Fréttablaðið - 16.03.2023, Side 36
Gagnrýnendur hafa fellt dóm sinn. The Last
of Us er ein af bestu sjónvarpsþáttaseríum
seinustu ára. Hún er líka sönnunargagn um
það að tölvuleikir, eins The Last of Us, geti sagt
fyrirtaks sögu og verið góður efniviður til að
byggja annað menningarefni á. Hér eru aðrir
tölvuleikir sem Fréttablaðinu finnst þarft að
gera sjónvarpsþætti eftir.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Við þurfum
meira svona
Pedro Pascal og
Bella Ramsey
hafa heillað sem
Joel og Ellie.
The Last of
Us kom út
árið 2013 og
þykir með betri
hryllingstölvu-
leikjunum.
Full Throttle
Innan um click-and-play hittara Lucas Arts á
borð við Monkey Island og Sam & Max kom
költarinn Full Throttle. Leikurinn fjallar um
mótorhjólagæjann Ben sem er sakaður um
morð. Þrátt fyrir að leikurinn gerist í heimi
mótorhjólagengja þá hefur leikurinn andrúms-
loft film noir því Ben þarf að rannsaka málið til
að hreinsa nafn sitt af ódæðinu. Lítið mál er að
snara leiknum yfir á sjónvarpsskjáinn. Það eina
sem þarf að gera er að kalla saman þá sem komu
að hinum geysivinsælu þáttum Sons of Anarchy
og bæta Nicholas Cage við sem Ben.
Fallout
Af hverju ekki að búa til aðra
seríu um heimsendi eins og
The Last of Us? Kannski er það
Covid-19 að kenna, eða verð-
bólgunni, að heimurinn virðist
vera mjög móttækilegur fyrir
að horfa á sjónvarpsefni um
tortímingu mannkyns. Fallout-
leikirnir fjalla um hvernig
heimurinn lítur út eftir kjarn-
orkuvetur og hvernig stökk-
breytt skorkvikindi kjamsa á
síðustu tvífætlingunum. Sé sett
nægilegt fjármagn í tækni-
brellurnar og getur þetta ekki
klikkað. Sérstaklega ekki ef
Pedro Pascal verði ráðinn sem
aðalhetjan.
Football Manager
Á hverju ári gefur Sports Interactive út nýja út-
gáfu af Football Manager, áður Championship
Manager, þar sem hægt er að taka við stjórnar-
taumunum hjá knattspyrnuliði og hefja það upp
til skýjanna. Eða fara með það í ræsið. Það verður
aldrei hægt að toppa þættina Mike Bassett Team
Manager þegar kemur að gamanþáttum um fót-
boltastjóra. Þess vegna þarf Football Manager
að vera þættir um fíkn. Þar sem sýnt er hvernig
ungur drengur, leikinn af Timothee Chalamet,
byrjar að fikta við FM en endar svo með því að
eyða lífi sínu fyrir framan skjáinn við að reyna að
gera Hull City að Evrópumeisturum.
The Sims
Vinsældir kvikmyndanna The
Matrix og The Truman Show
sýndu okkur að fólk hefur
áhuga á að sjá venjulegt fólk
búa í sýndarveruleika. The Sims
gæti orðið krassandi vísinda-
hrollvekja eða jafnvel veruleika-
sjónvarp þar sem grunlausum
sakleysingjum er stýrt af
siðlausum brúðumeistara til að
fullnægja sínum sjúku fýsnum.
Hvað gerist ef ég fjarlægi allar
hurðirnar og gluggana í húsinu?
Byrja þau að éta hvert annað?
EVE Online
Sem Íslendingar getum við ekki sleppt því að
minnast á EVE Online, einhverja okkar þekktustu
útflutningsafurð síðan Snorra Edda kom út.
Nördar flykkjast til landsins á risastórar ráð-
stefnur og festa jafn vel ráð sitt á þeim. Sá
galli er hins vegar á gjöf Njarðar að ekki er víst
að þættirnir yrðu mjög spennandi. Þeir gætu
einnig orðið ansi einhæfir því EVE Online snýst
að stórum hluta um stöðugan námagröft á járn-
grýti. Sennilega yrðu þættirnir meira í ætt við
norskt „slow-TV“ frekar en Star Trek.
Red Dead Redemption
Borðleggjandi er að gera sjónvarpsþáttaröð
byggða á sögu vestranna Red Dead Redemption
og ekki síður Red Dead Redemption 2. Frásagn-
arlist og persónusköpun leikjanna er langtum
framar nokkru sem Sergio Leone eða John Ford
sendu frá sér. Drama, spenna og grín í bland. Hér
er efniviður í margar og langar seríur en vanda
þarf leikaravalið. Brad Pitt yrði góður sem hetjan
Arthur Morgan og Jeff Bridges sjálfkjörinn sem
illmennið Dutch.
20 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023
FIMMTUDAGUR