Fréttablaðið - 16.03.2023, Side 19
Ólafía Kvaran, fyrrverandi
heimsmeistari í Spartan og
skurðhjúkrunarfræðingur,
hefur tekið inn bætiefni
frá Saga Natura í fimm ár.
Hún segir þau hjálpa til við
endurheimt, orku, ein-
beitingu og finnur mikinn
og óvæntan mun á heilbrigði
húðarinnar.
Ólafía Kvaran byrjaði að taka inn
Astaxanthin frá Saga Natura fyrir
fimm árum þegar hún heyrði af
bætiefninu frá vinkonu sinni.
Einnig hefur hún tekið Energy frá
sama fyrirtæki í tvö ár og segist
í dag alls ekki geta hugsað sér
að missa úr skammt af hvorugu
bætiefninu.
Tarzanleikur fullorðna fólksins
„Ég er 52 ára gömul og hef alltaf
verið virk. Ég hreyfði mig mikið
sem unglingur og ung kona og
á fullorðinsárum hef ég mest
stundað Bootcamp og utanvega-
hlaup,“ segir Ólafía.
„Árið 2017 prófaði ég Spartan
í fyrsta sinn og féll gjörsamlega
fyrir íþróttinni, en Spartan Race
er stærsta vörumerkisnafnið sem
býður upp á hindrunarhlaup.“
Íþróttin er krefjandi og segir Ólafía
að keppendur þurfi styrk, fimi,
sprengikraft og gott hlaupaform
til að geta stundað hana. „Fyrir
utan hlaupið þarf að yfirstíga
hindranir eins og að sveifla sér í
apastiga, klifra kaðla, stökkva og
skríða undir gaddavír eða gegnum
rör. Einnig þarf styrk til þess að
bera þunga trjádrumba, keðjur eða
steina og oft er líka synt. Þetta er
svolítið eins og Tarzanleikur full-
orðna fólksins,“ segir hún og hlær.
Ólafía brennur fyrir íþróttinni
og hefur tekið Spartan þjálfara-
réttindi. „Ég hef skipulagt Spartan-
hópferðir fyrir Íslendinga til
Bandaríkjanna og Evrópu og vil
endilega dreifa þessari Spartan-
bakteríu sem víðast hér á landi.
Næsta ferð verður farin í haust og
þegar eru fimmtíu skráðir í hana.
Þetta gengur því ágætlega hjá mér,“
segir Ólafía.
Panikka ef ég á þetta ekki
„Íslenska Astaxanthin frá Saga
Natura er einstaklega öflugt
andoxunarefni og hjálpar mér
við endurheimt eftir æfingar. Ég
panikka alveg ef ég á þetta ekki,“
segir Ólafía og hlær. „Ég byrjaði
á þessu til að standa mig betur
á æfingum og flýta fyrir endur-
heimt og var fljót að finna fyrir
hvoru tveggja. Ég æfi næstum því
daglega og ef ég fer ekki á Boot-
camp-æfingu þá fer ég út að hlaupa
eða að hjóla. Harðsperrurnar sitja
nú orðið mun síður í mér. Ég æfi oft
með sama fólkinu og tek eftir því
að margir kvarta yfir harðsperrum
frá síðustu æfingu á meðan ég finn
ekkert fyrir þeim. Ég er viss um
að það sé íslensku Astaxanthin að
þakka. Auðvitað er maður þreyttur
eftir æfingu en ég er mun sneggri
að ná mér en áður,“ segir Ólafía.
Óvænt áhrif á húðina
Ólafía tók fyrst ekki eftir góðum
áhrifum Astaxanthin á húðina,
fyrr en fólkið hennar hafði orð á
því hvað húðin á henni væri fallega
brún eitt sumarið. „Ég er með við-
kvæma ljósa húð sem varð alltaf
bleik og brunnin í sól. Ég hef aldrei
tekið góðan lit fyrr en eftir að ég
kynntist íslensku Astaxanthin frá
Saga Natura. Ég hleyp mikið úti og
finn í dag að húðin er mun betur
varin fyrir sól, kulda og veðri.
Ég vinn líka sem skurðhjúkr-
unarfræðingur og þvæ og skrúbba
hendurnar mörgum sinnum á
dag. Áður var ég alltaf með þurr-
ar hendur og sprungna húð og
gekk alltaf með handáburð á mér.
Síðustu ár er ég orðin miklu betri í
húðinni. Ég þoli mun betur skrúbb
og sterkar sápur og nota hand-
áburð kannski einu sinni í mánuði,
svona spari.
Það er eitthvað í þessu þó ég
þekki svo sem ekki nákvæmlega
Finnur ekki fyrir strengjum meðan aðrir kvarta
Ólafía Kvaran
stundar hindr-
unarhlaup af
kappi og æfir
nær daglega.
Eftir að hún
byrjaði að taka
Astaxanthin frá
Saga Natura er
hún mun fljótari
að ná sér á milli
æfinga en áður.
Einnig segir
hún Energy frá
Saga Natura
gefa sér orku
fyrir daginn og
einbeitingu í
vinnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ég hef aldrei tekið
góðan lit fyrr en
eftir að ég kynntist
íslensku Astaxanthin frá
Saga Natura. Ég hleyp
mikið úti og finn í dag að
húðin er mun betur
varin fyrir sól, kulda og
veðri.
Ólafía Kvaran
hvað það er. Hins vegar veit ég
að Astaxanthin er eitt öflugasta
andoxunarefnið sem finnst í
náttúrunni. Andoxunarefni hafa
margvíslega virkni í líkamanum
og hjálpa til við viðgerðarferli
hans. Þannig draga þau til dæmis
úr bólgu og bjúg, verja húðina gegn
útfjólubláum geislum sólarinnar
og styðja við heilbrigða öldrun
húðarinnar. En það er ekki nóg að
taka bara töflur, maður verður líka
að sinna heilbrigðum lífsstíl. Ég
held að þetta sé frábær viðbót til
að styðja við heilbrigði líkamans,“
segir Ólafía.
Bætt virkni með Energy
Seinna byrjaði Ólafía að taka inn
Energy frá Saga Natura, eða fyrir
um tveimur árum. „Energy tek ég
nú á hverjum morgni með íslensku
Astaxanthin frá Saga Natura til
að bæta orku og einbeitingu yfir
daginn. Auk Astaxanthin inni-
heldur Energy líka B- og E-vítamín,
burnirót og koffín sem hjálpa
einmitt til við að auka orku og ein-
beitingu og fleira.
Fyrst var ég alltaf með Energy
í íþróttatöskunni og tók það inn
rétt fyrir æfingar. Í byrjun fattaði
ég ekki hvaða áhrif koffínið hefði
á mig og stundum tek ég æfingar
seinnipartinn. Auðvitað var ég
spræk á æfingu en þetta truflaði
svefninn þegar ég tók þetta inn
seint á daginn. Ég er greinilega
viðkvæm fyrir koffíni og hef því
haft það fyrir reglu að taka Energy
alltaf inn fyrir hádegi,“ segir Ólafía.
„Þetta er orðinn alger „standard“
hjá mér til að vera einbeitt í
vinnunni og spræk á æfingum,“
segir hún. Auk koffíns er burnirót í
Energy sem veitir jafnari orku yfir
daginn, dregur úr þreytu og streitu
svo og minnkar kvíða. Burnirót á
sér langa sögu sem lækningajurt
og stuðlar að almennri vellíðan og
jafnvægi í líkamanum.
Fann fljótt mun
„Þegar kemur að bætiefnum er
lykilatriði að halda sér við efnið
og gleyma ekki inntöku. Það tekur
húðina til dæmis meira en mánuð
að endurnýja sig og lengur eftir
því sem maður eldist. Því þarf oft
meira en eins mánaðar skammt
af Astaxanthin til að finna mun
á húðinni. Mér fannst ég mun
fljótari að finna mun á endur-
heimtinni vegna Astaxanthin og
orkunni og einbeitingunni vegna
Energy. Húðin var bara góður
bónus fyrir mér.
Ég gleymi heldur aldrei að taka
bæði með mér í ferðalög erlendis.
Ég tók einu sinni eitt tímabil þar
sem ég sleppti því að taka inn
Energy; hugsaði með mér að þetta
væri kannski of mikið af hinu góða.
En ég fann fljótlega mun á því og
byrjaði strax að taka það inn aftur.
Þessi blanda er góð fyrir mig og ég
mun halda áfram að fá mér íslenskt
Astaxanthin og Energy á hverjum
morgni.“
Íslensk framleiðsla
og hentug áskriftarleið
„Það sem mér finnst flottast við
bætiefnin frá Saga Natura er að
þetta er íslenskt fyrirtæki og
íslensk framleiðsla. Ég bý líka í
Hafnarfirði þar sem verksmiðjan
er staðsett og finnst gott að vita að
ég sé að styðja við íslenska fram-
leiðslu,“ segir Ólafía.
„Núna er komið rúmt ár síðan ég
byrjaði í áskriftarleið Saga Natura,
en það er svakalega þægilegt að
fá bætiefnin bara beint inn um
lúguna í hverjum mánuði. Það er
líka bæði umhverfisvænt og hag-
kvæmt því þetta kemur í litlum
pokum í stað þess að maður sé
að safna upp glás af dósum. Ég
gæti sérstaklega trúað að þetta sé
sniðug lausn fyrir fólk sem á það til
að gleyma að kaupa inn bætiefnin
sín. Ég persónulega myndi aldrei
gleyma að taka þetta inn og ef ég
sé að það lækkar í áldósinni þá fer
ég og kaupi meira, enda er ég alveg
óþolandi skipulögð,“ segir Ólafía
og hlær. Bætiefnin frá Saga Natura
eru send frítt heim að dyrum mán-
aðarlega. Þau sem skrá sig í reglu-
lega áskrift fá alltaf 20% afslátt. n
Nánar á saganatura.is.
kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 16. mars 2023 HEILSUR ÆKT