
tekið upp í görnunum og margir á
þunglyndislyfjum sem auka þau
efni í líkamanum. Ef fólk veldi hins
vegar betri fæðu og passaði upp
á ristilinn gæti ef til vill einhver
prósenta sleppt því að taka inn
þunglyndislyf. Ekki að ég sé á móti
því að taka þunglyndislyf en það
væri betra ef líkaminn gæti séð um
að framleiða þessi efni sjálfur og
hjálpa okkur að líða betur,“ segir
Pálína.
Hún hefur að markmiði að
hjálpa einstaklingum að létta skap
sitt samhliða því að léttast og bæta
líkamsgetu sína.
„Andleg heilsa er allt. Ef maður
hefur hana ekki skiptir engu
hvernig maður lítur út. Því ef
maður er ekki með rétt hugarfar og
talar niður til sín er erfitt að bæta
líkamlega heilsu. Það felst kraftur í
orðum og maður er það sem maður
segir og hugsar. Ef maður er alltaf
að níða skóinn af sjálfum sér gerist
allt miklu hægar og stundum gerist
einfaldlega ekki neitt.“
Kemur með sólina inn í lífið
Pálínu líður best í faðmi fjölskyldu
og vina þar sem ást og kærleikur
ríkir og hún hefur háleit markmið.
„En besta tilfinningin er þegar
ég leiði góðan jógatíma í World
Class og finn róna sem fólk býr
yfir þegar það gengur út. Ég fékk
einu sinni að heyra að að ég kæmi
með „sólina inn í lífið“ og það
besta sem ég geri er að hjálpa fólki
að finna ró og kærleika í lífinu.
Við vinkona mín erum í þann
veginn að stofna nýtt fyrirtæki
og markmiðið að gera Ísland að
besta landi í heimi. Við byrjuðum
auðvitað á byrjunarreit en höfum
nú gert tíu ára plan þar sem við
náum vonandi að hlúa að öllum
stéttum og ungum sem öldruðum.
Við hlökkum mikið til að hjálpa
landsmönnum að breyta lífi sínu
til hins betra og líða betur í eigin
skinni. Ef við hjálpumst öll að og
hlúum hvert að öðru er ekkert mál
fyrir okkur að vera landið sem er
til fyrirmyndar. Við erum nú bara
lítið sjávarþorp svo það ætti ekki
að vera svo erfitt.“ n
Margt af mínum
heilsuvanda í
áranna rás var tilkomið
sökum þess að ég var
með mikið af ormum í
maganum sem engum
hafði tekist að finna en
komu í ljós í kjölfar
ristilskolunar.
Allir geta komist í
sitt draumaform.
Metnaður er lykilatriði
og það að setja sjálfan sig
í forgang.
2 kynningarblað 16. mars 2023 FIMMTUDAGURHEILSUR ÆKT