Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 2
Það er rétt að í ákveðn-
um hverfum er staðan
ekki eins og við hefð-
um viljað hafa hana.
Dagur B.
Eggertsson,
borgarstjóri
Háskóli Íslands er með
sitt eigið fasteignafélag.
Karl Pétur
Jónsson, upp-
lýsingafulltrúi
Framkvæmda-
sýslunnar
Jóhannes Nordal kvaddur
Útför Jóhannesar Nordal, seðlabankastjóra til þrjátíu og tveggja ára, fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Kistuberar voru Ingimundur Friðriksson,
Jónas Þór Guðmundsson, séra Anna Sigríður Pálsdóttir, Már Guðmundsson, Friðrik Sophusson, Ásgeir Jónsson, Guðrún Pétursdóttir og Davíð Oddsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af
borðstofuborðum frá CASÖ
Teg. 230. Langborð 200 x 98 og 240 x 98 stækkun 2x 50cm
reykt eik og nature eik.
kristinnhaukur@frettabladid.is
MENNTAMÁL Fasteignir Háskóla
Íslands heyra ekki undir Fram-
kvæmdasýsluna - Ríkiseignir, að
sögn Karls Péturs Jónssonar, upp-
lýsingafulltrúa stofnunarinnar.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá stendur styr um einkaskrifstofur
háskólakennara eftir ákvörðun um
að nýtt húsnæði verði með sam-
eiginleg vinnurými. Í undirskrifta-
söfnun er spjótum beint að Fram-
kvæmdasýslunni.
„Háskóli Íslands er með sitt eigið
fasteignafélag,“ segir Karl Pétur og
vísar til að Háskólinn fylgi viðmið-
um fjármálaráðuneytisins. „Í þeim
tilvikum þegar við búum til aðstöðu
fyrir skrifstofur á vegum ríkisins
fylgjum við þessum viðmiðum,“
segir hann. Sérfræðingur á vegum
Framkvæmdasýslunnar hafi hins
vegar fundað með háskólafólki um
verkefnamiðað vinnuumhverfi. n
Stýra ekki stefnu
Háskóla Íslands
Borgarstjóri útilokar ekki að
borgin taki upp greiðslur til
foreldra ef börn fá ekki inni á
leikskóla. Aldrei orðið til fleiri
ný pláss en nú að hans sögn.
bth@frettabladid.is
katrinasta@frettabladid.is
REYKJAVÍK Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri segir að aldrei hafi
verið opnaðir eins margir leikskólar
í borginni og síðasta árið. Síðast í
gær var Dagur viðstaddur opnun
nýs leikskóla, Strákaborgar.
„Við höfum aldrei opnað eins
marga leikskóla, um 500 pláss.
Vandinn er endurgerð og viðhalds-
verkefni margra skóla,“ segir Dagur.
Hörð mótmæli eru í gangi vegna
skorts á leikskólaplássum.
Móðir í Vesturbænum sem rætt
var við á Hringbraut í gær segir
ástandið valda atgervisflótta ungs
barnafólks út fyrir landsteinana.
„Það er rétt að í ákveðnum hverf-
um er staðan ekki eins og við hefð-
um viljað hafa hana,“ segir Dagur.
„Þess vegna brúum við nú bilið og
bætum við plássum.“
„Framsókn vill eyða biðlistum
eftir leikskólaplássum“, var eitt af
markmiðum Framsóknarflokksins
í síðustu borgarstjórnarkosningum.
Slagorðið „Er ekki kominn tími á
breytingar í borginni?“ er talið hafa
átt þátt í að Framsóknarmenn unnu
sigur og fengu fjóra borgarfulltrúa.
Breytingar á leikskólavanda borgar-
innar hafa þó ekki færst í rétta átt.
Á vef Framsóknarflokksins segir
að f lokkurinn vilji „styðja við for-
eldra með því að brúa bilið milli
fæðingarorlofs og leikskóla“. „Einn-
ig vill Framsókn tryggja styrki til
foreldra sem ekki eru með börn hjá
dagforeldri eða í leikskóla.“ Hafn-
arfjörður og Garðabær hófu slíkar
heimgreiðslur nýverið. Borgarstjórn
Reykjavíkur hefur enn ekki staðfest
slík áform.
Spurður hvað skýri drátt á lausn
á vanda leikskólabarna með Einar
Þorsteinsson, oddvita Framsóknar-
flokksins, í meirihlutasamstarfinu,
segir Dagur að heimgreiðslur hafi
verið ræddar í borgarstjórn.
„Við höfum ekki tekið ákvörð-
un,“ segir Dagur og útilokar ekki að
borgin taki greiðslurnar upp síðar
meir.
„Mér fannst stóru tíðindin í síð-
ustu kosningum að allir f lokkar
voru sammála um það í fyrsta skipti
að stefna að því að öll börn fengju
leikskólapláss við 12 mánaða aldur.“
Björg Sigurvinsdóttir, skólastjóri
Lundarsels – Pálmholts á Akureyri,
segir mikilvægt að foreldrum verði
gefinn kostur á að vera lengur en 12
mánuði heima í fæðingarorlofi.
Það mætti lengja orlofið í skref-
um, fyrst í 18 mánuði, svo upp í 24
mánuði,“ segir Björg.
Hvorki náðist í Einar Þorsteins-
son, oddvita Framsóknarmanna
og formann borgarráðs, né Árelíu
Eydísi Guðmundsdóttur borgar-
fulltrúa. n
Í skoðun hvort Reykjavík
taki upp heimgreiðslur
Sem stendur fellur nánast undir forréttindi ef barn í Reykjavík fær inngöngu
á leikskóla um 12 mánaða aldur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
gar@frettabladid.is
BESSASTAÐIR Forseta Íslands,
Guðna Th. Jóhannessyni, voru í gær
færðir mislitir sokkar til að minna á
alþjóðlega Downsdaginn sem er á
þriðjudaginn.
Það var hann Jón Árni sem gaf for-
setanum sokkana við skemmtilega
athöfn á Bessastöðum og þær Arna
Dís og Katla Sif færðu Guðna glæsi-
lega boli með áprentuðum myndum
af þeim sjálfum. Forsetinn klæddist
sokkunum vitaskuld strax. Þeir eru
mislitir til að minna á að mann-
fólkið er ekki allt eins. n
Jón Árni færði forsetanum sokka
Afar vel fór á
með forseta
Íslands og þeim
Örnu Dís, Kötlu
Sif og Jóni Árna
á Bessastöðum
í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. MARS 2023
LAUGARDAGUR