Fréttablaðið - 16.03.2023, Síða 32
Þetta er orðið allt öðruvísi.
Þá var allt unnið í hönd-
unum og lagað um nótt-
ina það sem bakað var.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
MERKISATBURÐIR |
ÞETTA GERÐIST | | 16. MARS 1942
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Kjartan Páll Kjartansson
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk,
miðvikudaginn 8. mars. Útför hans
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 20. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Gerður Harpa Kjartansdóttir Gunnar Sigurðsson
Auður Freyja Kjartansdóttir Benedikt Árnason
Sólveig Guðfinna Kjartansdóttir Arnar Már Hrafnkelsson
og barnabörn
Annabella og Geiri fyrir miðju ásamt dætrum sínum, Sóleyju, Rakel og Sigríði, í góðu yfirlæti árið 2006. MYND/AÐSEND
Hjónin Geiri og Annabella segja
sátt skilið við rekstur Geirabak-
arís í Borgarnesi í dag.
arnartomas@frettabladid.is
Það verður ljúfsár stemning í Geirabak-
arí í Borgarnesi í dag þegar þau Sigurgeir
Erlendsson, betur þekktur sem Geiri,
og Annabella Albertsdóttir, kona hans,
segja skilið við reksturinn eftir 35 ár.
Geiri var önnum kafinn við að græja
skúffukökur þegar Fréttablaðið náði af
honum tali en gaf sér tíma í stutt spjall.
„Ég er bara á síðustu metrunum. Þetta
er búinn að vera ágætis tími,“ segir Geiri
sem skilur sáttur við reksturinn. „Það er
flottur strákur sem hefur verið hjá mér
í mörg ár sem tekur við þessu. Hann
þekkir þetta allt og veit allt. Þetta er eins
gott og getur verið.“
Geiri þarf að hugsa sig um aðspurður
um hvert vinsælasta bakkelsið hafi verið
á þessum tíma.
„Ástarpungarnir hafa auðvitað verið
rosalega vinsælir og svo líka súkkulaði-
snúðarnir,“ svarar hann. „Þegar útlend-
ingarnir koma og stelpurnar segja þeim
að þetta séu „love balls“ þá kippist fólkið
við. Það er mikið af íslensku bakkelsi
sem fólk hefur aldrei séð áður.“
Breyttur bakstur
Geiri tekur undir með að bakarísmenn-
ing Íslendinga hafi breyst til muna frá
því að hann hóf störf, sextán ára gamall
á Siglufirði.
„Þetta er orðið allt öðru vísi. Þá var allt
unnið í höndunum og lagað um nóttina
það sem bakað var,“ segir hann. „Núna
eru menn komnir með það góða frysta
að það er hægt að geyma þetta í vikur
eða mánuði í klefanum óbakað.“
Fastakúnnarnir í Geirabakarí eru
búnir að vera duglegir að láta sjá sig í vik-
unni til að kveðja hjónin fyrir starfslok.
„Maður er auðvitað búinn að vera svo
lengi hérna,“ segir hann og hvetur fólk
til að kíkja í kveðjuboð í bakaríinu í dag.
„Við verðum með opið hús, tertu, kaffi
og svona til að kveðja fólkið sem hefur
stutt okkur í þessi ár.“
Bakkelsi á olíutönkunum
En hvað var það við baksturinn sem dró
Geira í þennan geira á Siglufirði fyrir
öllum þessum árum?
„Það var nú bara svo góð lykt alltaf
þegar maður gekk fram hjá bakaríinu,“
svarar hann og hlær, enda eru ekki allir
vinnustaðir sem lykta jafnvel og bakarí-
in. „Maður fór í skólann á morgnana og
fann alltaf lyktina. Þegar maður var enn
yngri þá man ég eftir að við sátum upp
á olíutönkunum við bakarísgluggana og
þeir gáfu okkur alltaf nammibrauð.“
Geiri er tregur við að rifja upp sér-
kennilegar uppákomur í sögu bakarísins
svona rétt áður en hann hættir.
„Hvað heldurðu að ég muni það? Það
var nú reyndar einu sinni einhver hátíð
á Hvanneyri þar sem ég veit ekki hvað
hún var löng tertan sem við gerðum en
það var svolítið sérstakt.“
Tími fyrir tómstundir
Nú þegar bakkelsið er ekki að þvælast
fyrir hjónunum ætti að gefast meiri tími
fyrir önnur áhugamál.
„Ég fer kannski að spila meira golf en
ég hef gert og svo hef ég bát sem ég get
siglt á. Mér finnst líka gaman að djöflast
á fjórhjólum og veiða,“ segir hann. „Svo á
konan sumarbústað og það þarf að bera
á hann. Ég hef ekki neinar áhyggjur af
þessu!“
Kveðjuboðið í dag stendur yfir milli
klukkan 15.30 og 17.30. n
Ilmurinn var svo lokkandi
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna S. Snæbjörnsdóttir
Mörkinni, Suðurlandsbraut 70A,
sem lést föstudaginn 3. mars, verður
jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn
20. mars kl. 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeir sem vilja minnast hennar er bent á Hringinn.
Kristján Birgir Kristjánsson
Rúrik L. Birgisson Guðríður Hjaltadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Sigurþór Kristjánsson, Viðar Héðinsson,
Albert Þorkelsson og Geiri árið 1995.
1690 Loðvík XIV. sendir hersveitir til Írlands.
1972 Gústav III. Svíakonungur verður fyrir byssukúlu á
grímuballi í sænsku óperunni. Hann deyr af sárum
sínum tæpum tveim vikum síðar.
1815 Willem I. lýstur konungur Niðurlanda.
1830 Lundúnalögreglan Scotland Yard endurskipulögð.
Nafnið er dregið af heiti götunnar sem höfuð-
stöðvar lögreglunnar stóðu við. Það festist svo við
embættið.
1836 Stjórnarskrá Texas samþykkt. Í henni var ákvæði
sem heimilaði þrælahald.
1912 Pat Nixon fæðist. Hún lést árið 1993, 81 árs að aldri.
1939 Þjóðverjar ráðast inn í Tékkóslóvakíu.
1948 Billie Holiday, söngkona, sleppt úr fangelsi vegna
góðrar hegðunar. Hún hafði hlotið dóm fyrir vörslu
fíkniefna.
1959 Jens Stoltenberg, fyrrverandi forsætisráðherra
Noregs og núverandi aðalframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, fæðist.
1964 Lyndon B. Johnson leggur fyrir Bandaríkjaþing að
samþykkja frumvarp sem beint er gegn fátækt.
1968 Robert F. Kennedy tilkynnir að hann hefji kosninga-
baráttu til embættis forseta Bandaríkjanna.
1976 Harold Wilson, forsætisráðherra Breta, segir af sér.
1978 Soyus 26 snýr til jarðar á ný.
1998 Jóhannes Páll páfi II. biður um fyrirgefningu Guðs
vegna aðgerðaleysis og þagnar rómversk-kaþólskra
um Helförina.
2012 George Clooney er ásamt fleirum handtekinn fyrir
borgaralega óhlýðni. Þau höfðu safnast saman fyrir
utan súdanska sendiráðið í Washington.
Fréttaritari Alþýðublaðsins greindi frá
því í blaðinu þann 18. mars að til alvar-
legra átaka hefði komið á Siglufirði. Þar
hefðu breskir setuliðsmenn og Íslend-
ingar slegist á götum bæjarins „með
hnefunum“ eins og það var orðað.
Tildrögin að slagsmálunum segir þar að
hafi verið orðaskak milli Íslendings og
Breta á billjarðstofu á Siglufirði.
„Fóru báðir út úr stofunni og stað-
næmdust í snjóskafli, sem er skammt
frá húsi Kaupfélags Siglfirðinga, en
þar höfðu margir unglingar á aldrinum
12-16 ára safnast saman,“ segir í frétt
Alþýðublaðsins.
Þar á eftir mun sá breski hafa reynt
að slá til þess íslenska sem beygði sig
svo að höggið lenti ekki. Eftir nokkur
átök komu tugir hermanna niður aðal-
götu bæjarins og segir fréttaritari þá
hafa látið ófriðlega. Þeir hafi ráðist á
vegfarendur og látið höggin dynja á
þeim sem þeir náðu til.
Siglfirðingarnir börðust til baka og
segir að þar hafi lent í „algerum og
mjög fjölmennum bardaga“ þar sem
margir hermenn sem og Íslendingar
voru barðir niður. Einn Íslendingurinn
meiddist mikið og var fluttur til læknis.
Málið var kært en Siglfirðingar voru
skiljanlega reiðir yfir hátterni hermann-
anna. n
Siglfirðingar og breskir hermenn takast á
Siglfirðingar voru skiljanlega reiðir yfir
hátterni bresku setuliðsmannanna.
Faðir okkar,
Jóhannes Nordal
fyrrverandi seðlabankastjóri,
andaðist í Reykjavík sunnudaginn 5. mars.
Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni þann 17. mars
2023 klukkan 16.
Bera, Sigurður, Guðrún, Salvör og Marta
16 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023
FIMMTUDAGUR