Fréttablaðið - 16.03.2023, Side 21
X3-æfingakerfið er ný leið til
þess að byggja upp styrk og
vöðva. Settinu fylgir æfinga-
plan en aðeins er gert ráð
fyrir fjórum mismunandi
hreyfingum á dag, fjóra til
sex daga í viku.
X3-æfingarnar má gera hvar sem
er. Æfingakerfið er samansett af
ólympískri lyftingastöng, fjórum
teygjum og lyftingapalli. Það er
mjög fyrirferðarlítið, passar auð-
veldlega í ferðatösku og tekur ekki
upp geymslupláss.
Viktor Ben Gestsson er aðalþjálf-
ari X3 á Íslandi. „X3-kerfið er fyrir
þá sem vilja fá hámarksárangur
á minnstum mögulegum tíma.
Margir kannast við það að vilja
finna fyrir meiri styrk í líkamanum
en finnst erfitt að finna tímann
sem fylgir því að mæta daglega
í ræktina. Aðrir finna fullmikið
fyrir æfingunum og eru þess vegna
ragir við að beita sér. Hugmyndin
er að einfalda líkamsrækt. Gera
fólki kleift að æfa sig heima með
minnstu mögulegu óþægindum,
spara sér tíma en geta líka sótt ráð
og stuðning.“
Fullnýta tímann
„Fyrir þá sem vilja bjóðum við upp
á að koma reglulega í tíma með
leiðsögn. Til þess að það sé auð-
veldara að halda sér við efnið og
vera alltaf að fara fram, getur fólk
komið til okkar vikulega og fengið
ráð frá leiðbeinanda um hvernig er
best að beita sér í æfingunum. Það
tekur smá tíma að læra að fullnýta
sér allt það sem X3 býður upp á
og við viljum aðstoða fólk við að
fá þann árangur sem það stefnir
á og halda sér við efnið. Okkur
fannst vanta þetta millistig milli
heimaæfinga og ræktarinnar,“ segir
Viktor.
Yfirleitt ekki harðsperrur
Með hefðbundnum lyftingum
fylgja oftast bólgur í vöðvunum.
Það er vegna þess að þá á sér stað
vöðvaniðurbrot og í því ferli fram-
leiðir líkaminn mjólkursýrur sem
valda stífleika í vöðvunum, sem
við köllum yfirleitt harðsperrur.
Með því að taka aðeins eitt sett
komum við í veg fyrir vöðvaniður-
brot að mestu og fáum því ekki
hefðbundnar harðsperrur. Eðlilegt
er að finna aðeins fyrir vöðvunum
þegar fyrstu æfingarnar eru teknar
þar sem þetta er nýtt álag fyrir
vöðvana, en þeir sem hafa stundað
X3 í smá tíma finna ekki fyrir slíku.
Í æfingum með X3 hækkar kort-
isólið í líkamanum ekki eins mikið
og í æfingum sem taka lengri tíma.
Ef við æfum lengi í senn hækkar
kortisólið okkar og veldur streitu-
áhrifum í líkamanum. Kortisól er
oft kallað stresshormón líkamans.
Of mikið magn af því getur valdið
ofþyngd, vöðvaveikleika, þreytu og
höfuðverk.
Spennandi hugmyndafræði
„Áður en ég hóf störf hérna var
ég búsettur í Noregi þar sem ég
starfaði og lærði einkaþjálfun. Það
var skemmtilegur tími því ég lærði
hefðbundna einkaþjálfun en á
sama tíma komst ég yfir bókina um
X3 sem er hugmyndafræði sem er
töluvert ólík hugmyndum okkar
um styrktarþjálfun. Mér fannst
X3 mjög spennandi hugmynd og
var alltaf á leiðinni að kaupa mér
það en það var ekki fyrr en ég flutti
til Íslands sem ég fékk loksins að
taka fyrstu æfinguna og það var
enn betra en ég hefði trúað. Ég
hef keppt í kraftlyftingum og æft
lyftingar í ellefu ár. Á þeim tíma hef
ég skaðað mig nánast alls staðar í
líkamanum og alvarlegast af þessu
var slæmt brjósklos neðst í bakinu.
Undanfarin ár hef ég ekki getað
lyft þungu með neðri líkamanum
án þess að verða verkjaður daginn
eftir. Með X3 get ég æft bak og
fætur án þess að finna fyrir því
daginn eftir.
Fyrir mig er mikilvægt að geta
æft eins þungt og mikið og ég vil
án þess að vera stífur og verkjaður.
Æfingar með X3 hafa bætt lífsgæði
mín og vöðvastærð til muna,“ segir
Viktor.
X3 er í Ögurhvarfi 2 í sama hús-
næði og OsteoStrong. Áhugasamir
eru velkomnir á miðvikudögum
kl. 17 í stutta kynningu og til þess
að prófa settið. Nauðsynlegt er að
skrá sig í síma 419 9200 eða í tölvu-
pósti: skapari@skapari.is
Hámarksárangur
á minnstum tíma
Það er gaman að fylgjast með árangri af æfingum með X3.
X3-æfingakerfið er ákaflega gott fyrir líkamann. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fjórar æfingar á dag, fjórum til sex sinnum í viku. Allt með þessu einfalda setti.
X3-æfingakerfið
er samansett
af ólympískri
lyftingastöng, 4
teygjum og lyft-
ingapalli. Mjög
fyrirferðarlítið
og passar auð-
veldlega með í
ferðatösku.
Æfingar með breiðustu teygjunni jafnast á við það að
lyfta allt að 270 kílóum í bekkpressu.
X3-æfingakerfið er frábrugðið hefðbundnum
lyftingum því með teygjum má fullnýta vöðvann
í gegnum allan hreyfiferil hans. Vöðvar líkamans
eru missterkir eftir því hvernig við beitum þeim og
með X3 náum við betri nýtingu þar sem mótstað-
an eykst eftir því sem vöðvarnir eru í betri styrk-
stöðu. Hvert sett er aðeins gert einu sinni alveg
þangað til að iðkandinn getur ekki gert meira. Með
X3 léttist álagið þar sem liðirnir eru viðkvæmastir
og líkur á meiðslum minnka.
Æfing 1 – Ýta Æfing 2 – Toga
Brjóstpressa Réttstöðulyfta
Axlarpressa Róður
Þríhöfðapressa Tvíhöfðaæfing
Hnébeygja Kálfapressa
kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 16. mars 2023 HEILSUR ÆKT